Heiða Kristín býður sig ekki fram til formanns Bjartar framtíðar

Heiða Kristín Helga­dóttir, einn stofn­enda og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar, ætlar ekki að bjóða sig fram til for­manns flokks­ins.

Heiða segir frá þessu í bréfi til félaga sinna í Bjartri fram­tíð, sem hún birtir einnig á Twitter og Facebook. Þar kemur fram að breyt­ing­arnar sem flokk­ur­inn sé að ganga í gegnum snú­ist ekki um hana eða hennar metnað heldur um það að flokk­ur­inn geti end­ur­vakið áhuga kjós­enda og fundið neist­ann sem til þarf til að hrífa aðra með.

„Metnaður minn liggur í því að leggja því verk­efni lið og ég met stöð­una þannig að það verði best gert með því að ég taki sæti á Alþingi í haust í fæð­ing­ar­or­lofi Bjartar Ólafs­dóttur og veiti nýrri for­ystu stuðn­ing til góðra verka. Þar vil ég sjá konu fremsta meðal jafn­ingja.“ Hún segir einnig að sá dagur kunni að koma að hún bjóði sig fram til for­ystu, en sá tíma­punktur sé ekki núna.


Staðan: pic.twitter.com/m1cFp1H5yV


— Heiða Kristín (@heidabest) August 26, 2015



Ég hef ákveðið að bjóða mig ekki fram til for­manns Bjartrar fram­tíðar. Breyt­ing­arnar sem BF er að ganga í gegnum snú­ast...

Posted by Heiða Kristín on Wednesday, August 26, 2015

Heiða Kristín er vara­þing­maður flokks­ins og ætlar að taka sæti á þingi í haust. Hún tekur sæti Bjartar Ólafs­dóttur sem fer í fæð­ing­ar­or­lof, en Björt eign­að­ist tví­bura í dag.

Gagnrýnin setti allt af stað

Nokkur óánægja hefur verið með gang mála innan Bjartrar fram­tíðar und­an­farin miss­eri, og

gagn­rýndi Heiða Kristín,

sem áður var í for­ystu flokks­ins, Guðmund Stein­gríms­son, for­mann flokks­ins, vegna slæmrar stöðu flokks­ins í við­tali við Kjarnann, en flokk­ur­inn mælist nú með aðeins 4,4 pró­sent fylgi.

Miðað við það fylgi myndi Björt fram­tíð ekki ná inn manni í kom­andi kosn­ingum. Flokk­ur­inn mæld­ist með um 20 pró­sent fylgi í könn­unum í fyrra­haust.

Í kjöl­far gagn­rýni sinnar á Guðmund sagð­ist Heiða Kristín opin fyrir því að sækj­ast eftir for­manns­emb­ætt­inu ef vilji væri fyrir því hjá flokks­mönnum. Guð­mundur til­kynnti í kjöl­farið að hann hefði engan áhuga á for­manns­slag og myndi leggja fram til­lögu um að æðstu emb­ætti flokks­ins myndu róter­ast. Þá til­lögu ætlar hann ennþá að leggja fram á árs­fundi Bjartrar fram­tíðar í byrjun sept­em­ber. Verði sú til­laga sam­þykkt mun starf for­manns og þing­flokks­for­manns róter­ast á milli sex þing­manna Bjartrar fram­tíðar en aðrir gegna starfi stjórn­ar­for­manns.

Um síð­ustu helgi var svo greint frá því að Guð­mundur ætli að hætta sem for­maður Bjartrar fram­tíðar á árs­fund­inum. Róbert Marshall mun einnig segja af sér sem þing­flokks­for­maður flokks­ins. Óttarr Proppé og Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­menn Bjartar fram­tíðar, hafa bæði verið orðuð við for­manns­fram­boð og hafa hvor­ugt úti­lokað að af því verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár