Bjarni Benediktsson efast um fullyrðingar Víglundar um lögbrot

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, efast um full­yrð­ingar Víg­lundar Þor­steins­sonar að lög hafi verið brotin við end­ur­reisn íslenska bankankerf­is­ins á árinu 2009. Í sam­tali við RÚV segir Bjarni að það sé "mikið álita­mál í mínum huga hvort rétt er farið með varð­andi það að hér hafi lög verið brotin. Ég held að það sé ekki búið að sýna fram á það með sann­fær­andi hætti fyrir mína parta".

[quote font="0" align="right"]segir Bjarni að það sé "mikið álita­mál í mínum huga hvort rétt er farið með varð­andi það að hér hafi lög verið brotin. Ég held að það sé ekki búið að sýna fram á það með sann­fær­andi hætti fyrir mína parta".[/quote]

Víglundur sendi öllum þing­mönnum og fjöl­miðlum gagna­pakka síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Með pakk­anum fylgdi átta blað­síðna grein­ar­gerð þar sem Víglundur sagði að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn í ráðu­neytum og Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hafi framið stór­felld og marg­vís­leg lög­brot þegar þeir ákváðu að breyta stofnúr­skurði eft­ir­lits­ins um stofnun nýrra banka á grunni þeirra þriggja sem féllu í októ­ber 2008. Víglundur vill meina að með þessu hafi erlendir „hrægamma­sjóðir“ átt að hagn­ast um 300 til 400 millj­arða króna á kostnað þjóð­ar­innar.

Bjarni seg­ist ekki kann­ast við það að Alþingi hafi tekið ákvörðun um, hvorki með lögun né með öðrum hætti, að nýju bönk­unum bæri "skil­yrð­is­laust að láta krónu fyrir krónu allan þann afslátt sem birt­ist í nið­ur­færslu krafna við stofnun þeirra renna til við­skipta­manna bank­anna. Ég kann­ast ekki við það“.

Ríkið átti ekki eignirnar og greiddi ekki fyrir þær


Jóhannes Karl Sveins­son lög­maður og Þor­steinn Þor­steins­son rekstr­ar­hag­fræð­ingur voru í lyk­il­hlut­verkum við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins. Jóhannes Karl var ráð­gjafi FME og síðar fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í gegnum allt ferlið og Þor­steinn leiddi samn­inga­við­ræður við skila­nefndir föllnu bank­anna og kröfu­hafa fyrir hönd fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þeir rita saman grein í Morg­un­blaðið í dag þar sem þeir hafna ásök­unum Víg­lundar.

Í nið­ur­lagi þeirrar greinar segir: "Ræða mætti betur og skýra ýmis atriði í hinu viða­mikla verk­efni sem end­ur­reisn við­skipta­bank­anna þriggja var en ekk­ert rúm er til þess í stuttri grein. Það blasir þó við að bráða­birgða­matið frá októ­ber/nóv­em­ber 2008 hefði reynst mjög óheppi­legur grunnur að end­ur­reisn bank­anna. Ein­fald­ast er að benda á skulda­bréfa­út­gáfu nýju bank­anna til slita­bú­anna sem hefði orðið 1.152 ma.kr. í stað þeirra 247 ma.kr. sem nið­ur­staðan varð og hefur það skulda­bréf Lands­bank­ans þó reynst ærinn biti að kyngja.Erlendir kröfu­hafar hófu mál­sóknir á hendur íslenska rík­inu vegna eigna­mats­ins - töldu það of lágt - en töp­uðu því máli í Hæsta­rétti Íslands.

[caption id="attachment_17957" align="alignnone" width="624"] Víglundur Þor­steins­son setti fram alvar­legar ásak­anir um lög­brot sem hann telur að hafi átt sér stað við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins.[/caption]

Það er í and­stöðu við hags­muni íslenska rík­is­ins að taka undir það sjón­ar­mið að þetta bráða­birgða­mat hafi verið hinn rétti grunnur og að verð­mæti yfir­færðra eigna í nýju bank­ana hafi í reynd verið 2.500 ma.kr.Velta má fyrir sér hvers vegna umræðan nú snú­ist um að stjórn­völd hefðu átt að taka svo lélegan val­kost við end­ur­reisn við­skipta­bank­anna að miða eignir þeirra við hæsta mögu­lega mat á þeim óvissu­tímum sem um ræðir.

Erfitt er einnig að skilja umræðu um að eigna­matið hafi breytt stöðu þeirra sem skuld­uðu lánin, hún var nákvæm­lega sú sama fyrir matið og eftir eins og fram kemur í ákvörð­unum FME.Í sinni ein­föld­ustu mynd snýst málið um mat á eignum sem fluttar voru með rík­is­valdi til nýju bank­anna.

[quote font="0" align="right"] Íslenska ríkið átti ekki þessar eignir og greiddi ekki fyrir þær.[/quote]

Samkvæmt lögum þurfti að verð­meta eign­irnar og svo þurfti nýi eig­and­inn að borga. Íslenska ríkið átti ekki þessar eignir og greiddi ekki fyrir þær.Við störf­uðum báðir á vegum stjórn­valda við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins, Jóhannes frá októ­ber 2008 og Þor­steinn frá því snemma árs 2009. Við fögnum umræðu um þau mál en bendum á að hún gagn­ast best ef stuðst er við stað­reyndir. Ásakanir um lög­brot og spill­ingu eiga ekki við um end­ur­reisn fjár­mála­kerf­is­ins eftir hrun."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár