Guðjón Brjánsson hættir á þingi í haust

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi mun ekki sækj­ast eftir því að leiða lista flokks­ins að nýju til Alþing­is­kosn­inga síðar á árinu.

Guðjón S. Brjánsson þingmaður Samfylkingar ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu.
Guðjón S. Brjáns­son þing­maður Sam­fylk­ingar ætlar ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu. Mynd: Bára Huld Beck

Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, ætlar ekki að gefa kost á sér í flokksvali flokks­ins í kjör­dæm­inu, sem fram fer síðar í þessum mán­uði.

Í yfir­lýs­ingu frá Guðjóni segir að hugur hans hafi ekki lengur fylgt hjarta þegar kom að ákvarð­ana­töku um að gefa kost á sér að nýju.

„Mig langar að eyða meiri tíma með minni fjöl­skyldu og fylgj­ast með barna­börn­unum dafna og þroskast sem ég hef ekki haft nægi­legan tíma til að gera,“ segir Guðjón, sem verið hefur eini þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í kjör­dæm­inu.

„Ég er þakk­látur fyrir þann heiður að hafa fengið að sitja á Alþingi fyrir hönd jafn­að­ar­manna og að hafa barist fyrir hags­munum lands­manna allra á þingi. Ég þakka öllum mínum kjós­endum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og sam­starfs­fé­lögum fyrir stuðn­ing­inn á liðnum árum,“ segir í yfir­lýs­ingu Guðjóns.

Þing­mað­ur­inn hefur setið sem 1. vara­for­seti Alþingis og starfað í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, vel­ferð­ar­nefnd og umhverfis- og sam­göngu­nefnd ásamt því að hafa verið for­maður Íslands­deildar Vest­nor­ræna ráðs­ins.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár