Sjá fyrir sér um 200 íbúðir á einum reit í Skeifunni

Skipu­lags­full­trú­inn í Reykja­vík hefur tekið jákvætt í frum­drög fast­eigna­fé­lags­ins Eikar að upp­bygg­ingu um 200 íbúða og 3.000 fer­metra atvinnu­hús­næðis á tveimur sam­liggj­andi lóðum í Skeif­unni.

Skeifan 7-9
Skeifan 7-9 Hér má sjá teikn­ingu úr til­lögu arki­tekta­stof­unnar tp bennet að upp­bygg­ingu á reit Eikar í Skeif­unni. Um 200 íbúðir eiga að geta verið í sam­tengdu fjöl­býl­is­húsi á fjórum til átta hæðum. Mynd: tp bennett

Skipu­lags­full­trú­inn í Reykja­vík­ur­borg tekur jákvætt í hug­myndir fast­eigna­fé­lags­ins Eikar um mikla upp­bygg­ingu íbúðar- og atvinnu­hús­næðis á lóðum númer 7 og 9 í Skeif­unni. Húsið á lóð númer 7 hýsti áður verslun Elko og í hús­inu á lóð númer 9 er dekkja­verk­stæðið Nesdekk með starf­semi í dag.

Málið var tekið fyrir á afgreiðslu­fundi skipu­lags­full­trúa 27. júlí, en í umsögn emb­ætt­is­ins kemur fram að frum­drög að upp­bygg­ingu á lóð­unum tveimur gerir ráð fyrir um 200 íbúðum og um 3.000 fer­metra atvinnu­hús­næði, auk bíla­kjall­ara fyrir um 200 bíla. Tillagan er sögð fela í sér bygg­ingu fjög­urra til átta hæða sam­tengdra fjöl­býl­is­húsa og inn­garðs ofan á versl­unar- og þjón­ustu­rými á jarð­hæð. 

SvæðiðHér sjást húsin sem eru á reitnum í dag, að Skeif­unni 7 og 9.

Tillagan gengur út frá því að iðn­að­ar­hús að Skeif­unni 5, sem meðal ann­ars hýsa í dag verslun ÁTVR og eru einnig í eigu Eikar, verði end­ur­nýtt og að torg og bíla­stæði verði gert á milli þeirra og fyr­ir­hug­aðrar fjöl­býl­is­húsa­sam­stæðu, með göngu­leið sem tengi Skeifuna við versl­un­ar­mið­stöð­ina í Glæsibæ og leið Borg­ar­línu um Suð­ur­lands­braut. 

„Jákvætt er tekið í fyr­ir­liggj­andi frum­drög að upp­bygg­ingu reits­ins. Vinna þarf grein­ingu á kolefn­is­spori upp­bygg­ingar sam­hliða hönnun, sem og grein­ingar á dags­birtu íbúða, skugga­varpi af bygg­ingum, hljóð­vist, skjól­myndun og dval­ar­svæðum á lóð sem njóti sólar,“ segir í umsögn skipu­lags­full­trúa.

Umbreyting Skeifunnar í takti við rammaskipulag

Ramma­skipu­lag fyrir Skeifuna var sam­þykkt í borg­ar­ráði undir lok árs 2017. Í því var gert ráð fyrir mik­illi end­ur­nýjun svæð­is­ins og upp­bygg­ingu mörg­hund­ruð íbúða.

Nú þegar eru risin stærð­ar­innar fjöl­býl­is­hús við Grens­ás­veg 1, sem má segja að séu for­smekk­ur­inn af því sem koma skal, ef horft er til þeirra heim­ilda sem ramma­skipu­lagið opnar á.

Eik fast­eigna­fé­lag hefur átt lóð­ina við Skeifuna 7 um nokkurn tíma, en keypti lóð­ina að Skeif­unni 9 árið 2020 af Heldi, eig­anda Bíla­leigu Akur­eyrar, en höf­uð­stöðvar bíla­leig­unnar voru í hús­inu. Fast­eigna­mat eign­ar­innar nam 489 millj­ónum króna á þeim tíma, sam­kvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins um kaup Eikar á reitnum. 

Auk þess­ara tveggja lóða í Skeif­unni á Eik fast­eignir að Skeif­unni 5, Skeif­unni 8, Skeif­unni 11 og Skeif­unni 19. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár