Guðmundur: „Þú gerir ekki rassgat einn“

Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir flokk­inn hafa sog­ast inn í mjög hefð­bundna og súra atburða­rás. Hann ætlar að leggja til breyt­ing­ar­til­lögu á hvernig valið verður í for­ystu flokks­ins á árs­fundi Bjartrar fram­tíðar í sept­em­ber.

„Þetta er margend­ur­tekin tugga í íslenskri flokkapóli­tík. Fylgið dalar, for­maður þarf að taka ábyrgð, það er for­manns­slagur og síðan stendur eftir laskað fley,“ sagði Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann. „Það er ekki þráður í mér sem langar að fara út í svona. Ég hef bara engan áhuga á að fara með flokk­inn í þessa átt.“

Guð­mundur skýrði breyt­ing­ar­til­lögu sína á Facebook í dag. Í sam­tali við Kjarnann segir hann hug­mynd­ina hafa komið upp í sam­tölum innan flokks­ins, þar séu þing­konur flokks­ins ekki síst hug­mynda­smið­irnir. „Það hefur verið imprað á því hvort við eigum ekki ein­fald­lega að láta þetta for­manns­hlut­verk, stjórn­ar­for­mennsku­hlut­verkið og þing­flokks­for­mennsku­hlut­verkið róter­ast milli fólks. Fleiri tækju ábyrgð á þessu. Dreifa ábyrgð­inni,“ segir Guð­mundur sem sér fyrir sér að þing­menn skipt­ist á að vera for­menn, ekki ósvipað því sem ger­ist í ráð­herra­ráði Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hann seg­ist hafa heyrt margar áhuga­verðar kennignar um fylgis­tap flokks­ins. Björt fram­tíð mælist nú með 4,4 pró­senta fylgi, miðað við nýj­ustu könnun MMR sem Kjarninn greindi meðal ann­ars frá. Eftir að könn­unin var birt gagn­rýndi Heiða Kristín Helga­dóttir, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður flokks­ins, flokk­inn í sam­tali við Kjarnann og sagði vanda Bjartar fram­tíðar vera innan flokks­ins.

„Vandinn er ekki til­kom­inn vegna þess að kjós­endur skilja ekki flokk­inn heldur er hann vandi for­manns­ins og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð,“ sagði Heiða Kristín. Guð­mundur seg­ist ekki vilja bregð­ast við þess­ari gagn­rýni á hefð­bund­inn hátt, „berja [sér] á brjóst, taka þennan slag og segj­ast vera æðis­legur,“ eins og hann orðar það.

Frekar telur hann tvennt vera mein­semd í flokkapóli­tík­inni „Það eru slagir innan flokks um hver skipar emb­ætti og skapað flokka­drætti í þessum hreyf­ingum. Ég vil ekki vera í póli­tík á þessum for­sendum. Hitt er að það virð­ist vera að fær­ast í vöxt að vera alltaf að tala um þessa for­menn. Bara eins og segir í lag­inu: Þú gerir ekki rass­gat einn.“

Fylgis­tapið telur hann vera vegna þess að flokk­ur­inn hafi fallið í of hefð­bund­inn far­veg. „Því langar mér að breyta og fara aftur í okkar grunn­gildi. Og svo verðum við bara að láta meira að okkur kveða. Íslandi er stjórnað mjög ólýð­ræð­is­lega um þessar mundir, sér­hags­muna­hópar ráða allt of mikið för. Það eru and­stæð­ingar okkar í póli­tík — ein­ok­un­ar­sinnar, for­dóma­öflin, frekju­kall­inn — við þurfum að kljást við allt þetta,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár