Eitraða eplið Sýrland - Allra augu á Pútín

Sýrland er eitrað epli í alþjóða­stjórn­mál­unum í augna­blik­inu. Þolendur þeirrar stöðu eru íbú­arnir, sem í lok árs 2013 voru 22 millj­ónir, sam­kvæmt gögnum Alþjóða­bank­ans, en nú er talið að allt að 9,5 millj­ónir íbúa lands­ins séu á flótta, þar af um fimm millj­ónir ennþá innan landamæra Sýrlands. Meiri­hluti íbúa lands­ins þarf aðstoð og er fjölg­unin hröð í þeim hópi, enda landið að breyt­ast í stóran blóð­ugan víg­völl.

Að minnsta kosti hafa rúm­lega 4,5 millj­ónir manna hafa þegar flúið landið og hafa í örvænt­ingu reynt að kom­ast til Evrópu, sum hver alla leið til Mið-Evrópu, meira en tvö þús­und kíló­metra leið. Þessi átak­an­lega staða hefur birst Evr­ópu­ríkjum beint og milli­liða­laust, þegar fólkið nær áfanga­stað. Mörg hund­ruð þús­und manns í hverri viku freista þess á fá að hefja nýtt líf á nýjum stað, og kemur stór hluti þessa fólks frá Sýrlandi.

Umræð­urnar á alls­herj­ar­þing­inu eru í beinni útsend­ingu á Youtube rás Sam­ein­uðu þjóð­anna.

https://www.youtube.com/watch?v=S-YO6wabsLQ

Pútín og allir hinir


Í tengslum við alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem nú fer fram í sjö­tug­asta skipti, bein­ist kast­ljósið að Sýrlandi ekki síst. Þjóð­ar­leið­togar ríkja sem hafa nú þegar látið sig hern­að­ar­á­tök í land­inu varða hafa mis­mund­andi sýn á hlut­ina, og er afstaða Rússa til deil­unnar ekki síst það sem deilt erum. Vladímir Pútín, for­seti Rúss­lands, talar fyrir því að þjóðir heims­ins myndi sam­stöðu gegn upp­gangi Íslamska rík­is­ins, sem hefur farið fram með skeyt­ing­ar­lausu ofbeldi og eyði­legg­ingu í Sýrlandi, og nágranna­ríkjum einnig, ekki síst Írak og Afganistan. Þetta kom skýr­lega fram í ræðu hans í dag.

Aðrir upp­reisn­ar­hópar, sem starfa sjálf­stætt en með stuðn­ingi Íslamska rík­is­ins, gera það sama. Stjórn­ar­her Sýrlands, sem for­set­inn Bashar al-Assad stýrir, er með stuðn­ing Rússa og hefur notið góðs af vopna­búri rúss­neska hers­ins, einkum und­an­farin miss­eri. Rúss­neskar her­þotur hafa gert loft­árásir á valin skot­mörk í land­inu, þar sem talið er að Íslamska ríkið sé með bæki- og birgða­stöðvar. „Það þarf að mynda sam­stöðu um að berj­ast gegn Íslamska rík­inu og upp­gangi þess,“ lét Pútín hafa eftir sér í við­tali við CBS, í tengslum við opin­bera heim­sókn hans á alls­herj­ar­þingið til New York, þá fyrstu í tíu ár. Pútín styður stjórn­völd í Sýrlandi og segir her­inn þar í landi vera þann eina sem hafi lög­form­lega stöðu til þess að beita sér af afli gegn hryðju­verka­sam­tökum. Þess vegna þurfi að þjóðir heims­ins að „stilla sér upp með stjórn­ar­hernum í Sýrlandi“ eins og hann sagði orð­rétt í ræðu sinni í dag.

Einangraður í Austur-Evrópu og Sýrlandi


Við­var­andi við­skipta­þving­anir alþjóða­sam­fé­lags­ins, með Evr­ópu­sam­bands­ríki og Banda­ríkin í fremstu röð, hafa sett Rússa í þrönga stöðu. Ekki aðeins efna­hags­lega heldur ekki síður póli­tískt. Fram­ferði Rússa gagn­vart Úkraínu hefur verið harð­lega mót­mælt af Vest­ur­löndum og eru efna­hags­legar þving­anir teknar að bíta í rúss­neskan efna­hag. Ofan í mikla lækkun á olíu­verði hafa þving­an­irnar reynst land­inu þungar í skauti. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn metur þær á eitt til eitt og hálft pró­sent í árlegum hag­vexti.

Þjóð­ar­leið­togar helstu hern­að­ar­stór­velda á meðal Vest­ur­landa sjá hlut­ina í öðru ljósi en Rússar og vilja að Assad fari frá völdum. Honum er ekki treyst, og telja þeir að hann geti aldrei orðið hluti af póli­tískri lausn á borg­ar­stríð­inu í Sýrlandi. David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, ítrek­aði þessa skoðun sína í morgun, en Francois Hollande, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands, tók í sama streng í gær þegar hann stað­festi þátt­töku franska hers­ins í hern­að­ar­að­gerðum gegn Íslamska rík­inu í aust­ur­hluta Sýrlands. Leið­togar Banda­ríkj­anna, bæði Barack Obama for­seti og John Kerry utan­rík­is­ráð­herra, hafa marg­ít­rekað þá afstöðu að Assad sé ekki treystandi til að stýra hern­að­ar­að­gerðum í Sýrlandi. Það hafi sannað sig, og mik­il­vægt að hann fari frá.


Obama opens the door to a Syria deal with Russia and Iran report @ColumLynch and @John_hudson http://t.co/zXpFFTXQpD pic.twitter.com/eCWBVLQYzT


— Foreign Policy (@ForeignPolicy) Sept­em­ber 28, 2015


Einblína á lausnir


Ban Ki-Moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, var ákveð­inn þegar hann ávarp­aði þingið í morgun, og sagði að alþjóða­sam­fé­lagið gæti ekki horft fram­hjá hörmu­legum glæpum í Sýrlandi. Aðgerðir þyldu enga bið, sagði hann alvar­legur í bragði, sam­kvæmt end­ur­sögn breska rík­is­út­varps­ins BBC.

[caption id="attachment_39972" align="alignnone" width="2000"] Mikil spenna ein­kennir umræðu á sjö­tug­asta alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Sýrland og borg­ara­styrj­öldin þar er for­gangs­um­ræðu­efni. Mynd: EPA.[/caption]

Mikil spenna einkennir umræðu á sjötugasta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Sýrland og borgarastyrjöldin þar er forgangsumræðuefni. Mynd: EPA.
Mikil spenna ein­kennir umræðu á sjö­tug­asta alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Sýrland og borg­ara­styrj­öldin þar er for­gangs­um­ræðu­efni. Mynd: EPA.

Nú þegar er orðið ljóst, að alþjóða­sam­fé­lagið hefur brugð­ist of seint við átök­unum í Sýrlandi og þeim hörm­ungum sem þau hafa kallað yfir millj­ónir óbreyttra borg­ara. Fjöl­skyldu­fólk flýr í örvænt­ingu aðstæður sem það bera enga ábyrgð á, á meðan stór­þjóðir deila um hvernig haga á aðgerðum í land­inu. Nú þegar hafa í það minnsta 250 þús­und manns látið lífið og yfir 800 þús­und slasast, stór hluti alvar­lega. Tölurnar hækka hratt og er hættan á því að átökin harðni og breið­ist enn meira út en þau hafa þegar gert talin mikil. Spenna við landa­mæri Austur-Evr­ópu­ríkja, þar sem fólk freistar þess að kom­ast að, er til marks um að áhrifa gæti með áþreif­an­legum hætti í Evrópu.

Niðurstaða þingsins getur skipt sköpum


Hern­að­ar­póli­tíkin er flókin og erfið, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Eins og mál standa nú gagn­vart Sýrlandi er ekki aug­ljóst að banda­lag verði myndað gegn Íslamska rík­inu, þar sem Rússar og Banda­ríkin - og önnur hern­að­ar­stór­veldi - taka höndum saman. Allt frá því að staða mála versn­aði mikið í Sýrlandi, seinni hluta árs­ins 2011, hafa öll spjót staðið á Assad for­seta. Banda­ríkin hafa staðið fyrir sjálf­stæðum hern­að­arð­gerðum í Sýrlandi, án þess að taka þátt í bar­áttu stjórn­ar­hers­ins. Það sama má segja um Breta og Frakka. Ómönnuð loft­för, árás­ar­drónar svo­nefndir, hafa fram­kvæmt loft­árásir sem hafa verið vand­lega valin til að valda sem mestu tjóni. Bretar og Banda­ríkja­menn hafa beitt slíkum árásum ítrekað.

Sátta­flöt­ur­inn, verði hann fund­inn, virð­ist öðru fremur snúa að hinum sam­eig­in­lega óvini, sem er ógnin sem stafar af upp­gangi Íslamska rík­is­ins. Það á engan banda­mann þegar kemur að alþjóða­sam­fé­lag­inu og Sam­ein­uðu þjóð­unum. En sam­stöðu­leysi hefur þegar leitt af sér gríð­ar­legt tjón og hörm­ungar fyrir Sýr­lend­inga.

Pútín lagði í ræðu sinni fyrr í dag mikla áherslu á að ná að mynda banda­lag sem geti gripið inn í atburða­rás­ina í Sýrlandi. Samstaða sé lyk­ill­inn að árangri, allir þurfi að leggj­ast á eitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár