Ríkisstjórnin fari eins og köttur í kringum heitan grautinn

Þing­maður Pírata gagn­rýnir yfir­lýs­ingu Íslands varð­andi árásir Ísra­els­hers á Palest­ínu og segir að Ísra­els­her sé sýndur mik­ill skiln­ingur – og hann í raun ein­ungis beð­inn að hemja sig aðeins.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, segi að ekki dugi að for­dæma ofbeldi almennum orðum en „fara eins og köttur í kringum heitan graut­inn við að gera eitt­hvað í alvöru“. Þetta kom fram í máli þing­manns­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær en með þessum orðum gagn­rýnir hann yfir­lýs­ingu Íslands á fundi örygg­is­ráðs­ins í vik­unni varð­andi varð­andi árásir Ísra­els­hers á Palest­ínu.

Hóf hann mál sitt á að segja að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hefðu ítrekað sagt und­an­farna daga að stefna Íslands varð­andi árásir Ísra­els­hers á Palest­ínu væri skýr. Spurði hann í fram­hald­inu hvernig þessi stefna birt­ist í raun og veru og vitn­aði í yfir­lýs­ingu Íslands en í henni segir að Ísland for­dæmi harð­lega allar árásir á almenna borg­ara. Eld­flauga­árásir frá Gaza á almenna borg­ara í Ísrael séu aldrei rétt­læt­an­legar og „þótt við við­ur­kennum rétt Ísraels til sjálfs­varnar þá verðum við að krefj­ast þess að gætt sé ýtr­ustu aðgátar og með­al­hófs í vald­beit­ingu“.

Þing­mað­ur­inn benti á að þarna væri vissu­lega ofbeldi for­dæmt almennum orðum. Hins vegar væri Ísra­els­her sýndur mik­ill skiln­ingur og hann í raun ein­ungis beð­inn að hemja sig aðeins.

Eigi að svelta flóttafólk til hlýðni

„Hvað sem þetta er þá er þetta ekki skýr stefna um stuðn­ing Íslands við palest­ínsku þjóð­ina. En hvað með hérna heima fyrir? Hvað með til dæmis sam­stöðu með þeim ein­stak­lingum sem hafa þurft að flýja átökin? Und­an­farna daga hafa hellst yfir okkur fréttir af umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem íslensk stjórn­völd ætla að end­ur­senda til Grikk­lands. Í þeim hópi er meðal ann­ars fólk sem fyrst flýði ástandið í Gaza, fékk hæli á Grikk­landi en þurfti aftur að leggja á flótta úr ónýtu vernd­ar­kerfi Grikk­lands,“ sagði hann.

[links]Andrés Ingi sagði jafn­framt að íslensk stjórn­völd ætl­uðu ekki einu sinni að sýna þessu fólki þá virð­ingu að taka mál þeirra til efn­is­legrar með­ferðar.

„Hvernig birt­ist stefna Íslands gagn­vart þessu fólki?“ spurði hann enn fremur og bætti því við að nú væru tíu umsækj­endur um alþjóð­lega vernd komnir á göt­una eftir að Útlend­inga­stofnun henti þeim út og svipti þá fram­færslu.

„Skítt með mannúð og mann­rétt­indi. Það á að svelta þetta flótta­fólk til hlýðni þannig að það sé hægt að pína það aftur í óboð­legar aðstæður í gríska hæl­is­kerf­inu. Hér er stefna Íslands: Út á guð og gadd­inn,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár