Ísland áfram á gráa listanum eftir febrúarfund FATF – Getum næst losnað í júní

Ísland losn­aði ekki af gráum lista sam­tak­anna FATF um þau ríki sem eru með ónógar varnir gegn pen­inga­þvætti, þegar aðild­ar­ríki þeirra fund­uðu í lok síð­ustu viku. Næsta tæki­færi til að losna af list­anum er í júní.

Ísland fór ekki af hinum svo­kall­aða gráa lista sam­tak­anna Financial Action Task Force (FATF) á fundi aðild­ar­ríkja þeirra sem fram fór í lok síð­ustu viku. Lönd lenda á list­anum ef sam­tökin telja að varnir þeirra gegn pen­inga­þvætti séu ekki í lagi.

Eftir að Ísland var sett á list­ann í októ­ber í fyrra mættu bæði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mættu fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis. Þar kom fram að stjórn­völd stefndu að því að kom­ast af list­anum á fundi sam­tak­anna í febr­úar 2020. Nú er ljóst að svo er ekki.

Á gráa list­anum eru alls 18 ríki. Ísland er eina ríkið innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins sem er á honum en á meðal ann­arra sem þar er að finna eru Albanía, Kambódía, Bahama­eyjar, Pakístan, Sýrland, Panama og Simbabve.

[links]Í umsögn um Ísland, á und­ir­síðu sam­tak­anna þar sem talin eru upp þau lönd sem eru á gráum lista fyrir ónógar aðgerðir gegn pen­inga­þvætti, kemur fram að Ísland hafi tekið nokkrar póli­tískar ákvarð­anir um að skuld­binda sig til að auka virkni varna sinna. Á meðal þess sem gert hafi er að fjölga starfs­mönnum í þeim eft­ir­lits­stofn­unum sem hafa slíkt eft­ir­lit með höndum, sér­stak­lega innan skrif­stofu fjár­mála­grein­inga hjá hér­aðs­sak­sókn­ara. Þar segir að Ísland ætti að halda áfram að inn­leiða áætlun sína um að bæta úr brota­lömum þar sem þær eru að finna, meðal ann­ars með því að mæti fyr­ir­liggj­andi skorti á réttum upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur fyr­ir­tækja.

Næsta tæki­færi Íslands til að kom­ast af list­anum mun verða á fundi FATF í júní.

Þurfum að klára skráningar á raunverulegum eigendum

Skortur á því að raun­veru­legt eign­ar­hald á íslenskum félögum lægi fyrir var eitt af þeim atriðum sem verð til þess að FATF setti Ísland á gráan lista sam­tak­anna í októ­ber 2019. Ein for­senda þess að Ísland verði tekið af list­anum er að skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda verði komið í almenni­legt horf á þessu ári.

Lög sem flýttu fresti sem félög hafa til þess að upp­­lýsa um raun­veru­­lega eig­endur sína til 1. mars næst­kom­andi voru sam­­þykkt skömmu fyrir síð­­­ustu jól. Þær upp­lýs­ingar þurfa því að liggja fyrir í byrjun næstu viku.

[adspot]Þegar voru í gildi kvaðir um að upp­­lýsa um raun­veru­­lega eig­endur þegar nýtt félag er stofn­að. Þær hafa verið í gildi frá 30. ágúst síð­­ast­liðnum og frá 1. des­em­ber hefur verið hægt að senda upp­­lýs­ingar um hverjir þeir eru með raf­­rænum hætti til rík­­is­skatt­­stjóra. Upp­haf­lega stóð til að gefa öðrum félög­um, þ.e. þeim sem þegar eru í rekstri, frest til 1. des­em­ber 2019 til að koma upp­­lýs­ingum um raun­veru­­lega eig­endur til emb­ættis rík­­is­skatt­­stjóra. hefði sá frestur haldið ætti rík­­is­skatt­­stjóri því að vera kom­inn með allar upp­­lýs­ingar um eig­endur félaga sem starfa á Íslandi, ef allir fylgdu lög­­un­­um.

Ákveðið var að flýta þeim frest eftir að FATF setti Ísland á gráa list­ann.

Brotala­mir í eft­ir­liti banka

Á Íslandi hefur verið hægt að kom­­­ast upp með það að fela eign­­­ar­hald félaga, með ýmsum leið­­­um. Ein sú algeng leið var fólgin í því að láta félög, t.d. eign­­­ar­halds­­­­­fé­lög eða rekstr­­­ar­­­fé­lög, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu ann­­­arra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skatta­­­skjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skrán­ingar og skil á gögn­­­um. Þannig hefur verið verið hægt að fela hver raun­veru­­­legur eig­andi félaga er.

Hér á landi hefur slíkt eft­ir­lit aðal­­­lega verið á hendi banka. Í kjöl­far þess að FATF gerði úttekt á Íslandi, og skil­aði þeirri nið­­ur­­stöðu vorið 2018 að eft­ir­lit Íslands með pen­inga­þvætti fengi fall­ein­kunn, þá hóf Fjár­­­mála­eft­ir­litið að gera athug­­anir á íslenskum fjár­­­mála­­fyr­ir­tækjum og getu þeirra til að verj­­ast pen­inga­þvætt­i.

[adspot]Nið­­ur­­stað­an, sem birt var helg­ina fyrir jólin 2019, var sú að Fjár­­­mála­eft­ir­litið gerði athuga­­semdir við mat allra íslensku við­­skipta­­bank­anna á upp­­lýs­ingum um raun­veru­­lega eig­endur fjár­­muna eða félaga sem eru, eða hafa ver­ið, í við­­skiptum við þá. Í nið­­ur­­stöðum eft­ir­lits­ins á athugun eft­ir­lits­ins á pen­inga­þvætt­is­vörnum þeirra voru gerðar athuga­­semdir við þeir hafi ekki metið upp­­lýs­ingar um raun­veru­­lega eig­endur með sjálf­­stæðum hætti.

Dag- og stjórn­­­valds­­sektir

Sam­­kvæmt nýju lög­­unum um raun­veru­­lega eig­endur þá er hægt að refsa þeim sem ekki fylgja þeim. Ef eig­endur félaga upp­­lýsa ekki um hver hinn raun­veru­­legi eig­andi er, með fram­vísun þeirra gagna sem lögin kalla á, þá getur rík­­is­skatt­­stjóri lagt á tvenns konar sektir á við­kom­and­i.

Ann­ars vegar er um dag­­sektir að ræða. Þær geta numið frá tíu þús­und krónum og allt að 500 þús­und krónum á dag. Heim­ilt er að ákvæða umfang þeirra sem hlut­­fall af til­­­teknu stærðum í rekstri við­kom­and­i. Við ákvörðun um fjár­­hæð dag­­sekta er heim­ilt að taka til­­lit til eðlis van­rækslu eða brots og fjár­­hags­­legs styrk­­leika við­kom­andi aðila. Dag­­sekt­­irnar sem verða ákvarð­aðar eru aðfar­­ar­hæf­­ar.

Hins vegar er um stjórn­­­valds­­sektir að ræða. Þær er hægt að leggja á þá sem veita ekki upp­­lýs­ingar eða veita rang­­ar/vill­andi upp­­lýs­ing­­ar. Þegar brot á lög­­unum er framið í starf­­semi lög­­að­ila, og í þágu hans, má leggja stjórn­­­valds­­sekt á lög­­að­il­ann án til­­lits til þess hvort sök verður sönnuð á fyr­ir­svar­s­­mann eða starfs­­mann lög­­að­ila. „Sektir sem lagðar eru á ein­stak­l­inga geta numið frá 100 þús. kr. til 5 millj. kr. Sektir sem lagðar eru á lög­­að­ila geta numið frá 500 þús. kr. til 80 millj. kr. en geta þó verið hærri eða allt að 10 pró­­sent af heild­­ar­veltu sam­­kvæmt síð­­asta sam­­þykkta árs­­reikn­ingi lög­­að­il­ans eða 10 pró­­sent af síð­­asta sam­­þykkta sam­­stæð­u­­reikn­ingi ef lög­­að­ili er hluti af sam­­stæð­u,“ segir í lög­­un­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár