Gætum orðið vör við raskanir og breyttar uppskriftir

„Það kann að vera að við verðum brátt vör við ein­hverjar rask­anir, verð­hækk­anir eða jafn­vel breyttar upp­skriftir,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Hún telur þó ekk­ert benda til á þessum tíma­punkti að fæðu­ör­yggi lands­ins sé ógnað.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Það hefur verið ákvörðun að byggja upp land­bún­að­inn á því að treysta á stöðugt fram­boð erlendis frá til þess að halda uppi fram­leiðslu á mik­il­vægum afurðum. „Með því að treysta á það að við fáum þau aðföng sem við þurfum erlendis frá höfum við ákveðið að byggja ekki upp inn­lenda korn­rækt, ekki fjár­fest í kyn­bótum eða öðrum þeim innviðum sem til þarf,“ skrifar Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra í grein í Morg­un­blað­inu í dag. Þessu segir hún hægt að breyta þannig að inn­lend korn­rækt leggi til aukið hlut­fall þeirra aðfanga sem þarf til þess að fæða Íslend­inga. Til þess þurfi að setja rétta hvata í kerfið. „Með auk­inni korn-rækt eflum við fæðu­ör­yggi.“

Hækkanir á áburð­ar­verði „sem eiga sér vart sögu­lega hlið­stæðu“ og inn­rás Rússa í Úkraínu hafa sett alþjóð­lega hrá­vöru­mark­aði í upp­nám, skrifar Svandís, og „nú birt­ast okkur verð­bólu­tölur frá Evrópu sem eiga sér ekki for­dæmi á þess­ari öld“.

[adspot]

Hún skrifar að eðli­lega hafi þetta vakið umræðu um það hver áhrifin kunni að verða hér á landi og jafn­vel hvort við munum fá öll þau aðföng sem við þurfum.

„Það kann að vera að við verðum brátt vör við ein­hverjar rask­anir, verð­hækk­anir eða jafn­vel breyttar upp­skriftir. Það er hins vegar ekk­ert sem bendir til þess á þessum tíma­punkti að aðfanga­keðjan rofni með þeim hætti að fæðu­ör­yggi Íslend­inga sé ógnað.“

Alþjóða­væð­ingin hefur haft í för með sér aukna hag­kvæmni í mörgu til­liti en kannski á kostnað fæðu­ör­yggis, heldur Svandís áfram. Það hafi verið ódýr­ara að flytja inn maís frá Úkraínu heldur en að rækta bygg á Íslandi. Og það hafi verið ódýr­ara að flytja inn áburð úr rúss­nesku gasi heldur en að fram­leiða hann hér. „Í þessum efnum þarf að ríkja eitt­hvert skyn­sam­legt jafn­vægi. Sé farin leið sjálfs­þurft­ar­bú­skapar lendum við í vand­ræðum.“

Unnið að viðmiðum innan þjóðaröryggisráðs

Í grein sinni tekur Svandís dæmi af Finnum sem hafi verið öðrum þjóðum framar í að hafa þjóðar­ör­yggi til hlið­sjónar við ákvarð­ana­töku og haldið í sínar stórar korn­geymslur og olíu­tanka. Meira að segja þeir, skrifar Svandís, reikna ekki með að geta verið sjálfum sér nógir um allt í lengri tíma.

Ráð­herr­ann skrifar að yfir þessi mál sé nú farið á vett­vangi þjóðar­ör­ygg­is­ráðs, þar sem sett verði við­mið um birgða­hald á mik­il­vægum aðföngum, elds­neyti, mat­vælum og lyfjum. „Þau við­mið þurfa að taka mið af þeim hættum sem eru hér á landi.“

Kanna hagkvæmni áburðarverksmiðju

Í Morg­un­blað­inu í dag er greint frá því að HS Orka, Fóð­ur­blandan og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga vinni að und­ir­bún­ings­rann­sókn á hag­kvæmni þess að reisa áburð­ar­verk­smiðju hér á landi. „Við erum háð óvið­ráð­an­legum aðstæðum í lönd­unum í kringum okkur og þurfum því að auka sjálf­stæði okkar í áburð­ar­fram­leiðslu,“ er haft eftir Eyjólfi Sig­urðs­syni, for­stjóra Fóð­ur­blönd­unar.

Áburð­ar­verk­smiðja rík­is­ins í Gufunesi hóf fram­leiðslu árið 1954 og allt til árs­ins 1995 hafði ríkið einka­leyfi á sölu á áburði á Íslandi. Það breytt­ist með EES-samn­ingnum og inn­flutn­ingur á áburði varð frjáls. Áburð­ar­verk­smiðjan var seld til einka­að­ila árið 1999. Starf­semin var lögð niður árið 2001.

Árna Finns­syni, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, líst illa á hug­myndir um að end­ur­vekja fram­leiðslu á áburði á Íslandi. „Ég held að svo­leiðis verk­smiðja myndi auka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda tölu­vert,“ sagði hann í sam­tali við Frétta­blaðið fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fæðuöryggi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár