„Evrópusambandið er bara ein risastór málamiðlunarfabrikka“

Björg­un­ar­pakki upp á 750 millj­arða evra var sam­þykktur í morg­unsárið eftir einar lengstu við­ræður Evr­ópu­sam­bands­ins. Öxull Þýska­lands og Frakk­lands er orð­inn skýr­ari innan ESB, nú þegar Bretar hafa stigið af svið­inu að mati pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði.

Macron og Merkel töluðu fyrir því að bróðurpartur björgunarpakkans yrði greiddur út í styrkjaformi.
Macron og Merkel töl­uðu fyrir því að bróð­ur­partur björg­un­ar­pakk­ans yrði greiddur út í styrkja­formi. Mynd: EPA

Blokka­myndun innan Evr­ópu­sam­bands­ins er orðin skýr­ari nú en áður að mati Dr. Eiríks Berg­manns pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst. Nú þegar Bretar hafa yfir­gefið sviðið er öxull­inn á milli Þýska­lands og Frakk­lands orð­inn skýr­ari, segir Eiríkur í sam­tali við Kjarnann.

„Það sem að ger­ist fyrst og fremst er að þessi öxull Þýska­lands og Frakk­lands verður enn skýr­ari heldur en þegar Bretar voru þarna sem þriðja hjólið undir þeim vagni. Síðan hefur verið að teikn­ast upp munur á milli þess­ara hópa mun skýrar, norð­urs­ins og suð­urs­ins, skýr­ari munur heldur en áður var. Hann varð aug­ljós í fjár­málakrís­unni en mun­ur­inn núna er sá að þá lágu lín­urnar dálítið skýrt milli norð­urs og suð­urs þar sem Þýska­land og Frakk­land tóku afstöðu með norðr­inu en núna eru þau í miklu meira mála­miðl­un­ar­hlut­verki þarna á milli og eru til dæmis tals­menn beinna styrkja en ekki bara lána­fyr­ir­greiðslna. Þarna er orðin ákveðin breyt­ing,“ segir Eiríkur.

Minna í styrki heldur en lagt var upp með

Líkt og Eiríkur segir töl­uðu Þjóð­verjar og Frakkar fyrir því að stór hluti björg­un­ar­pakk­ans yrði greiddur út í styrkja­formi. Í upp­haf­legri til­lögum Macron og Merkel var gert ráð fyrir að alls yrðu 500 millj­arðar evra greiddir út í styrkja­formi af alls 750 millj­örðum sem björg­un­ar­pakk­inn hljóðar upp á.

Mikið fór fyrir spar­sömu blokk­inni í umræðum síð­ustu daga sem tal­aði fyrir lána­fyr­ir­greiðslum til aðild­ar­ríkja í stað styrkja. Sparsama blokkin sam­anstendur jafnan af fjórum ríkjum; Hollandi, Aust­ur­ríki, Danmörku og Svíþjóð en í nýaf­stöðnum við­ræðum bætt­ist Finnland í hóp­inn. Svo fór að björg­un­ar­pakk­inn minnkar ekki að umfangi en alls verða 390 millj­arðar evra greiddar út í styrkja­formi og 360 millj­arðar ætl­aðar í lán.

Spurður að því hvort að ekki sé um mála­miðl­un­ar­nið­ur­stöðu að ræða segir Eiríkur: „Evr­ópu­sam­bandið er bara ein risa­stór mála­miðl­un­ar­fa­brikka. Þetta voru enda­lausar mála­miðl­anir milli þess­ara aðila til að finna ein­hverja lausn sem eng­inn er sáttur við en allir geta lifað við.“

Ríki sem brjóta aðildarskilyrði flækja málin

Eiríkur segir afstöðu ríkja í Austur Evrópu til mál­efna sem eru grund­vall­ar­skil­yrði fyrir aðild að sam­band­inu hafa flækt málin. „Síðan er ný vídd í þessu öllu saman sem gerir allt miklu flókn­ara og það er austrið. Þar ertu kom­inn með stjórn­völd víða sem hafa fært ríki sín bein­línis í and­stöðu við grund­vallar aðild­ar­skil­yrði að Evr­ópu­sam­band­inu hvað varðar rétt­ar­ríkið einkum og sér­ílagi og jafn­vel lýð­ræði að ein­hverju leyti og þess vegna þriðja atrið­inu sem eru mann­rétt­indi. Þetta eru grund­vall­ar­at­riði sem ríki verða að upp­fylla vilji þau vera aðilar að Evr­ópu­sam­band­inu.“

Eitt af því sem tek­ist var á um í við­ræð­unum var réttur þess­ara ríkja til þess að þiggja stuðn­ing úr björg­un­ar­pakk­anum. „Þessi blokk sem kallar sig spar­sömu blokk­ina, þau vildu setja stíf skil­yrði um að greiðslur úr sjóðum Evr­ópu­sam­bands­ins færu ekki til ríkja sem að gengju gegn grund­vall­ar­að­ild­ar­skilyðum um rétt­ar­ríkið. Og þetta var mik­ill ásteyt­ing­ar­steinn miklu fremur en upp­hæð­irnar sem um var að tefla,“ segir Eiríkur.

Málið sem tekið var fyrir á síð­ustu dögum krefst stuðn­ings allra ríkja sam­bands­ins og eru slíkar umræður yfir­leitt erf­ið­ari heldur en aðrar að sögn Eiríks. Sú mála­miðlun var gerð að vísa þeim atriðum er varða skil­yrði fyrir útgreiðslum í síð­ari umræður innan Evr­ópu­sam­bands­ins og því mun verða kosið um skil­yrðin síðar í meiri­hluta­kosn­ingu. Pólland og Ung­verja­land hafa því ekki neit­un­ar­vald varð­andi þau skil­yrði sem sett verða.

Evr­ópu­sam­bandið hafi nú þegar farið í aðgerðir gegn þessum ríkjum og virkjað svo­kall­aða sjö­undu grein sátt­mál­ans um Evr­ópu­sam­bandið. Verði nið­ur­staðan sú að þau brjóta ekki aðild­ar­skil­yrðin þá verður ekki hægt að beita þau neinum við­ur­lögum þegar kemur að útdeil­ingu vegna björg­un­ar­pakk­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár