Segja eigendur CCP íhuga sölu á fyrirtækinu

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP.
Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eigendur íslenska tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­is­ins CCP eru sagðir íhuga sölu á fyr­ir­tæk­inu, sam­kvæmt frétt frá Bloomberg. Bloomberg full­yrðir að eig­end­unum hafi borist áhuga­vert til­boð sem þeir séu nú að skoða.

Bloomberg segir að Novator Partners, General Catalyst Partners og New Enter­prise Associates, eig­endur í CCP, séu að skoða hvort fara eigi lengra með söl­una eða ekki, og segir að fyr­ir­tækið gæti verið 900 millj­óna evra virði, sem jafn­gilda um 106 millj­örðum íslenskra króna. Full­trúar CCP, General Catalyst og Novator neit­uðu að tjá sig um málið við Bloomberg, og New Enter­prise svar­aði ekki fyr­ir­spurnum.

Rúmt ár er liðið frá því að til­kynnt var um fjár­fest­ingu í CCP upp á 30 millj­ónir banda­ríkja­dala til að efla starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á sviði sýnd­ar­veru­leika. Fjár­fest­ingin var leidd af New Enter­prise Associates, sem er stærsti fram­taks­sjóður heims, og Novator Partners, sem er að mestu í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, tók þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni. Á sama tíma kynnti CCP drög að samn­ingi um bygg­ingu nýss húss undir starf­sem­ina í Vatns­mýr­inni.

Bloomberg full­yrðir í frétt sinni að þegar sú hluta­fjár­aukn­ing átti sér stað hafi virði fyr­ir­tæk­is­ins verið metið 300 millj­ónir banda­ríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár