Hillary Clinton mótfallin olíu- og gasleit á norðurslóðum

Hillary Clinton er mót­fallin því að borað sé eftir olíu og gasi á norð­ur­slóðum. Þetta kemur fram á Twitter-síðu hennar í dag, í til­efni af því að stór­fyr­ir­tækið Shell hefur fengið leyfi til þess að bora eftir þessum auð­lindum á norð­ur­slóðum.

Clinton segir norð­ur­slóðir ein­stakan fjár­sjóð. Miðað við upp­lýs­ingar sem fyrir hendi eru væri það ekki hætt­unar virði að bora eftir olíu.


The Arctic is a unique trea­sure. Given what we know, it's not worth the risk of drill­ing. -H


— Hillary Clinton (@HillaryClinton) August 18, 2015

Það er flokks­bróðir Clinton, núver­andi for­set­inn Barack Obama, og stjórn hans sem gefa leyfi fyrir olíu­leit­inni. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2012 sem fyr­ir­tækið fær leyfi til bor­ana á svæði sem nefn­ist Chukchi-haf, norðan Alaska, en fyr­ir­tækið fékk upp­haf­legu leyfin í valda­tíð George W. Bush. Árið 2012 kom ýmis­legt upp á hjá Shell á svæð­inu, meðal ann­ars missti fyr­ir­tækið stjórn á olíu­bor­p­alli og bjarga þurfti átján manns af honum.

Talið er lík­legt að olíu- og gasleit á norð­ur­slóðum verði kosn­inga­mál fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum á næsta ári, þar sem Clinton von­ast til að verða fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins.

Banda­ríkja­menn áætla að þeirra hluti mögu­legrar olíu á Chukchi-svæð­inu nemi 15,4 millj­örðum olíu­tunna. Í Beaufort-hafi, öðru svæði þar sem leitað er að olíu og Shell á rétt, er búist við að 8,2 millj­arðar olíu­tunna séu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár