Uppreisn gegn Árna Páli – aðför úr „launsátri“

Sam­fylk­ingin logar stafna á milli eftir að Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, ákvað að bjóða sig fram gegn Árna Páli Árnasyni for­manni á lands­fundi flokks­ins sem hófst í dag. Sigríður Ingi­björg til­kynnti Árna Páli um að hún ætl­aði sér að fara gegn honum rétt fyrir klukkan sex í gær sím­leiðis. Kosn­ingin um for­mann flokks­ins, þar sem Sigríður Ingi­björg og Árni Páll berj­ast um sigur, fer fram milli 17:30 og 18:30 í dag.

Ákvörðun Sigríðar Ingi­bjargar kom Árna Páli á óvart. „Sigríður Ingi­björg hringdi í mig klukkan þrjár mín­útur í sex í gær og til­kynnti mér um fram­boð sitt. Það kom mér algjör­lega í opna skjöldu,“ sagði Árni Páll í sam­tali við Kjarnann.

Undirbúningurinn hafinn áður?


Sigríður Ingi­björg ákvað það klukkan fimm í gær, að hennar sögn, að bjóða sig fram gegn Árna Páli. Hún seg­ist ekki hafa und­ir­búið þetta sér­stak­lega, en ákvörð­unin hafi átt sér nokkurn aðdrag­anda. „Ég er ekki klækja­stjórn­mála­maður. Það hefur verið mikil umræða í flokknum að und­an­förnu, vegna þess að fylgið er lágt,“ sagði Sigríður Ingi­björg.

Sp. blm. En er þetta svona Sigríður Ingi­björg? Ertu ekki búin að vera skipu­leggja hall­ar­bylt­ingu með þínu bak­landi að und­an­förnu? „Nei. Ég starfa ekki þannig. Ef svo hefði verið hefði það alltaf borist for­yst­unni til eyrna. Ekkert slíkt var í gangi,“ sagði Sigríður Ingi­björg. Hún segir ákvörð­un­ina alfarið hafa verið sína, tekna í gær. Hún seg­ist vera með breitt bak­land, hjá ungum jafn­að­ar­mönnum, flokks­fólki almennt, Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­inu í Reykja­vík, í kvenna­hreyf­ing­unni og „60 plús“, eins og hún orð­aði það sjálf.

Ekkert per­sónu­legt @ArniPallArnason http://t.co/vYJOv0YVxq

— Ungir jafn­að­ar­menn (@ungjofn) March 19, 2015

Strax byrjað að hringja

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans á for­manns­fram­boð Sigríðar Ingi­bjargar sér lengri aðdrag­anda, einkum og sér í lagi í ein­stökum flokks­fé­lögum Sam­fylk­ing­ar­innar. Strax í gær­kvöldi voru stuðn­ings­menn Sigríðar Ingi­bjargar byrj­aðir að hringja í flokks­fólk og óska eftir stuðn­ingi. Þar bein­ast spjótin að Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­inu í Reykja­vík. Innan þess hefur grass­erað óánægja með Árna Pál, og tölu­verð umræða farið fram um það, einkum á síð­ustu vikum, að nýr for­maður gæti „tekið flokk­inn áfram“, eins og einn við­mæl­enda Kjarnans komst að orði.

Innan þing­flokks­ins, sem aðeins telur níu þing­menn eftir síð­ustu kosn­ingar, komu frétt­irnar um fram­boð Sigríðar Ingi­bjargar nokkuð á óvart, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. En þing­menn flokks­ins höfðu þó heyrt af því að nokkur óánægja væri með störf Árna Páls, einkum hjá ung­liðum í flokknum og einnig hjá flokks­mönnum í Reykja­vík. Í sam­tölum við flokks­menn í dag bar nafn Kjartans Val­garðs­sonar, flokks­manns Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, oft á góma þegar rætt var um þá sem væru að þrýsta á um að breyt­ingar yrðu gerðar í for­ystu flokks­ins.


Furða sig á aðdragandanum


Þunga­vigt­ar­fólk í flokknum, sem sumt hefur reynslu af flokks­starf­inu allt frá stofnun hans, furð­aði sig á því hvernig for­manns­slag­inn bar að, þegar Kjarninn ræddi við það. Var þar meðal ann­ars rætt um lands­fund­inn sjálfan, þá sem hafa valist til að sitja hann og fyr­ir­komu­lagið í kosn­ing­unni sjálfri. Lands­fund­ar­full­trúar eru um 800 en ekki hafði verið gert ráð fyrir því að full mæt­ing yrði á fund­inn. Til að mynda er sagt að fjöldi skráðra lands­fund­ar­full­trúa utan af landi hafi ekki ætlað að mæta vegna þess að ekki hafi stefnt í nein átök á fund­inum.

Ekki lengur lýðræðisveisla?


Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur hingað til alltaf verið kjör­inn í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu allra félags­manna flokks­ins, þegar fleiri en einn hafa verið í fram­boði. Það er því ljóst að nú kemur það í hlut lands­fund­ar­full­trúa í fyrsta skipti að velja for­mann flokks­ins.

Í síð­asta for­manns­kjöri voru 18.318 á kjör­skránni og 5.621 greiddi atkvæði. Árni Páll hlaut 3.474 atkvæði í þeirri kosn­ingu, eða 62,2 pró­sent atkvæða.

[quote font="0" align="right"]Flokk­ur­inn hefur lengi stært sig af þessu fyr­ir­komu­lagi við kjör for­manns, enda hefur hann verið eini flokk­ur­inn sem ekki kýs for­mann á lok­uðum lands­fundi. Formaður flokks­ins hefur því yfir­leitt verið tal­inn með mjög víð­tækt umboð í krafti þess­arar atkvæða­greiðslu.[/quote]

Flokk­ur­inn hefur lengi stært sig af þessu fyr­ir­komu­lagi við kjör for­manns, enda hefur hann verið eini flokk­ur­inn sem ekki kýs for­mann á lok­uðum lands­fundi. Formaður flokks­ins hefur því yfir­leitt verið tal­inn með mjög víð­tækt umboð í krafti þess­arar atkvæða­greiðslu. Árni Páll tal­aði til að mynda um þetta fyr­ir­komu­lag sem „lýð­ræð­is­veislu“ fyrir síð­asta lands­fund, þar sem allir geta tekið þátt svo lengi sem þeir skrá sig í flokks­fé­lag. „Sjálfs­traust Sam­fylk­ing­ar­innar birt­ist í því að þora að vera opinn flokkur. Við erum lýð­ræð­is­leg fjölda­hreyf­ing og bjóðum öllum að hafa áhrif. Það greinir okkur frá öðrum flokkum. Þannig skulum við hafa það áfram,“ sagði hann þá.

Í lögum Sam­fylk­ing­ar­innar segir „Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar - jafn­að­ar­manna­flokks Íslands skal kjör­inn alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu meðal allra skráðra félags­manna enda komi fram krafa þar um frá a.m.k. 150 flokks­mönnum eigi síðar en 45 dögum fyrir boð­aðan lands­fund.“

Ef ekki fer fram atkvæða­greiðsla um for­manns­kjör sam­kvæmt ofan­greindu á að kjósa for­mann á lands­fundi, og þá eru allir í kjöri. Kosning fer fram þótt aðeins einn sé í kjöri. Því ákvæði var bætt inn í lögin á síð­asta lands­fundi. Það er á grund­velli þessa ákvæðis sem Sigríður Ingi­björg býður sig fram svona seint.

Klofningur getur farið með flokkinn


Augljóst er að for­manns­slagur Sigríðar Ingi­bjargar og Árna Páls getur haft mikil áhrif innan flokks­ins til fram­tíðar litið. Einn við­mæl­enda Kjarnans sagð­ist líta á for­manns­fram­boð Sigríðar Ingi­bjargar sem „aðför úr laun­sátri“ sem gæti skapað djúp­stæðan ágreing innan flokks­ins, á versta tíma. Þar sem mikil hreyf­ing væri á fylgi vinstri megin og við miðju í hinu póli­tíska lands­lagi. Slag­ur­inn gæti komið enn meiri hreyf­ingu á fylgið, og grafið undan flokks­starf­inu. Á móti gæti það einnig gerst, að for­ystu­breyt­ing á þessum tíma­punkti myndi færa honum byr í segl, en flestir við­mæl­enda voru sam­mála um að það væru minni líkur en meiri á því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár