Vopnaðir hópar í Bandaríkjunum reiðubúnir að verjast stjórnvöldum

Hópur vopn­aðra ein­stak­linga hefur frá því á laug­ar­dags­kvöld haf­ist við í þjóð­garðs­bygg­ingu á afskekktum stað í Oregon í Banda­ríkj­unum. Hópurinn kennir sig sjálfur við enska orðið militia, sem á íslensku gæti þýðst sem þjóð­varða­lið eða vara­lið. Um hvað snýst málið og hvaða þýð­ingu hafa þjóð­varða­lið í Banda­ríkj­unum?

Grunnurinn að málinu

Hópurinn tók bygg­ing­una í Oregon yfir og hefur heitið því að haf­ast þar áfram við til að mót­mæla fram­ferði stjórn­valda gagn­vart feðgum á svæð­inu. Feðgarnir Dwight og Steven Hammond voru dæmdir í fang­elsi fyrir íkveikju á landi hins opin­bera árið 2001. Þeir voru dæmdir til stuttrar fang­els­is­vistar en svo dæmdir á ný til lengri vistar, og þeir gáfu sig fram við yfir­völd í gær til að sitja af sér dóm­inn. Þeir segj­ast reyndar sak­lausir og að þeir hafi kveikt eld til að stöðva útbreiðslu ill­gresis og koma í veg fyrir að skóg­ar­eldar bryt­ust út. Sak­sókn­arar héldu því hins vegar fram að þeir hefðu verið að fela sönn­un­ar­gögn um veiði­þjófnað.

Upp­haf­lega var mál­inu mót­mælt frið­sam­lega en í kjöl­farið fór þessi litli hópur inn í bygg­ing­una og tók hana yfir. Ammon Bundy, einn þeirra sem þarna hefst við, segir að stjórn­völd hafi brotið marg­vís­leg rétt­indi feðganna. Þeir hafi fyrir það fyrsta ekki gert neitt af sér, og í öðru lagi hafi þeir þegar setið í fang­elsi vegna máls­ins. Hópurinn telur líka að ríkið eigi að láta landið sem um ræðir í hendur einka­að­ila á svæð­inu, og þá komum við að stærra máli.

Hópar gegn stjórnvöldum

Hópar af þessu tagi eiga það nefni­lega flestir sam­eig­in­legt að vera mót­fallnir stjórn­völdum og eitt meg­in­þemað í svona hópum er ótti við að alrík­is­stjórnin skipti sér af því sem þeir telja óskor­aðan rétt til að ganga með og eiga byssur. Þjóð­varða­liðin munu verj­ast stjórn­völdum ef til þess kemur. Sumir hópar telja sig ekki bundna af alrík­is­lögum og margir eru mót­fallnir mik­illi skatt­heimtu. Hóparnir eru iðu­lega langt til hægri.

Hópar sem eru skil­greindir sem mót­fallnir stjórn­völdum – anti-govern­ment – eru vel yfir þús­und tals­ins og hefur farið mjög fjölg­andi und­an­farin ár. Þar af eru nokkur hund­ruð hópar sem skil­greina sig sem þjóð­varða­lið (militia), hópar sem eru vopn­aðir skot­vopnum og stunda hern­að­ar­æf­ingar. Þessum hópum hefur fjölgað mikið á und­an­förnum árum. Það hefur meðal ann­ars verið tengt við kjör Baracks Obama sem for­seta.

Hér að neðan má sjá mynd­band sem sýnir þjóð­varða­lið í Miss­issippi að störfum.

Lög­reglu­stjór­inn í Harney-sýslu í Oregon hefur sagt að hóp­ur­inn sem tók bygg­ing­una yfir hafi í raun það mark­mið að steypa stjórn­völdum í sýsl­unni og alrík­is­stjórn­inni af stóli „í von um að hrinda af stað hreyf­ingu um öll Banda­ríkin,“ sagði hann.

Bundy og fjöl­skylda hans eru ekki ókunnug upp­reisnum af þessu tagi. Árið 2014 náði faðir hans með vopna­valdi að koma í veg fyrir að stjórn­völd tækju frá honum búfénað, og fjöl­skyldan hlaut nokkra frægð fyrir vikið. Hann segir nú að það hafi verið guð sem sagði honum að fara til Oregon og verja feðgana tvo sem hann þekkir ekki. Það sé spurn­ing um rétt­indi ein­stak­linga gegn stjórn­völdum. Fólkið hafi leyft stjórn­völdum að ganga of langt, fara út fyrir stjórn­ar­skrána og seil­ast í völd inni í ríkjum og sýslum.

Obama að kynna aðgerðir í byssumálum

Aðgerð­irnar í Oregon koma á sama tíma og Barack Obama Banda­ríkja­for­seti til­kynnti um það að hann hygð­ist fara fram­hjá þing­inu og kynna hert­ari reglur um byssu­eign. Nánar verður kynnt hvað hann hyggst gera seinna í dag, en hann getur gripið til tak­mark­aðra aðgerða án aðkomu þings­ins. Hann mun kynna aðgerðir til að útvíkka bak­grunns­skoð­anir fyrir ákveðnar teg­undir byssu­kaupa og meira verður lagt í að fylgja eftir byssu­lög­gjöf­inni á alrík­is­stig­inu.

For­seta­fram­bjóð­and­inn og repúblika­inn Donald Trump sagði í gær að „bráðum verður ekki hægt að fá byssur“ á meðan sam­tök sem berj­ast gegn byssu­of­beldi fögn­uðu aðgerðum Obama sem sögu­legum.

Umsátrið í Oregon og aðgerðir Obama tengj­ast, þó ekki sé nema þeim hætti að báðir við­burðir und­ir­strika hversu ólíkar skoð­anir á hlut­verki alrík­is­stjórn­valda og á byssum fyr­ir­finn­ast í Banda­ríkj­unum, og hversu mikið þessi mál verða í sviðs­ljós­inu á þessu kosn­inga­ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár