Alvarlegar ásakanir Víglundar og sagan af endurskipulagningunni

Víglundur Þor­steins­son, fyrrum eig­andi BM Vallár, segir að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn í ráðu­neytum og Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hafi framið stór­felld og marg­vís­leg lög­brot þegar þeir ákváðu að breyta stofnúr­skurði eft­ir­lits­ins um stofnun nýrra banka á grunni þeirra þriggja sem féllu í októ­ber 2008. Víglundur vill meina að með þessu hafi erlendir „hrægamma­sjóðir“ átt að hagn­ast um 300 til 400 millj­arða króna á kostnað þjóð­ar­innar.

Víglundur hefur sent gögn á fjöl­miðla sem eiga að rök­styðja þessar ávirð­ingar. Á meðal þeirra gagna eru stof­nefna­hags­reikn­ingar nýju bank­anna þriggja sem settir voru á fót í októ­ber 2008, í kjöl­far banka­hruns­ins. Hægt er að lesa öll gögnin sem Víglundur sendi hér, hér, hér, hér, hér, hér, hér, hér, hér og hér.

Í átta blað­síðna minn­is­blaði sem Víglundur sendi fjöl­miðlum og alþing­is­mönnum segir m.a.: „ Hinn 1. febr­úar 2009 tók við ný rík­is­stjórn, vinstri stjórn sem kenndi sig við nor­ræna vel­ferð. Fljót­lega eftir að hún tók til starfa hófst stjórnin handa við það að leita leiða til að breyta ákvörð­unum FME um stofnúr­skurði bank­anna í októ­ber 2008.

Þessi vinna fór mjög leynt og var ekki end­an­lega upp­lýst um hana fyrr en fund­ar­gerðir hinnar svoköll­uðu stýrinefndar um samn­inga við erlendu kröfu­haf­ana feng­ust afhentar með ákvörðun Úrskurða­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Ónákvæma og vill­andi frá­sögn af þeim samn­ingum gaf að lesa í skýrslu fjár­mála­ráð­herra SJS um end­ur­reisn við­skipta­bank­anna í mars 2011.

Fund­ar­gerðir stýrinefnd­ar­innar stað­festa að mönnum var ljóst að í störfum þessum væri unnið á mörkum þess sem lög­legt var. Nefnd­ar­menn höfðu m.a. áhyggjur af því að þeir kynnu að brjóta gegn stjórn­ar­skrá í sínum störfum, sömu­leiðis voru lög­fræði­á­lit fengin til þess að kanna kosti þess að fara fram hjá neyð­ar­lög­unum með því að fá FME til að breyta eða aft­ur­kalla stofnúr­skurð­ina. Sem FME gerði ekki. Þótt FME hafi síðar horft aðgerða­laus á og bein­línis tekið þátt í þeim meintu brotum sem á eftir fylgdu.

Skemmst er frá því að greina að menn létu þessar vanga­veltur ekki stöðva sig. Þetta starf leiddi til þess að fjár­mála­ráð­herr­ann gerði árið 2009 samn­inga við skila­nefndir gömlu bank­anna um að hleypa þeim inn í nýju bank­ana í þeim til­gangi að taka upp stofnúr­skurði FME frá haustinu 2008 til ábata fyrir kröfu­hafa gömlu bank­anna. Þátt­tak­endur í þessu starfi voru fjöl­margir starfs­menn ráðu­neyta, skila­nefnda og hinna nýju banka og á hlið­ar­lín­unni stóðu Fjár­mála­eft­ir­litið og Seðla­bank­inn.“

Ítarleg umfjöllun um endurskipulagningu í bók


Frá banka­hruni hafa blaða­menn Kjarnans fjallað mjög mikið um end­ur­skipu­lagn­ingu íslensks fjár­mála­kerfis, og þar á meðal end­ur­reisn við­skipta­bank­anna þriggja. Grein­ar­höf­undur og Magnús Hall­dórs­son skrif­uðu m.a. bók, Ísland ehf.- auð­menn og áhrif eftir hrun, sem kom út í ágúst 2013. Í henni er fjallað ítar­lega um end­ur­skipu­lagn­ingu íslensks við­skipta­lífs eftir að efna­hags­kerfið fór á hlið­ina haustið 2008.

Einn kafli bók­ar­innar heitir „fyrst þarf að þvo bank­ana“. Í honum er fjallað um það þegar samið var við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að þrotabú þeirra myndu taka við eign­ar­haldi tveggja þeirra.

Kaflinn er end­ur­birtur hér að neðan með nýjum milli­fyr­ir­sögnum og nauð­syn­legum upp­færslum:

[caption id="attachment_8266" align="alignnone" width="640"] „Þetta er við fyrstu sýn slá­andi,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, í við­tali við þátt­inn Í bítið á Bylgunni í morgun, þar sem gögn um end­ur­reisn nýju bank­anna og samn­inga við kröfu­hafa voru til umræðu, meðal ann­ars út frá gögnum sem Víglundur Þor­steins­son, fyrr­ver­andi stór eig­andi BM Vallár, hefur aflað sér og sent á Alþingi og fjöl­miðla.[/caption]

„Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi að við banka­hrunið hafi um 70 pró­sent af 120 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins verið undir beinum eða óbeinum yfir­ráðum banka. Annað hvort voru bank­arnir bein­línis búnir að taka fyr­ir­tækin yfir eða skulda­staða þeirra var þess eðlis að þau voru í gjör­gæslu bank­anna og gátu ekki ráðið sínum málum sjálf. Þessi 120 fyr­ir­tæki mynd­uðu um helm­ing íslensks þjón­ustu­mark­aðar.

Þótt ekki hafi verið birtar rann­sóknir sem sýna hver staðan var hjá öllu atvinnu­líf­inu var það skoðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og allra stóru bank­anna að þessa tölu, 70 pró­sent, megi í raun yfir­færa á starf­semi lands­ins í heild. Því stóðu stjórn­völd, stofn­anir og atvinnu­fyr­ir­tæki frammi fyrir risa­vöxnu og ein­stöku verk­efni. Hvernig átti að end­ur­skipu­leggja allt á Íslandi? Og hver átti að gera það?

Aug­ljós­asta svarið var að bank­arnir, sem héldu að mestu leyti á skuldum atvinnu­lífs­ins, ættu að sjá um end­ur­skipu­lagn­ing­una. Vanda­málið var að bank­arnir sjálfir voru ekki fjár­magn­aðir og óvissa ríkti um hvort sú leið sem farin var við stofnun þeirra myndi halda. Þeir höfðu því ekki getu til að takast á við það risa­vaxna verk­efni sem þeir þurftu – og áttu – að taka að sér.

Þurftu að vita hvað bankarnir áttu og skulduðu


Snemma árs 2009 blasti því þessi staða við. Það þurfti að end­ur­skipu­leggja bank­ana þrjá, Lands­banka, Íslands­banka og Arion banka, áður en þeir gátu farið að end­ur­skipu­leggja við­skipta­vini sína. Skipti þar engu hvort um var að ræða fyr­ir­tæki eða ein­stak­linga. Banki sem veit í raun ekki hversu miklar eignir eða skuldir hann á getur ekki ráð­ist í að að skrifa niður skuldir ann­arra.

Þegar bank­arnir þrír voru stofn­settir voru allar inn­stæður færðar yfir í þá. Til að standa undir þeim var mikið magn eigna, sem með réttu til­heyrði kröfu­höfum föllnu bank­anna, fært með. Virði þess­ara eigna var mjög óljóst. Í neyð­ar­lög­unum segir: „Fjár­mála­eft­ir­lit­inu er heim­ilt að taka í sínar vörslur þær eignir sem mæta eiga skuld­bind­ingum fjár­mála­fyr­ir­tækis og láta meta verð­mæti eigna og ráð­stafa þeim til greiðslu áfall­inna krafna eftir því sem þörf krefur“. Við þær aðstæður sem ríktu um haustið 2008 og fram á vorið 2009 treysti sér hins vegar eng­inn til að meta eign­irnar nákvæm­lega og miklir fyr­ir­varar voru gerðir allt mat sem fór fram.

Samkvæmt þeirri áætlun sem lagt var upp með í neyð­ar­lög­unum og við stofnun nýju bank­anna var slíkt verð­mat nauð­syn­legt. Kröfu­haf­arnir áttu að fá allt umfram­virði þeirra eigna sem færðar voru til nýju bank­anna til banka með skulda­bréfi þegar búið væri að leggja mat á þær. Eign­irnar voru sann­ar­lega færðar yfir á lágu virði. Það má segja að gef­inn hafi verið afsláttur af þeim. Sá afsláttur var ekki hugs­aður sem var­an­legur afsláttur. Alltaf stóð til að virð­is­aukn­ingu, eigna umfram það sem þurfti til að mæta inn­stæðum, yrði skilað til kröfu­haf­anna.

Deloitte fór fram á skaðleysi vegna matsins


Í bráða­birgða­stof­nefna­hags­reikn­ingum bank­anna þriggja, sem gerðir voru 14. nóv­em­ber 2008, var gert ráð fyrir að eignir þeirra yrðu 2.886 millj­arða króna virði. Þar af myndi ríkið leggja þeim til 385 millj­arða króna og síðan yrðu gefin út skulda­bréf til gömlu bank­anna sem greiðsla fyrir mis­mun eigna og skulda. Virði þeirra skulda­bréfa átti að vera 1.153 millj­arðar króna. Deloitte var síðan fengið til að leggja mat á yfir­færðar eignir og skuldir. Því mati var skilað 22. apríl 2009 og gaf til kynna að end­ur­heimtur lána sem færð voru yfir í nýju bank­anna yrðu 47-55 pró­sent. Það þýddi að útgefin skulda­bréf til gömlu bank­anna yrðu sam­tals 442-766 millj­arðar króna. Þau skulda­bréf áttu að greið­ast í erlendum gjald­eyri. Deloitte fór hins vegar fram á algjört skað­leysi. Samkvæmt því gat fyr­ir­tækið ekki undir neinum kring­um­stæðum verið gert ábyrgt fyrir mat­inu ef kröfu­hafar myndu rengja það fyrir dóm­stólum.

Kröfu­hafar bank­anna voru ekki sáttir við þá áætlun sem lögð hafði verið fram. Þeir töldu hana ein­hliða og að þeir hefðu ekki haft mögu­leika á að gæta hags­muna sinna með almenni­legum hætti. Íslenskir ráða­menn voru smeykir um að kröfu­haf­arnir gætu, á grund­velli inn­lends og alþjóð­legs skipta­réttar, eða á eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrá­ar­innar, farið með deil­una fyrir dóm­stóla. Þar hrædd­ust þeir ekki ein­ungis mögu­legt tap heldur einnig áhrif þess að draga draga fjár­mögnun nýju bank­anna úr hófi. Ef ekki tæk­ist að fjár­magna þá og hefja vinn­una við að end­ur­skipu­leggja atvinnu­lífið yrðu áhrif krepp­unnar mun verri en þegar stefndi í. Auk þess blasti við sú blá­kalda stað­reynd að íslenska ríkið var ein­fald­lega ekki í stakk búið til að fjár­magna alla bank­ana þrjá. Það hefði þýtt auka­skuld­setn­ingu upp á nokkur hund­ruð millj­arða króna og auka vaxta­kostnað sem myndi fylgja henni.

Þrjár leiðir færar


Í huga Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, sem tók við emb­ætti fjár­mála­ráð­herra snemma árs 2009, og þeirra sem unnu náið með honum gerðu þessar aðstæður það að verkum að þrjár leiðir voru færar: Að sam­komu­lag næð­ist við kröfu­hafa um end­an­legt virði þeirra eigna sem teknar voru yfir í nýju bank­anna, að gerð­ar­dómur yrði feng­inn til að skera úr um slíkt eða að haldið yrði áfram með ein­hvers konar upp­gjörs- og mats­ferli, þar sem við­bót­ar­virði eigna yrði skilað í þrota­búið. Þeim þótti lang­skyn­sam­leg­asta leiðin á þeim tíma að ná sam­komu­lagi við kröfu­haf­ana. Sú afstaða stjórn­valda leiddi til þess að end­ur­reisn­ar­á­ætlun banka­kerf­is­ins var breytt þannig að ákveðið var að reyna að ná nið­ur­stöðu um virði eigna með samn­ingum frekar en með ein­hliða ákvörðun.

[caption id="attachment_13420" align="alignnone" width="1024"] Stein­grímur J. Sig­fús­son var fjár­mála­ráð­herra þegar samið var um fram­tíð­ar­eign­ar­hald á við­skipta­bönk­unum.[/caption]

Vildu koma bönkunum hratt í gang


Fjár­mála­ráðu­neytið sá um við­ræður fyrir hönd nýju bank­anna. Til að leiða þær var Þor­steinn Þor­steins­son ráð­inn, vanur samn­inga­maður sem hafði meðal ann­ars starfað lengi hjá Norræna fjár­fest­inga­bank­anum. Síðar var alþjóð­lega ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Hawkpoint einnig fengið til að koma að við­ræð­unum fyrir Íslands hönd. Hinum megin við borðið sátu skila­nefndir gömlu bank­anna, studdar af full­trúum kröfu­hafa.

Á þessum tíma­punkti, snemma árs 2009, var fyrsta hreina tveggja flokka vinstri stjórnin nýsest að völdum á Íslandi. Stein­grímur J. Sig­fús­son fékk það verk­efni að bera ábyrgð á end­ur­skipu­lagn­ing­ar­vinn­unni. Það blasti við Stein­grími og stjórn­völdum að það yrði að koma bönk­unum í gang strax. Þeir yrðu að fá end­an­legan efna­hags­reikn­ing og þá yrði að fjár­magna hratt og örugg­lega. Án þess yrði ekk­ert tekið á vanda­málum atvinnu­lífs­ins og ein­stak­linga.

Deutsche Bank átti mikið undir


Samn­inga­við­ræð­urnar fóru að mestu leyti fram í Reykja­vík í hús­næði rík­is­sátta­semj­ara en einnig í London í hús­næði Hawkpoint og undir lokin í Reykja­vík í höf­uð­stöðvum LOGOS, sem var ráð­gjafi skila­nefnda Glitnis og Lands­bank­ans. Við­ræð­urnar voru eðli­lega afar flóknar, bæði út frá fjár­málum og lög­fræði. Að þeim kom fjöldi ráð­gjafa fyrir hönd allra sem þær snertu. Þar á meðal voru fjöl­margar lög­fræði­stofur, bæði inn­lendar og erlendar, og alþjóð­legir bankarisar á borð við UBS, Morgan Stanley, Barclays og Deutsche Bank.

Deutsche Bank átti mikið undir á Íslandi. Full­trúar hans höfðu kvartað mikið við íslensk stjórn­völd vegna neyð­ar­laga­setn­ing­ar­innar sem gerði inn­lán að for­gangs­kröfum. Vegna stærðar sinnar í kröfu­hafa­hópnum og mik­illa tengsla við Ísland um margra ára skeið var aðgengi full­trúa Deutsche Bank að íslenskum ráða­mönnum meira en margra ann­arra. Bankinn gat því lagt fram ýmsar „lausnir“ á Íslands­vand­anum sem aðrir fengu ekki tæki­færi til að leggja fram.

Ein slík lausn, sem virt­ist fylgja tölu­verð alvara, var að bank­inn myndi koma inn í og leysa Icesave-málið þegar deilur um það stóðu sem hæst. Deutsche Bank lagði til að bank­inn myndi yfir­taka allar Icesave-inn­stæð­urnar ásamt eignum á móti, eða gamla Lands­bank­ann allan, og gera síðan upp lág­marks­inn­stæður við Breta og Hol­lend­inga, sem höfðu þá þegar greitt slíkar út til Icesave-reikn­ings­eig­enda í lönd­unum tveim. Samhliða þessu yrði end­ur­samið um greiðslur á við­bót­ar­greiðslum land­anna til inn­stæðu­eig­enda umfram lág­marks­trygg­ing­una (e. top-up) sem höfðu einnig verið greiddar út og gerðar að for­gangs­kröfum. Deutsche Bank og fleiri kröfu­hafar voru á því að umfram­greiðsl­urnar ættu aldrei að fá for­gang og að hægt yrði að auka end­ur­heimtir almennra kröfu­hafa með því að láta reyna á það. Af þessu varð aldrei.

[caption id="attachment_13888" align="alignnone" width="1024"] Deutsche Bank átti mikið undir í íslenska efna­hags­hrun­inu.[/caption]

Skrifað undir sátt


Þann 20. júlí 2009 var skrifað undir ramma­samn­ing (e. Head of Terms) við Glitni og Kaupþing um hvernig ætti að ná sátt við kröfu­haf­ana. Sam­bæri­legur samn­ingur var gerður við Lands­bank­ann 10. októ­ber sama ár. Ástæður þess að ekki var samið saman við alla bank­ana sam­tímis var að í kröfu­hafa­hópi Glitnis og Kaup­þings voru skulda­bréfa­eig­endur ráð­andi. Hjá Lands­bank­anum var ráð fyrir því gert að meiri líkur en minni væru á því að ekki myndi nást að end­ur­heimta nægi­lega mikið af pen­ingum til að gera upp við for­gangs­kröfu­hafa, sem voru að mestu leyti Icesave-inn­stæðu­eig­endur.

Í grófum dráttum sner­ist sam­komu­lagið við kröfu­hafa Glitnis og Kaup­þings um að þrotabú bank­anna, fyrir hönd kröfu­hafa, myndu eign­ast uppi­stöð­una í nýju bönk­unum sem stofn­settir voru utan um hluta eigna og skulda þeirra. Þannig myndi við­bót­ar­virði þeirra eigna sem færðar voru yfir í nýju bank­anna alltaf renna til kröfu­haf­anna með ein­hverjum hætti, án þess að það þyrfti að fara mats­leið til þess. Á móti losn­aði íslenska ríkið undan því að fjár­magna þessa tvo banka. En það sem mestu skipti á þessum tíma­punkti var að ef kröfu­haf­arnir gengju að sam­komu­lag­inu myndu bank­arnir fljót­lega verða full­fjár­magn­aðir og til­búnir til að takast á við þau umfangs­miklu end­ur­reisn­ar­verk­efni sem blöstu við í atvinnu­líf­inu.

[quote font="0" align="right"]Ritað var undir aðal­samn­inga við Glitni og Kaupþing í byrjun sept­em­ber, en síðar varð nauð­syn­legt að gera tvo breyt­ing­ar­samn­inga við Kaupþing. Samkvæmt þeim eign­uð­ust kröfu­hafar 87 pró­sent í Arion banka og 95 pró­sent í Íslands­banka. [/quote]

Ritað var undir aðal­samn­inga við Glitni og Kaupþing í byrjun sept­em­ber, en síðar varð nauð­syn­legt að gera tvo breyt­ing­ar­samn­inga við Kaupþing. Samkvæmt þeim eign­uð­ust kröfu­hafar 87 pró­sent í Arion banka og 95 pró­sent í Íslands­banka. Afgang­ur­inn yrði í eigu íslenska rík­is­ins. Þegar samn­ing­unum lauk kom í ljós að þær eignir sem færðar höfðu verið frá Glitni til Íslands­banka voru 52 millj­örðum krónum verð­mæt­ari en þær skuldir sem færðar voru þangað. Íslands­banki gaf því út skulda­bréf fyrir þeirri fjár­hæð til þrota­bús­ins. Hins vegar reynd­ust þær eignir sem voru færðar til Arion banka 38 millj­örðum krónum verð­minni en yfir­færðar skuldir. Kaupþing þurfti því að gefa út skulda­yf­ir­lýs­ingu til Arion banka. Glitnir not­aði skulda­bréfið sitt til að eign­ast sinn 95 pró­senta hlut í Íslands­banka en Kaupþing þurfti að leggja Arion banka til nýjar eignir til að greiða fyrir 87 pró­senta eign­ar­hlut sinn, sem var lág­marks­eign­ar­hlutur sam­kvæmt þeim mörkum sem íslensk stjórn­völd höfðu sett í við­ræð­unum.

Annars konar samkomulag um Landsbankann


Eins og áður sagði var staðan önnur hjá Lands­bank­anum. Þar var kröfu­hafa­hóp­ur­inn öðru­vísi sam­settur, líkur á almennum end­ur­heimtum taldar minni, auk þess sem þáver­andi fjár­mála­ráð­herra hafði engan áhuga að láta stærsta end­ur­reista bank­ann frá sér. Ríkið skyldi eiga hann áfram. Það var póli­tísk ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar sem sat að völdum.

Sam­komu­lagið sem gert var með Lands­bank­ann og var und­ir­ritað í des­em­ber 2009 var þannig að ríkið hélt 81,3 pró­senta hlut í bank­anum en kröfu­haf­arnir fengu 12,7 pró­sent. Samhliða gaf Lands­bank­inn hins vegar út tvö skulda­bréf. Annað, sem var upp á 260 millj­arða króna í erlendri mynt, átti að greið­ast til baka fyrir árs­lok 2018 vegna yfir­tek­inna eigna. Hitt, sem var svo­kallað skil­yrt skulda­bréf, var bundið við virð­is­þróun eigna í tveimur eigna­söfnum, Pegasus og Pony. Annað er safn lána til stærri fyr­ir­tækja og hitt til smærri fyr­ir­tækja.

[caption id="attachment_13426" align="alignnone" width="640"] Starfs­menn Lands­bank­ans fá hlut í honum fyrir að standa sig vel við að inn­heimta tvö lána­söfn.[/caption]

Lána­söfnin voru færð yfir í nýja Lands­bank­ann á lágu verði. Ef virð­is­aukn­ing ætti sér stað átti nýi Lands­bank­inn að fá 15 pró­sent hennar en 85 pró­sent áttu að renna til þrota­bús gamla bank­ans. Sá hluti sem átti að fara til þrota­bús­ins átti að greið­ast með skil­yrta skulda­bréf­inu. Ef virði þess næði 92 millj­örðum króna fyrir árs­lok 2012 átti þrota­búið auk þess að afhenda eign­ar­hlut sinn í nýja bank­anum til rík­is­ins og nýja bank­ans.

Starfsmenn fengu hlut gefins


Skemmst er frá því að segja að eign­irnar voru mun verð­meiri en reiknað var með í upp­hafi. Í apríl 2013 var skil­yrt skulda­bréf upp á 92 millj­arða króna gefið út til þrota­bús­ins og um 17 pró­senta hlutur var í stað­inn afhentur íslenska rík­inu, sem á þar með 98 pró­senta hlut í nýja Lands­bank­anum. Það sem upp á vantar, tveggja pró­senta hlutur, rann til Lands­bank­ans og á þar að mynda stofn fyrir kaupauka­kerfi starfs­manna. Virði þess hlutar var um 4,5 millj­arðar króna í lok árs 2012. Í yfir­lýs­ingu sem bank­inn sendi frá sér vegna kaupauka­kerf­is­ins snemma árs 2010 sagði að af „frum­kvæði kröfu­hafa var gert sam­komu­lag á milli skila­nefndar Lands­banka Íslands hf. (gamla bank­ans), fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins f.h. rík­is­sjóðs og Lands­bank­ans (NBI hf.) um að hluti hluta­bréfa í NBI hf. sem skila­nefndin heldur nú á, myndi stofn fyrir kaupauka­kerfi sem næði til allra starfs­manna“.

Kaupauka­kerfið átti þannig að verða verð­laun fyrir starfs­fólk bank­ans ef það næði að inn­heimta lánin sem voru inni í Pegasus og Pony söfn­unum með meiri ávinn­ingi fyrir þrota­búið. Eins konar rukk­un­ar­verð­laun.

Þessi skulda­bréf sem samið var um að greiða kröfu­höfum Lands­bank­ans í erlendum gjald­eyri voru í upp­hafi árs 2013 ein sýni­leg­asta ógnin sem til staðar var gagn­vart íslenskum fjár­mála­stöð­ug­leika. Íslend­ingar voru ein­fald­lega ekki að fram­leiða nægi­lega mik­inn gjald­eyri til að hægt yrði að greiða þessa hund­ruði millj­arða króna. End­ur­samið var um greiðslu þeirra í lok árs 2014.

Skilyrt verðmætaaukning upp á 215 milljarða


Eftir að samið hafði verið við kröfu­haf­ana um bank­ana þrjá og verð­meta eignir þeirra var stof­nefna­hags­reikn­ingur þeirra 1.760 millj­arðar króna. Auk þess var svokölluð skil­yrt verð­mæta­aukn­ing upp á 215 millj­arða króna. Í ein­földu máli sner­ist hún um að auknum inn­heimtum af ýmsum lánum til fyr­ir­tækja var skipt á milli þrota­bú­anna og nýju bank­anna. Samtals gerðu þetta eignir upp á tæp­lega 2.100 millj­arða króna. Bank­arnir reynd­ust því vera minni en lagt var upp með í byrjun en þeir voru samt mjög vel fjár­magn­aðir og til­búnir til að takast á við þær miklu afskriftir sem óhjá­kvæmi­lega myndu fylgja end­ur­skipu­lagn­ingu á rúm­lega 2/3 hluta íslensks atvinnu­lífs."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár