Mynd: Pexels

Dauð atkvæði gætu gert stjórnarmyndun auðveldari

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er kom­inn aftur undir 40 pró­sent, nú þegar kjör­tíma­bilið er rúm­lega hálfnað. Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna dugar ekki til meiri­hluta en ekki vantar mikið upp á.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, nú þegar kjör­tíma­bilið er rúm­lega hálfnað, er kom­inn aftur niður fyrir 40 pró­sent, sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR sem fram­kvæmd var dag­anna 12.-19. ágúst. Alls segj­ast 38,8 pró­sent lands­manna styðja rík­is­stjórn­ina, sem er næst minnsti stuðn­ingur sem hún hefur mælst með á kjör­tíma­bil­inu. Botninum náði hún í nóv­em­ber í fyrra þegar stuðn­ing­ur­inn mæld­ist 37,9 pró­sent.

Sam­an­lagt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks mælist nú 41 pró­sent. Flokk­arnir þrír fengu 52,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum haustið 2017 og hafa því tapað 11,8 pró­sent af sam­eig­in­legu fylgi sínu.

Þar munar mestu um að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks hefur fallið úr 25,2 pró­sent í 19,1 pró­sent, eða um 6,1 pró­sentu­stig. Vinstri græn hafa líka tapað miklu – um 47 pró­sent – af fylgi sínu frá síð­ustu þing­kosn­ingum. Þá fékk flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans 16,9 pró­sent atkvæða en mælist nú með 11,5 pró­sent stuðn­ing. Það þýðir að 5,4 pró­sentu­stig hafa yfir­gefið Vinstri græn.

Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem er nálægt kjör­fylgi er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann fékk 10,7 pró­sent í októ­ber 2017 en mælist nú með 10,4 pró­sent fylgi. Þær breyt­ingar eru innan vik­marka.

Ekki langt frá meiri­hluta

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir eru þó ekki eins langt frá því að halda meiri­hluta á þingi og ætla mætti. Ef síð­asta könnun MMR yrði kosn­inga­nið­ur­staða myndu nefni­lega 8,6 pró­sent atkvæða lenda hjá flokkum sem næðu ekki að koma manni inn í þing, og því myndi fjöldi þing­manna sem fylgi ann­arra flokka skil­aði ýkj­ast sam­hliða. Flokkum sem sæti eiga á Alþingi myndi einnig fækka úr átta í sjö ef kosið yrði í dag.

Könnun MMR 12.-19. ágúst 2019:

  • Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæld­ist nú 19,1 pró­sent og mæld­ist 19,1 pró­sent í síð­ustu könnun.
  • Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mæld­ist nú 16,8 pró­sent og mæld­ist 12,4 pró­sent í síð­ustu könnun.
  • Fylgi Mið­flokks­ins mæld­ist nú 13,0 pró­sent og mæld­ist 12,4 pró­sent í síð­ustu könn­nun.
  • Fylgi Vinstri grænna mæld­ist nú 11,5 pró­sent og mæld­ist 12,5 pró­sent í síð­ustu könnun.
  • Fylgi Pírata mæld­ist nú 11,3 pró­sent og mæld­ist 14,1 pró­sent í síð­ustu könnun.
  • Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mæld­ist nú 10,4 pró­sent og mæld­ist 8,3 pró­sent í síð­ustu könnun.
  • Fylgi Við­reisnar mæld­ist nú 9,3 pró­sent og mæld­ist 9,9 pró­sent í síð­ustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólks­ins mæld­ist nú 4,1 pró­sent og mæld­ist 6,8 pró­sent í síð­ustu könnun.
  • Fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands mæld­ist nú 2,9 pró­sent og mæld­ist 3,4 pró­sent í síð­ustu könnun.
  • Fylgi ann­arra flokka mæld­ist 1,6 pró­sent sam­an­lagt.

Miðað við nið­ur­stöðu ágúst­könn­unar MMR myndu stjórn­ar­flokk­arnir fá 28-29 þing­menn og þyrftu ekki að bæta miklu við sig til að ná 32 manna meiri­hluta. Í ljósi þess að sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur hafa til­hneig­ingu til að reka árang­urs­ríkar kosn­inga­bar­áttur, og geta nýtt vel smurðar kosn­inga­vélar sínar til að hala inn atkvæði og þátt­töku í aðdrag­anda slíkra, er slík við­bót fjarri því óraun­hæf.

Næst stærsti flokkurinn en enginn turn

Sá flokkur sem hefur bætt mestu fylgi við sig frá kosn­ingum, miðað við nýj­ustu könnun MMR, er Sam­fylk­ingin. Fylgi hans hefur auk­ist um 4,7 pró­sentu­stig á þeim tæpu tveimur árum sem liðin eru frá kosn­ingum. Nú mælist fylgið 16,8 pró­sent, eða 39 pró­sent meira en síð­ast þegar kosið var. Þegar horft er ári lengur aftur í tím­ann, til haust­kosn­ing­anna 2016, er við­snún­ingur Sam­fylk­ing­ar­innar enn meiri. Þá var flokk­ur­inn nán­ast fall­inn af þingi með 5,7 pró­sent atkvæða. Eini kjör­dæma­kjörni þing­maður flokks­ins í þeim kosn­ingum var Logi Ein­ars­son, sem tók við for­mennsku í Sam­fylk­ing­unni að þeim loknum, en með honum komust tveir jöfn­un­ar­þing­menn inn. Frá þeim tíma hefur fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar því þre­fald­ast.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Flokk­ur­inn er þó langt frá þeim stað sem hann var árin eftir að hann var stofn­aður árið 200 til að vera stjórn­mála­turn vinstri- og jafn­að­ar­manna sem átti að veita Sjálf­stæð­is­flokknum mót­vægi. Í kosn­ing­unum 2003 fékk Sam­fylk­ingin til að mynda 31 pró­sent atkvæða og 29,8 pró­sent í fyrstu eft­ir­hruns­kosn­ing­unum, vorið 2009. Síðan þá hefur fylgi flokks­ins, sem þó mælist með því hæsta sem það hefur mælst í lengri tíma, næstum helm­ing­ast.

Gætu myndað fjögurra flokka stjórn

Píratar hafa, líkt og Sam­fylk­ingin, rokkað umtals­vert í könn­unum á kjör­tíma­bil­inu. Það fylgi sem stundum kemur til flokk­anna tveggja, en fer síðan frá þeim skyndi­lega, virð­ist þó að mestu flakka á milli þeirra. Píratar mæl­ast til að mynda nú með 2,8 pró­sentu­stiga minna fylgi en í júlí, á sama tíma og Sam­fylk­ingin bætir vel við sig. Píratar mæl­ast nú með 11,3 pró­sent fylgi, sem er 2,1 pró­sent meira en flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum 2017.

Viðreisn hefur líka bætt við sig á kjör­tíma­bil­inu og mælist nú með 9,3 pró­sent fylgi, sem er 2,6 pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu kosn­ingum.

Sam­an­lagt er fylgi þess­arra þriggja flokka, sem virð­ast stefna á stjórn­ar­sam­starf með fjórða og jafn­vel fimmta flokknum eftir næstu kosn­ingar vorið 2021, 37,1 pró­sent. Það er 9,1 pró­sentu­stigi meira en þeir fengu 2017.

Líklegt að þessi blokk myndi fá 25-26 þing­menn miðað við þessa nið­ur­stöðu, og að teknu til­liti til þeirra atkvæða sem myndu falla niður dauð, sem þýðir að hún þyrfti að finna sér sam­starfs­menn sem væru með að minnsta kosti sex þing­menn.

Bæði Vinstri græn (átta) og Fram­sókn­ar­flokkur (sjö) myndu geta gengið inn í slíkt sam­starf og myndað fjög­urra flokka rík­is­stjórn.

Þingmönnum myndi fækka um tvo

Í kosn­ing­unum 2016, sem áttu sér skamman aðdrag­anda vegna upp­reist æru-máls­ins sem sprengdi rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar eftir átta mán­aða setu, komu tveir nýir flokkar inn á þing.

Annar þeirra var Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sem náði þeim ótrú­lega árangri að ná í fleiri atkvæði en nokkur flokkur hefur náð í fyrstu kosn­ingum sínum á lýð­veld­is­tím­anum. Alls fékk Mið­flokk­ur­inn 10,7 pró­sent atkvæða.

Hinn flokk­ur­inn sem náði inn á þing þá í fyrsta sinn var Flokkur flokks­ins, sem fékk 6,9 pró­sent atkvæða og fjóra þing­menn kjörna. Þessir flokkar eru ansi nálægt hvorum öðrum í ýmsum áherslum, sem sést kannski best á því að þegar að Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son voru reknir úr Flokki fólks­ins vegna Klaust­ur­máls­ins þá gengu þeir til liðs við Mið­flokk­inn.

Flokkur Ingu Sæland mælist ekki inni á þingi samkvæmt nýjustu könnun MMR.
Flokkur Ingu Sæland mælist ekki inni á þingi sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR.

Flokkur fólks­ins mælist nú með 4,1 pró­sent stuðn­ing sem myndi ekki duga til að ná inn manni á þing. Sam­eig­in­legt fylgi þess­ara tveggja flokka nú, 17,1 pró­sent, minna en það var í kosn­ing­unum 2017, þegar þeir fengu 17,8 pró­sent atkvæða. saman eru þeir í dag með ell­efu þing­menn en Mið­flokk­ur­inn myndi lík­ast til fá níu ef kosið yrði í dag.

Sósíalistaflokkurinn nær illa flugi

Sós­í­alista­flokkur Íslands náði inn manni í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í fyrra, fékk 6,4 pró­sent atkvæða í höf­uð­borg­inni, og hristi þannig vel upp í stjórn­mála­lands­lag­inu.

Hann hefur aldrei náð að með yfir fimm pró­sent fylgi í könn­unum MMR frá því að fyr­ir­tækið hóf að mæla fylgi flokks­ins á lands­vísu í febr­úar síð­ast­liðnum. Á þeim tíma hefur fylgið mest farið upp í 4,5 pró­sent í apríl en er nú nálægt því minnsta sem hefur mælst, eða 2,9 pró­sent. Þó er vert að taka fram að Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur ekki kynnt til leiks fólks sem verður í fram­boði fyrir flokk­inn í næstu þing­kosn­ingum, sem fram fara að óbreyttu vorið 2021, og því fyr­ir­liggj­andi að snögg breyt­ing geti orðið á stuðn­ingi við flokk­inn falli sá mann­skapur í kramið hjá þeim hópum sem fiskað verður eftir á vinstri­væng stjórn­mál­anna.

Könnun MMR var fram­kvæmd 12. - 19. ágúst 2019 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 990 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár