Hvernig græðir ÁTVR peninga?

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR) er risa­stórt fyr­ir­tæki. Árlega veltir það tæpum 30 millj­örðum króna og árs­reikn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins sýnir að það skilar hagn­aði upp á 1,3 millj­arða króna á síð­asta ári. Sá pen­ingur, og raunar meira til, rennur óskiptur til rík­is­ins í formi arð­greiðslu.

Mikið hefur verið tek­ist á um fram­tíð ÁTVR und­an­farin ár, sér­stak­lega eftir að frum­varp var lagt fram á Alþingi í fyrra­haust um að afnema einka­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins á sölu áfengis. Verði það frum­varp að lögum mun það kippa til­veru­grund­vell­inum undan ÁTVR og fyr­ir­tækið myndi, á end­anum, heyra sög­unni til ef svo verður.

Tölu­verður hiti hefur verið í sam­fé­lags­um­ræð­unni um efni frum­varps­ins. Stuðn­ings­menn þess benda margir á að það sé órétt­læt­an­leg tíma­skekkja að íslenska ríkið reki næstum 50 versl­anir sem selji eina teg­und vöru. Ef vara sé lög­leg eigi að ríkja sam­keppni um sölu hennar, líkt og með aðrar vörur. And­stæð­ingar frum­varps­ins bera aðal­lega fyrir sig lýð­heilsu­sjón­ar­mið. Frelsi í sölu muni auka aðgengi og neyslu á þessu lög­lega vímu­efni. Auk þess muni vöru­fram­boð drag­ast saman og fullt af fólki sem í dag starfar hjá ÁTVR missa vinn­una.

En lítið hefur verið fjallað um raun­veru­legan rekstur og skipu­lag ÁTVR í þess­ari umræðu. Kjarninn ákvað því að rýna í nýbirta árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins til að reyna að útskýra hvernig ÁTVR græðir pen­inga og hvað það myndi þýða fyrir arð­semi rík­is­ins af áfeng­is­sölu ef það hætti að reka vín­búðir.

ÁTVR rekið með hagnaði, en hvaðan kemur hagnaðurinn?

Fyrr á þessu ári tók fyr­ir­tækið Clever Data saman skýrslu um rekstur ÁTVR. Skýrslan var tekin saman fyrir aðila sem vilja að fram­lagt frum­varp um að afnema ein­okun rík­is­ins á smá­sölu áfengis verði að lögum.

Nið­ur­staðan var sú að ekki væri eig­in­legur hagn­aður af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Ein helsta ástæða þess væri sú að langtum meiri rekstr­ar­hagn­aður væri af sölu tóbaks en sölu áfengis, enda sé tóbak­inu dreift í heild­sölu á meðan að áfengið sé selt í versl­unum sem ÁTVR á og rekur út um allt land.

ÁTVR brást við skýrsl­unni með því að senda frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem fyr­ir­tækið hafn­aði nið­ur­stöðu hennar. Þar stóð m.a.: „Nið­ur­stöður hennar eru vanga­veltur sem eiga sér litla stoð í raun­veru­leik­anum og ÁTVR hafnar þeim alfarið. ÁTVR hefur aldrei verið rekin með tapi frá því að áfeng­is­gjöld og tóbaks­gjöld voru aðskilin frá rekstr­ar­tekjum versl­un­ar­innar. “

Í til­kynn­ing­unni svar­aði ÁTVR því ekki hvort rétt væri að tóbaks­sala væri að nið­ur­greiða mjög víð­ferma, og kostn­að­ar­sama, áfeng­is­sölu­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þar sagði ein­ungis að ÁTVR sé lögum sam­kvæmt rekin sem ein heild og smá­sala áfengis og heild­sala tóbaks sé því ekki aðgreind í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins né bók­haldi. „Ljóst er að aðgreindur rekstur hefði í för með sér veru­lega óhag­kvæmni, enda eru veiga­miklir rekstr­ar­liðir sam­eig­in­legir báðum þáttum starf­sem­innar. Nægir hér til dæmis að nefna hús­næð­is­kostnað, kostnað við með­höndlun vöru í vöru­húsi, rekstur tölvu­kerfa, vöruinn­kaup, vöru­dreif­ingu og launa­kostnað. Í bók­haldi ÁTVR er ekki sund­ur­greint hvernig slíkur kostn­aður deilist á milli áfengis- og tóbaks­hlut­ans og því eru engin gögn til um kostn­að­ar­skipt­ingu.“

Ástæðan er lík­ast til sú að allar líkur eru á því að svo sé. Tóbaks­salan nið­ur­greiðir áfeng­is­söl­una.

Vilja ekki upplýsa um aðskilinn kostnað

ÁTVR birti árs­skýrslu sína fyrir árið 2014 í síð­asta mán­uði. Líkt og áður er rekstr­ar­kostn­aður vegna tóbaks­sölu ekki gefin sér­stak­lega upp í bók­haldi ÁTVR. Öll tóbaks­dreif­ing ÁTVR er mið­læg og fer því fram á einum og sama staðnum, Útgarði, dreif­ing­ar­mið­stöð fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík. Þannig hefur hún verið frá því í jan­úar 2014. Í árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2013 segir að mikið hag­ræði hafi fylgt breyt­ing­unni þar sem „birgða­hald og vöru­með­höndlun minnkar og dreif­ing­ar­kostn­aður lækkar. Samhliða hefur verið lögð áhersla á raf­rænar pant­anir til hags­bóta fyrir alla aðila“.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á ÁTVR í ágúst 2014 og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hver kostn­aður við sölu á tóbaki væri. Sigrún Ósk Sig­urð­ar­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri ÁTVR, sagði þá að kostn­að­ur­inn væri ekki skil­greindur sér­stak­lega í bók­haldi fyr­ir­tæk­is­ins.

Tóbakssalan virðist niðurgreiða áfengisverslanirnar

Ein­faldur huga­reikn­ingur sýnir hins vegar að miklar líkur séu á því að tóbaks­salan greiði allan þann arð sem rennur til íslenska rík­is­ins ár hvert. Tekjur ÁTVR af tóbaks­sölu í fyrra voru 9,5 millj­arðar króna. Vöru­notkun tóbaks var átta millj­arðar króna og af henni var 5,7 millj­arðar króna tóbaks­gjald sem greið­ist til rík­is­ins.

Þegar vöru­gjöld hafa verið dregin frá tekjum ÁTVR af tóbaks­sölu stendur eftir 1,5 millj­arður króna. Mjög erfitt er að ímynda sér að kostn­aður við hinn hag­kvæma mið­læga rekstur tóbaks­sölu fyr­ir­tæk­is­ins, sem er allur á einum stað þar sem allar vörur eru pant­aðar er raf­rænt, sé nema brota­brot af þeirri upp­hæð.

Það sem meira er þá eru tekj­urnar af tóbaks­sölu að aukast á milli ára þrátt fyrir mik­inn sam­drátt í sölu á reyk­tó­baki. Ástæðan er tví­þætt. Annars vegar auknar álögur á tóbak, sem skila rík­inu meiri tekjum, og hins vegar sprengin í fram­leiðslu og sölu á íslensku nef­tó­baki, oft kallað „Ruddi“, sem nú er aðal­lega notað í vör­ina. Sala á því jókst um 19 pró­sent í fyrra og ÁTVR hefur aldrei í sög­unni áður selt jafn mikið af nef­tó­baki. Alls skil­aði nef­tó­baks­salan 692,5 millj­ónum krónum í kass­ann, eða 115,6 millj­ónum krónum meira en árið áður.

Því er með rökum hægt að draga þá ályktun að þorri þess hagn­aðar sem ÁTVR sýndi í fyrra, 1,3 millj­örðum króna, sé til­komin vegna tóbaks­sölu.

Rekur miklu fleiri verslanir en Bónus

Áfeng­is­sala ÁTVR er mun umfangs­meiri rekstur en tóbaks­salan. Raunar er fyr­ir­tækið einn stærsti smá­sali lands­ins. Það rekur 49 versl­anir út um allt land, þar af tólf á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og veltir 23,9 millj­örðum króna árlega vegna sölu á áfengi. Til sam­an­burðar rekur Bónus, sem er með 39 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á dag­vöru­mark­aði, 29 versl­anir um land allt.

Hjá ÁTVR fengu 684 starfs­menn greidd laun á síð­asta ári, en margir þeirra eru í hluta­starfi. Alls eru árs­verkin 282 tals­ins og fjölg­aði um tólf milli ára. Þorri þessa starfs­fólks vinnur í vín­búðum 49, eða við umsýslu áfengis. Þar sem ÁTVR aðgreinir ekki kostnað vegna tóbaks- og áfeng­is­sölu er ekki hægt að segja nákvæm­lega til um hver launa­kostn­aður vegna áfeng­is­söl­unnar er. Heild­ar­launa­kostn­aður ÁTVR, ásamt launa­tengdum gjöldum, var hins vegar 1,7 millj­arðar króna á árinu 2014 og hækk­aði um 9,3 pró­sent milli ára. Mest mun­aði um laun for­stjór­ans Ívars J. Arndal, en árs­laun hans námu 16,5 millj­ónum króna og hækk­uðu um 700 þús­und krónur milli ára. Ívar fær því 1.375 þús­und krónur á mán­uði.

[caption id="attachment_14919" align="alignnone" width="1024"] Bónus er stærsta mat­vöru­versl­un­ar­keðja lands­ins. Alls eru 29 Bón­usversl­anir reknar um allt land. ÁTVR rekur 49 versl­anir.[/caption]

Bónus er stærsta matvöruverslunarkeðja landsins. Alls eru 29 Bónusverslanir reknar um allt land. ÁTVR rekur 49 verslanir.
Bónus er stærsta mat­vöru­versl­un­ar­keðja lands­ins. Alls eru 29 Bón­usversl­anir reknar um allt land. ÁTVR rekur 49 versl­anir.

Forstjórinn með 16,5 milljónir á ári

Rekstr­ar­tekjur ÁTVR voru 28,6 millj­arðar króna og juk­ust um 1,2 millj­arða króna á milli ára. Af þeim runnu 23,7 millj­arðar króna til rík­is­sjóðs vegna tóbaks­gjalds (5,7 millj­arðar króna), áfeng­is­gjalds (9,2 millj­arðar króna), virð­is­auka­skatts (7,3 millj­arðar króna) og arð­greiðslu (1,4 millj­arðar króna).

Það þýðir að um 83 pró­sent allra tekna ÁTVR renna í rík­is­sjóð. Allar þessar tekjur myndu skila sér þangað óháð því hver það væri sem seldi áfengi og tóbak, utan arð­greiðsl­unnar.

Þetta háa hlut­fall tekna fyr­ir­tæk­is­ins sem rennur til rík­is­sjóðs ætti ekki að koma mörgum á óvart. Álögur á áfengi á Íslandi eru þær hæstu í Evrópu að Noregi und­an­skildu.

Tveir þriðju hlutar allra rekstr­ar­tekna ÁTVR, alls 19,1 millj­arðar króna, koma til vegna sölu áfengis. Þær hækk­uðu um 4,7 pró­sent á síð­asta ári.Tæpur helm­ingur áfeng­is­sölu­veltunnar er vegna bjór­sölu og um 72 pró­sent af öllum bjór sem seldur er í vín­búð­unum er inn­lendur bjór. Þar er talin með sá einka­leyfi­skyldi bjór sem inn­lendir aðilar fram­leiða með leyfi aðal­fram­leið­anda.

[caption id="attachment_7821" align="alignnone" width="1024"] Rekstr­ar­tekjur ÁTVR voru 28,6 millj­arðar króna og juk­ust um 1,2 millj­arða króna á milli ára. Af þeim runnu 23,7 millj­arðar króna til rík­is­sjóðs vegna tóbaks­gjalds (5,7 millj­arðar króna), áfeng­is­gjalds (9,2 millj­arðar króna), virð­is­auka­skatts (7,3 millj­arðar króna) og arð­greiðslu (1,4 millj­arðar króna).[/caption]

Rekstrartekjur ÁTVR voru 28,6 milljarðar króna og jukust um 1,2 milljarða króna á milli ára. Af þeim runnu 23,7 milljarðar króna til ríkissjóðs vegna tóbaksgjalds (5,7 milljarðar króna), áfengisgjalds (9,2 milljarðar króna), virðisaukaskatts (7,3 milljarðar króna) og arðgreiðslu (1,4 milljarðar króna).
Rekstr­ar­tekjur ÁTVR voru 28,6 millj­arðar króna og juk­ust um 1,2 millj­arða króna á milli ára. Af þeim runnu 23,7 millj­arðar króna til rík­is­sjóðs vegna tóbaks­gjalds (5,7 millj­arðar króna), áfeng­is­gjalds (9,2 millj­arðar króna), virð­is­auka­skatts (7,3 millj­arðar króna) og arð­greiðslu (1,4 millj­arðar króna).

Ríki í ríkinu

Þrátt fyrir þessu miklu umsvif stofn­un­ar­innar, og ÁTVR er skil­greind sem stofnun í lögum, þá er engin stjórn yfir fyr­ir­tæk­inu. Slík hefur ekki verið til staðar í nokkur ár heldur heyrir stofn­unin beint undir fjár­mála­ráð­herra. Yfir­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, sem sam­anstendur af Ívari J. Arndal for­stjóra og fram­kvæmda­stjórum, tekur þess í stað ákvarð­anir tengdar rekstri ÁTVR. Fyr­ir­tækið sker sig þannig frá öðrum stórum fyr­ir­tækjum í opin­berri eigu, eins og til dæmis orku­fyr­ir­tækjum, þar sem eig­and­inn kemur ekki að beinni stjórn þess.

Þótt um sé að ræða rík­is­stofnun með algjöra ein­okun á sínum mark­aði eru íslenskir neyt­endur mjög ánægðir með þá þjón­ustu sem ÁTVR veitir. Fyr­ir­tækið skor­aði raunar hæst allra fyr­ir­tækja í Íslensku ánægju­vog­inni á síð­asta ári.

"Einhverjir aðrir hagsmunir á ferðinni"

Ívar J. Arndal, for­stjóri ÁTVR, skrif­aði inn­gang í árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins sem vakið hefur tölu­verða athygli. Þar segir hann síð­ast­lið­inn vetur hafa verið erf­iður fyrir starfs­fólk ÁTVR vegna nei­kvæðrar umræðu um rík­is­starfs­menn og frum­varps um afnám einka­leyfis ÁTVR á smá­sölu áfengis. Þar segir Ívar: „Frum­varpið hefur valdið starfs­fólki ÁTVR hug­ar­angri því það gerir ráð fyrir að sala á öllu áfengi fær­ist frá ÁTVR til einka­að­ila, Vínbúðum ÁTVR verði lokað og flestu starfs­fólki sagt upp störfum. [...]Greini­legt er að það eru ekki við­skipta­vinir ÁTVR sem eru að biðja um breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi áfeng­is­sölu. Þar eru ein­hverjir aðrir hags­munir á ferð­inni.“

Hann segir erfitt að standa á hlið­ar­lín­unni þegar verið sé að fjalla um mál­efni sem snerti hann per­sónu­lega þótt ákvörð­unin um fyr­ir­komu­lag áfeng­is­sölu sé í eðli sínu póli­tísk og í réttum höndum hjá alþing­is­mönnum. ÁTVR sendi umsögn til alls­herjar- og mennta­mála­nefndar þar sem til­vera fyr­ir­tæk­is­ins og núver­andi laga um áfeng­is­sölu er varin. Þar er farið yfir skoðun stjórn­enda ÁTVR á því hvað muni ger­ast ef fyr­ir­tækið verður lagt niður. Á meðal þess sem kemur fram í umsögn­inni er að aðgengi að áfengi muni aukast, vöru­fram­boð muni minnka, sér­stak­lega á lands­byggð­inni, lík­legt er að áfeng­is­verð muni hækka, neysla áfengis muni aukast, sér­stak­lega hjá ungu fólki, með til­heyr­andi auknum kostn­aði fyrir sam­fé­lagið, smygl og sviknar vörur munu eiga greið­ari aðgang að mark­aðnum, áfeng­is­þjófn­aður úr versl­unum mun aukast og fjöldi starfs­manna ÁTVR mun missa vinn­una verði frum­varpið að lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár