Ógnvænlegur sóknarher Argentínu

Ísland stendur frammi fyrir erf­iðu verk­efni á HM í Rúss­landi, þegar kemur að því að hemja sókn­ar­línu Argent­ínu.

Argent­ína hefur valið 35 manna hóp fyrir HM. Þar er góður leik­maður í öllum stöðum, en sókn­ar­her­inn hefur aldrei verið sterk­ari en núna. Skera þarf hóp­inn niður í 23 leik­menn fyrir 4. júní.

Fátt kom á óvart í vali á hóp Argent­ínu. Nema þá helst að þjálf­ar­inn, Jorge Sampoli, hafi ákveðið að velja Mauro Icardi frá Inter og Paulo Dybala frá Juventus.

Sagði þá passa illa inn í leikkerfin

Fyrir rúmum mán­uði síðan lét hann hafa eftir sér að lík­lega myndi hann ekki velja þá í hóp­inn, þar sem þeim hefur gengið illa að aðlag­ast leik­skipu­lag­inu sem Sampoli vill spila. Hann hefur spilað tvö leikk­erfi mest á sínum þjálf­ara­ferli hjá Argent­ínu.

Annars vegar 4-3-3 og hins vegar 3-3-3-1, eða 3-6-1, eftir því hvernig það er skil­greint.

Í því leikk­erfi hefur Gonzalo Higuaín, frá Juventus, verið fremsti maður, og Lionel Messi í frjálsu hlut­verki, sem dæmi­gerð argentísk „tía“ sem stýrir sókn­ar­leik liðs­ins. Í því hlut­verki hefur borið liðið á herðum sínum, oft á tíðum, og dregið það áfram til sig­urs þegar það nauð­syn­lega þarf.

Það verður að koma í ljós hvernig loka­hóp­ur­inn verður, en ljóst er að sam­keppnin í sókn­ar­lín­unni er hörð.

Raða inn mörkum á Ítalíu...

Icardi og Dybala end­uðu tíma­bilið vel og náðu að tryggja sér sæti í hópnum. Þeir voru báðir meðal þriggja marka­hæstu manna í ítölsku Sería-A deild­inni. Icardi skor­aði 28 mörk en Dybala 22. Í heild­ina skor­aði Icardi 29 mörk á tíma­bil­inu, en Dybala 26. Higuaín var sjötti marka­hæsi maður deild­ar­innar með 16 mörk en í öllum keppnum voru mörkin 27. Þessir þrír skor­uðu því sam­tals 82 mörk á tíma­bil­inu.

Diego Perotti, leik­maður Roma, er einnig til­kall­aður í 35 manna hóp en hann skor­aði 11 mörk á tíma­bil­inu, þrátt fyrir að hafa verið lengi vel frá vegna meiðsla.

...og á Englandi

Í ensku úrvals­deild­inni á Argent­ína einn full­trúa sem er þegar kom­inn í hóp goð­sagna hjá meist­ur­unum í Manchester City, Sergio Aguero. Hann er marka­skor­ari af guðs náð, hefur raðað inn mörkum í ensku úrvals­deild­inni og er lík­lega sá Suður-Amer­íku­maður sem á hvað glæsi­leg­astan feril í enskum fót­bolta.

Á nýaf­stöðnu tíma­bili var Aguero þriðji marka­hæsti leik­maður deild­ar­innar á eftir Mo Salah hjá Liverpool og Harry Kane hjá Totten­ham, með 21 mark. Samtals skor­aði hann 31 mark í öllum keppnum.

Kóngurinn á Spáni

Á Spáni er síðan sjálfur dýr­lingur þeirra Argent­ínu­manna - hin eina sanna tía - Lionel Messi hjá Barcelona. Hann var marka­hæsti leik­maður Evrópu þetta árið með 47 mörk, þar af 34 mörk í deild­inni. Það þarf ekki að eyða mörgum orðum í að lýsa snilli þessa leik­manns, enda afreka­list­inn á ferli hans með hreinum ólík­indum.

Leikur Argent­ínu hefur oftar en ekki staðið algjör­lega og fallið með fram­lagi Messi, og þegar hann á slæman dag þá hafa aðrir leik­menn liðs­ins átt í erf­ið­leikum með að taka frum­kvæðið. Þetta hefur und­an­farin ár verið helsti veik­leiki liðs­ins.

Raðaði inn mörkum í Frakklandi

Margir bjugg­ust ekki við því að Angelo Di Maria, sem lengst af sínum ferli hefur spilað sem vinstri væng­maður, myndi spila stórt hlut­verk í liði PSG í frönsku deild­inni á þessu tíma­bili, en annað kom á dag­inn. Meiðsli lyk­il­manna, meðal ann­ars Bras­il­íu­manns­ins Neymars, gáfu honum fleiri tæki­færi en búist var við, og hann leysti stöðu í fram­lín­unni og inn á miðri miðj­unni.

Di Maria er þraut­reyndur, eftir að hafa spilað í fremstu röð meðal ann­ars með Man. Utd. og Real Madrid, áður en hann kom til PSG, og óx hann í hlut­verki sínu eftir því sem leið á tíma­bilið. Hann skor­aði 11 mörk í deild­inni og lagði upp 6 til við­bótar, en var einnig skæður í öðrum keppnum og urðu mörkin 22 þegar yfir lauk.

Hann er með leik­reynd­ari leik­mönnum Argent­ínu og hefur spilað 93 lands­leiki á ferli sínu. Hann er lyk­il­maður í sókn­ar­leik liðs­ins.

Þeir sjö leik­menn sem Sampoli valdi í 35 manna hóp­inn sem sókn­ar­her Argent­ínu skor­uðu sam­tals 193 mörk í Evr­ópu­bolt­anum í vetur, sé Di Maria tek­inn með í sókn­ar­her­inn. Oft hefur sóknin verið sterk hjá Argent­ínu, en lík­lega aldrei eins sterk og nú. Hverjir það verða sem þurfa að sitja heim, þegar hóp­ur­inn verður skor­inn niður í 23 leik­menn, verður að koma í ljós. Sampoli stendur frammi fyrir erf­iðum ákvörð­unum þegar að þessu kemur.

Það er ýmis­legt sem Ísland þarf að var­ast þegar liðin mæt­ast 16. júní á HM í Rúss­landi. Messi er þar ein­ungis hluti af ógn­væn­legu vopna­búri Argent­ínu­manna í sókn­ar­leiknum.

Auk Argent­ínu, eru Króatía og Nígería með Íslandi í riðli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár