Sænskir ráðherrar í læri hjá Dönum

Á meðan morðum sem framin eru með skot­vopnum fækkar í mörgum Evr­ópu­löndum fjölgar þeim í Svíþjóð. Í Danmörku fækkar slíkum morðum og nú vilja Svíar læra af Dönum hvernig hægt sé að draga úr glæpum af þessu tagi.

Fólk lagði blóm og kerti á götu í Stokkhólmi til minningar um sænska rapparann Einar sem var skotinn til bana í október í fyrra.
Fólk lagði blóm og kerti á götu í Stokk­hólmi til minn­ingar um sænska rapp­ar­ann Einar sem var skot­inn til bana í októ­ber í fyrra. Mynd: EPA

Sænsk stjórn­völd hafa þungar áhyggjur af síauknum fjölda þeirra sem árlega lát­ast, eða sær­ast alvar­lega, af völdum skot­vopna. Og átökum þar sem skot­vopn koma við sögu. Og þær áhyggjur eru ekki ástæðu­lausar, Svíar skera sig úr meðal ríkja Evrópu í þessum efnum.

Í Svíþjóð er hlut­fall þeirra sem lát­ast eftir að hafa orðið fyrir skoti 4 dauðs­föll á hverja milljón íbúa en með­al­talið í Evrópu er 1,6 á hverja milljón íbúa. Mis­mun­ur­inn er slá­andi. Tölurnar eru byggðar á rann­sókn sænsku stofn­un­ar­innar, Brå, sem vinnur að því að draga úr glæpum og afbrotum. Svíþjóð trónir nú á toppi þeirra ríkja þar sem flest ung­menni (und­an­tekn­inga­lítið karl­menn) á aldr­inum 20-29 ára lát­ast eftir að hafa orðið fyrir skoti. Í þessum ald­urs­hópi í Svíþjóð hefur hlut­fallið auk­ist ár frá ári frá síð­ustu alda­mótum og er nú 18 á hverja milljón íbúa en er frá 0 upp í 4 í flestum öðrum Evr­ópu­löndum. Í Hollandi, sem er næstefst í þessum hópi, er hlut­fallið 6 á hverja milljón íbúa.

[adspot]

Ástæðurnar uppgjör í undirheimum

Að sögn Klöru Hradilova Selin sem hafði umsjón með rann­sókn Brå er skýr­ingu þess­arar miklu aukn­ingar í Svíþjóð að stærstum hluta að finna í upp­gjöri glæpa­gengja þar sem tek­ist er á um „eit­ur­lyfja­mark­að­inn“ þar sem miklir fjár­munir eru í húfi. „Slík átök eru ekki ein­skorðuð við Svíþjóð en hafa ein­hverra hluta vegna ekki haft sömu áhrif í öðrum löndum í Evrópu,“ sagði Klara Hradilova Selin í við­tali.

Nú um stundir er Stokk­hólmur sú borg í Svíþjóð þar sem skotárásir eru tíðastar, á tíma­bili tróndi Gauta­borg á þessum toppi en í Malmö þar sem átök af þessu tagi voru mjög tíð hefur þeim fækkað. Dag­blaðið Sydsvenskan greindi nýlega frá því að í Malmö hafi skotárásir náð hámarki árið 2017, það ár voru þær sam­tals 65 tals­ins. Árið 2020 voru slíkar árásir 20 tals­ins. Þetta er mikil breyt­ing þótt lög­reglu og borg­ar­yf­ir­völdum þyki að enn betur þurfi að gera. Ástæðu þess­arar fækk­unar í Malmö telja yfir­völd að þakka megi verk­efn­inu „Sluta skjut“ sem sett var á lagg­irnar árið 2018.

Ólíkt í Svíþjóð og Danmörku

Í rann­sókn­ar­skýrslu Brå kemur fram að í Danmörku fjölg­aði þeim sem lét­ust eða særð­ust alvar­lega á árunum 2012 til 2015, en fækk­aði síðan. Í tölum danska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins kom fram að um það bil 10 pró­sent dauðs­falla af völdum skot­vopna átti sér stað í heimi glæpa­gengj­anna. Í öðrum löndum Evrópu voru töl­urnar svip­aðar. Í Svíþjóð var þessi tala langtum hærri, 25 pró­sent. Sjö af hverjum tíu morðum af völdum skot­vopna í Svíþjóð eiga sér stað í stór­borg­unum Stokk­hólmi, Gauta­borg og Malmö. Flestar í Stokk­hólmi. Skotárásir í stór­borg­unum tengj­ast iðu­lega hefnd, að gjalda líku líkt. Slíkt er ekki ein­skorðað við Svíþjóð.

Ekki heldur sú stað­reynd að skotárásir eiga sér oft­ast stað í hverfum sem yfir­völd skil­greina sem við­kvæm ( lág laun, atvinnu­leysi, blönduð þjóð­erni) og ólög­leg sala vopna fer fram.

Sænsk stjórnvöld horfa til Danmerkur

Þegar Magda­lena And­ers­son (sós­í­alde­mókrati) varð for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, í nóv­em­ber á síð­asta ári, lýsti hún því yfir að eitt helsta bar­áttu­mál hennar yrði bar­átta gegn glæpa­gengjum og svoköll­uðum sér­sam­fé­lögum sem þrif­ist hafa til hliðar við sam­fé­lagið og hafa önnur við­mið og lög­mál en sam­fé­lagið að öðru leyti. Í þessum efnum hafa sænsk stjórn­völd horft yfir sundið til Dan­merkur, einkum til starf­semi sem gengur undir nafn­inu SSP (Skole, Social for­valtn­ing og Politi). SSP er ekki nýtt af nál­inni en hefur verið eflt til muna á síð­ustu árum. Starf­semi SSP byggir á sam­starfi, skóla, félags­mála­yf­ir­valda og lög­reglu. Allt mið­ast við að fyr­ir­byggja og draga úr afbrotum ung­menna undir 18 ára aldri.

Sænskir ráðherrar í námsferð

Á þriðju­dag­inn í lið­inni viku (21. júní) fóru tveir sænskir ráð­herrar í náms­ferð (orða­lag ann­ars ráð­herr­ans) til Dan­merkur. Þetta voru þau Lena Hal­len­gren félags­mála­ráð­herra og Anders Ygeman ráð­herra inn­flytj­enda­mála. Þau hittu emb­ætt­is­menn, starfs­fólk félags­mála­stofn­ana og ýmsa fleiri. Sænsku ráð­herr­arnir sem vörðu öllum deg­inum í náms­ferð­ina sögðu að Svíar hefðu gert eitt og annað til að draga úr glæp­a­starf­semi. „Við höfum á síð­ustu 10 – 15 árum ein­beitt okkur að harð­ari refs­ingum en hins vegar ekki gert nægi­lega mikið til að upp­ræta sam­fé­lög ein­stakra hópa (parall­el­sam­fundene). Til að berj­ast gegn glæpa­gengjum verðum við að berj­ast gegn kyn­þátta­að­skiln­aði. Þarna höfum við sofið á verð­inum,“ sagði Anders Ygman.

[adspot]

Verða að berjast gegn kynþáttaaðskilnaði

Sænsku ráð­herr­arnir greindu frá því að þar í landi hefðu refs­ingar verði hertar í tíð núver­andi rík­is­stjórnar. Refsing fyrir að eiga óskráð og ólög­leg vopn er nú tveggja ára fang­elsi. Þetta hefur leitt til þess að mun fleiri en áður sitja nú inni og það hefur mikil áhrif. „Vit­neskjan um refs­ing­una fyrir að eiga ólög­legt vopn hefur mikil áhrif,“ sagði Lena Hal­len­gren.

„Við höfum á síð­ustu 10 – 15 árum ein­beitt okkur að refs­ingum en hins vegar ekki gert nægi­lega mikið til að upp­ræta sam­fé­lög ein­stakra hópa (parall­el­sam­fundene). Til að berj­ast gegn glæpa­gengjum verðum við að berj­ast gegn kyn­þátta­að­skiln­aði. Þarna höfum við sofið á verð­inum,“ sagði Anders Ygeman. Og bætti við „fyr­ir­byggj­andi aðgerðir skipta mestu, þegar litið er til lengri tíma“.

Lærdómsrík ferð

Sænsku ráð­herr­arnir voru sam­mála um að náms­ferðin hefði verið lær­dóms­rík og nefndu einkum SSP. Þeir voru líka á einu máli um að upp­ræt­ing kyn­þátta­að­skiln­aðar og hinna svoköll­uðu hlið­ar­sam­fé­laga væri mjög sterkt vopn í upp­ræt­ingu glæpa og ofbeldis. „Þarna eigum við Svíar margt ólært og það hefur náms­ferðin sann­fært okkur um, enn betur en áður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár