Skýrsla Brynjars: Útilokað að taka undir sjónarmið Víglundar

„Útilokað er að taka undir þau sjón­ar­mið“ Víg­lundar Þor­steins­sonar um að bráða­birgða­mat FME frá októ­ber 2008 hafi verið end­an­legur úrskurður um verð­mæti eign­anna sem færðar voru yfir til nýju bank­anna. Þetta kemur fram í skýrslu Brynjars Níels­sonar um málið, sem birt­ist á vef Alþingis rétt í þessu.

Lestu skýrsl­una í heild sinni.

„Eignir gömlu bank­anna eru varðar af eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár­innar. Fráleitt væri því að ætla þeim, sem tekur eignir eign­ar­námi, að meta verð­mæti þeirra og án allrar aðkomu þess sem þola þarf eign­ar­námið. Enda verður ekki annað ráðið af gögnum máls­ins en að hér hafi ein­göngu verið um við­mið að ræða en ekki end­an­legt mat á verð­mæti eign­anna,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár