Ekki útlit fyrir fæðuskort fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð vinnur að því að skil­greina nauð­syn­legar birgðir í land­inu hvað varðar fæðu­ör­yggi. Þing­maður Mið­flokks­ins spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort til greina komi að ríkið kaupi hrá­vöru til að tryggja fæðu­ör­yggi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag hvort rík­is­stjórnin og þjóðar­ör­ygg­is­ráð væru með plan til að bregð­ast við efna­hags­legum áhrifum inn­rásar Rússa í Úkraínu. Sig­mundur vís­aði meðal ann­ars í orð Joes Biden Banda­ríkja­for­seta á NATO-þingi í lið­inni viku þar sem hann sagði að vænta mætti fæðu­skorts á Vest­ur­löndum.

Sig­mundur sagð­ist von­ast eftir alvöru umræðu um fæðu­ör­yggi í fram­hald­inu, máli sem sam­flokks­mönnum hans hafi verið mjög hug­leikið. Annað mál á þing­fundi dags­ins er einmitt sér­stök umræða um fæðu­ör­yggi þjóð­ar­innar.

Aðgerðir til skamms og lengri tíma nauðsynlegar

For­sæt­is­ráð­herra sagði mik­il­vægt að bregð­ast við fæðu­ör­yggi til skemmri og lengri tíma. Nú þegar er hafin vinna við að skil­greina nauð­syn­legar birgðir í land­inu. „Ekki bara þegar kemur að fæðu­ör­yggi heldur líka þegar kemur að öðrum þáttum; lyfjum, íhlutum, eins og hátt­virtur þing­maður nefndi, sem skipta máli fyrir fram­leiðslu­greinar, sem og olíu.“

Katrín sagði mat líkt og þetta fara reglu­lega fram en að það liggi fyrir að Ísland sé við­kvæmara fyrir á sumum stöðum en öðrum. „Ég get nefnt sem dæmi að við sjáum okkur sjálfum ein­ungis fyrir um 1% af því korni sem við neytum. Það er auð­vitað það sem við sjáum fram á nú, að þessi inn­rás geti haft gríð­ar­leg áhrif á korn­fram­leiðslu í heim­inum,“ sagði Katrín. Ekki sé þó útlit fyrir að fæðu­skorts sé að vænta á því sviði fyrr en á næsta ári, sé litið til upp­lýs­inga frá alþjóð­legum stofn­unum á þessu sviði.

Varðandi lang­tíma­stefnu í þessum málum sagði Katrín að núver­andi rík­is­stjórn vilji efla inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu og vís­aði hún í auk­inn stuðn­ing til garð­yrkju­bænda. „Lang­tíma­stefnan á að vera sú að við séum í auknum mæli sjálfum okkur nóg þegar kemur að mat­væla­fram­leiðslu til að tryggja hér fæðu­ör­yggi. Í því fel­ast mikil sókn­ar­færi, að ég tel, fyrir Ísland, að horfa til auk­innar mat­væla­fram­leiðslu hér á landi, ekki bara fyrir okkar eigin neyslu heldur líka til útflutn­ings,“ sagði Katrín.

Ástandið hvatning til að flýta orkuskiptum

Sig­mundur sagð­ist ánægður með stefnu for­sæt­is­ráð­herra. „En vand­inn hefur oft verið sá að stefn­unni fylgja ekki alltaf aðgerðir,“ sagði Sig­mundur, sem ítrek­aði spurn­ingu sína um til hvaða aðgerða rík­is­stjórnin hyggst grípa til og hvort lækkun á olíu­verði, þó ekki nema tíma­bundin, kæmi til greina?

Þá spurði hann einnig hvort for­sæt­is­ráð­herra sé til í að að minnsta kosti velta því upp að íslenska ríkið kaupi hrá­vöru til að treysta stöð­una enn frekar.

For­sæt­is­ráð­herra svar­aði því ekki beint en sagði rík­is­stjórn­ina hafa sýnt að hún sé reiðu­búin til að grípa til ýmissa aðgerða til að bregð­ast við óvæntum atburðum á borð við stríðið í Úkraínu. Varðandi hækk­andi olíu­verð sagði for­sæt­is­ráð­herra það vera hvatn­ingu til að flýta orku­skiptum. „En ég tel líka mik­il­vægt að við mætum þessum afleið­ingum með aðgerðum sem bein­ast að til­teknum hópum, ekki endi­lega flötum aðgerðum sem dreifast jafnt á alla heldur einmitt svona mark­miðs­settum aðgerðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fæðuöryggi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár