Lýsa yfir van­trausti á May

Fjörutíu og átta þing­menn breska Íhalds­flokks­ins hafa lýst yfir van­trausti á Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra og leið­toga flokks­ins. Í kvöld munu því þing­menn Íhalds­flokks­ins greiða atkvæði um hvort þeir beri traust til for­sæt­is­ráð­herr­ans.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands
Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands Mynd: EPA

Þingmenn breska Íhalds­flokks­ins greiða atkvæði í kvöld um van­traust­s­til­lögu á Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra og leið­toga flokks­ins. Fimmtán pró­sent þing­manna, fjöru­tíu og átta tals­ins, fóru fram á atkvæða­greiðsl­una. Frá þessu er greint á vef BBC.

[links]Theresa May hefur verið gagn­rýnd fyrir fram­göngu sína í Brexit mál­inu, útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu. Greiða átti atkvæði um útgöngu­samn­ing May í þing­inu í gær en May frestaði atkvæða­greiðsl­unni þegar ljóst var að hann yrði kol­felldur. [adspot]

Samkvæmt reglum Íhalds­flokks­ins geta 15 pró­sent þing­manna flokks­ins kraf­ist for­manns­kjörs ef þeir skrifa for­manni nefndar almennra Íhalds­þing­manna bréf um að þeir lýsi van­trausti á leið­tog­ana. Í það minnsta 48 bréf hafi borist sam­kvæmt BBC. Margir af hennar eigin þing­mönnum eru afar ósáttir við Brexit-samn­ing hennar og fjöldi ráð­herra og þing­manna hafa sagt af sér sem mót­mæli við inni­hald samn­ings­ins. 

Atkvæða­greiðslan á að fara fram á milli klukkan 18 og 20 í dag sam­kvæmt BBC. Þingmenn Íhalds­flokks­ins munu þá greiða atkvæði um hvort þeir beri traust til for­sæt­is­ráð­herr­ans. Til að halda velli þarf May stuðn­ing að minnsta kosti 158 þing­manna Íhalds­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár