Útganga Pólverja úr Istanbúlsamningnum ógni lífi og heilsu pólskra kvenna

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir ætlar að koma athuga­semdum á fram­færi við sendi­herra Póllands á fundi þeirra á föstu­dag. Hún segir Ist­an­búl­samn­ing­inn vera eitt öfl­ug­asta tæki til að berj­ast gegn kyn­bundnu ofbeldi, heim­il­is­of­beldi og þving­uðum hjóna­böndum.

Rósa Björk er formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins og fráfarandi varaforseti þess.
Rósa Björk er for­maður Íslands­deildar Evr­ópu­ráðs­þings­ins og frá­far­andi vara­for­seti þess. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, for­maður Íslands­deildar Evr­ópu­ráðs­þings­ins og frá­far­andi vara­for­seti þess, ætlar að funda með Gerard Pokruszyński, sendi­herra Póllands hér á landi, á föstu­dag til að ræða stöð­una og til að koma sínum athuga­semdum á fram­færi í kjöl­far þess að Pólland ætlar að draga sig út úr Ist­an­búl­samn­ingnum.

Ist­an­búl­samn­ing­ur­inn er samn­ingur um for­varnir og bar­áttu gegn ofbeldi gagn­vart konum og heim­il­is­of­beldi. Hann var sam­þykktur á vett­vangi Evr­ópu­ráðs­ins 11. maí 2011 en hér landi var hann full­giltur í apríl 2018.

Myndi hafa alvarlegar afleiðingar

Í sam­tali við Kjarnann segir Rósa Björk Ist­an­búl­samn­ing­inn vera einn mik­il­væg­asta samn­ing Evr­ópu­ráðs­ins og eitt öfl­ug­asta tæki til að berj­ast gegn kyn­bundnu ofbeldi, heim­il­is­of­beldi og þving­uðum hjóna­böndum. Það myndi hafa alvar­legar afleið­ingar fyrir líf kvenna og stúlkna í Póllandi ef Pól­verjar segja sig frá samn­ingnum.

„Pólsk stjórn­völd hafa í raun og veru verið að búa til mis­skiln­ing og und­ir­róður því þau segja að Ist­an­búl­samn­ing­ur­inn grafi undan hinum íhalds­sam­ari gildum hjóna­bands­ins, sem er nátt­úr­lega vit­leysa og rang­færslur. Þau hafa notað Ist­an­búl­samn­ing­inn í þessum leið­angri sínum til að draga veru­lega úr rétt­indum sam­kyn­hneigðra,“ segir Rósa sem ætlar einnig að ræða mál­efni sam­kyn­hneigðra í Póllandi á fundi hennar við sendi­herr­ann.

„Pólland var engu að síður eitt af þeim löndum sem var fyrst til þess að full­gilda samn­ing­inn og það yrðu alveg ótrú­lega miklir álits­hnekkir fyrir Pólland að draga sig frá þessum samn­ingi, burt­séð frá því hversu alvar­leg ógn það yrði fyrir líf og heilsu pól­skra kvenna og stúlkna,“ segir Rósa.

Samningurinn mætir mótstöðu víðar

Hún telur ekki lík­legt að önnur lönd segi sig frá samn­ingnum en hann hefur engu að síður mætt and­stöðu. Til að mynda hafi stjórn­ar­skrár­dóm­stóll Búlgaríu reynt að hnekkja því að Ist­an­búl­samn­ing­ur­inn hafi laga­lega stoð þar í landi.

Þar að auki hafi byggst upp mót­staða í Rúss­landi með stuðn­ingi rúss­nesku rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar. „Rússland sem var að koma aftur inn í Evr­ópu­ráðið eftir fimm ára hlé, þeir hafa ekki enn skrifað undir Ist­an­búl­samn­ing­inn og breyt­ingar á stjórn­ar­skránni nýlega í Rúss­landi voru þess eðlis að eitt af því sem var í þeim breyt­ingum var þetta íhalds­sama fyr­ir­komu­lag á hjóna­bandi, að það geti bara verið milli karls og konu,“ segir Rósa.

„Við sem erum í Evr­ópu­ráð­inu sjáum að það eru þessi aft­ur­halds­sömu öfl sem kynda undir kven­fyr­ir­litn­ingu sem hafa verið að grafa undan Ist­an­búl­samn­ingnum með því að sá efa­semd­ar­fræjum um hann sem eru byggð á full­komnum mis­skiln­ingi og útúr­snún­ingi,“ segir Rósa að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár