Forsætisráðherra fullyrðir að boðað verði til kosninga í haust

For­sæt­is­ráð­herra stað­festir að kosið verði til Alþingis haustið 2016. Þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins var í vik­unni ekki viss um að svo verði. 70 pró­sent kjós­enda vilja kosn­ingar 2016 sam­kvæmt Gallup­könnun.

Sigurður Ingi Jóhannsson tók við embætti forsætisráðherra fyrir rúmri viku síðan. Hann fullyrðir að kosið verði í haust.
Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra fyrir rúmri viku síðan. Hann full­yrðir að kosið verði í haust. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Boðað verður til Alþing­is­kosn­inga í haust. Þetta full­yrðir for­sæt­is­ráðu­neytið. Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra, um hvort hann geti stað­fest að kosið verði til Alþingis í haust, segir Benedikt Sig­urð­ar­son, aðstoð­ar­maður hans:

„Eins og fram hefur komið mun verða boðað til kosn­inga í haust. Dag­setn­ing hefur ekki verið ákveðin."

Sigurður Ingi átti fund með stjórn­ar­and­stöð­unni í vik­unni þar sem hann full­viss­aði þau um að kosn­ingum yrði flýtt til hausts­ins.

Mikill meirihluti vill kosningar 2016

Rúmlega 70 pró­sent kjós­enda vilja að kosið verði í ár. Þetta sýna nið­ur­stöður nýrrar Gallup­könn­unar sem RÚV birti í gær. Um var að ræða net­könnun sem gerð var 7. til 13. apríl þar sem spurt var: „Hvenær vilt þú að næstu kosn­ingar til Alþingis fari fram?“

37 pró­sent vilja að kosið verði innan tveggja mán­aða, apríl til júní, 20 pró­sent vilja kjósa eftir tvo til fjóra mán­uði, júní til ágúst, og 15 pró­sent vilja kosn­ingar eftir fimm til átta mán­uði, sept­em­ber til des­em­ber. Þetta þýðir að rúm­lega 70 pró­sent vilja kosn­ingar á þessu ári, stærsti hlut­inn í vor eða í sumar.

Ásmundur ekki viss með haustkosningar

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vildi ekki full­yrða í sam­tali við Kjarnann í vik­unni hvort kosið verði í haust. Varðandi vinn­una sem framundan er tengda kosn­inga­bar­áttu og öðrum tækni­legum atriðum um kosn­ing­arnar sagði Ásmundur:

„Ef kjör­dagur verður annar en ráð­gert var í apríl 2017, taka stofn­anir flokks­ins við. Ég hef engar áhyggjur af öðru en að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé til­bú­inn í kosn­ing­ar, hvort sem þær verða í haust eða á næsta ári.”

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði á Alþingi í gær „stefnt væri að því að kjósa í haust." Hann hefur þó full­yrt að núver­andi kjör­tíma­bil verði stytt um eitt lög­gjafa­þing. Ekki komi til greina að sam­þykkja fjár­lög næsta árs á þessu þingi.

„En það skiptir máli að hlut­irnir gangi eðli­lega fyrir sig hér á þing­inu og að það sé ein­hver fram­gangur í þeim verk­efnum sem rík­is­stjórnin hefur beitt sér fyrir,“ sagði Bjarni varð­andi haust­kosn­ingar.

45 dagar frá þingrofi til kosninga

Til að boða til kosn­inga áður en kjör­tíma­bili lýkur þarf að rjúfa þing. Þingmenn halda umboði sínu til kjör­dags, þó að þing hafi verið rofið. En sam­kvæmt stjórn­ar­skránni þarf að boða til kosn­inga innan 45 daga frá því að þing­rof hefur verið til­kynnt. En þetta á ein­ungis við ef þing er rofið við sér­stakar aðstæður, ekki þegar reglu­bundnu fjög­urra ára kjör­tíma­bili lýkur. Rík hefð hefur skap­ast fyrir því að kjósa á laug­ar­degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár