Breska ríkisútvarpið sker niður og fækkar störfum um þúsund

Breska rík­is­út­varpið BBC mun leggja niður fleiri en þús­und störf í sparn­að­ar­skyni til þess að mæta því að 150 millj­ónir punda vantar upp á í rekstur fjöl­mið­ils­ins fyrir árið 2016-2017. Starfs­fólki mun því fækka um meira en fimm pró­sent fyrir upp­haf næsta árs, en nú starfa um 18 þús­und manns hjá stofn­un­inni.

Þessar 150 millj­ónir punda sem vantar upp á eru að mestu leyti til­komnar vegna þess að fleiri heim­ili en gert hafði verið ráð fyrir borga ekki afnota­gjöld. Milljón færri Bretar segj­ast eiga sjón­varp en gert hafði verið ráð fyrir í áætl­unum frá árinu 2011.

Tony Hall, fram­kvæmda­stjóri BBC, til­kynnti starfs­fólki þetta á fundi í London í morgun. Hann sagði að nú þegar hefði verið veru­lega skorið niður í rekstri BBC en að á erf­iðum tímum þurfi að leggja áherslu á það sem skiptir virki­lega máli - að búa til fram­úr­skar­andi efni og dag­skrá fyrir alla áhorf­endur og áheyr­endur. „Mín meg­in­til­laga er þessi - áður en við gerum nokkuð annað sem hefur áhrif á þjón­ustu okkar - þá þurfum við að tryggja að við séum að reka þetta á eins árang­urs­ríkan, áhrifa­ríkan og ein­faldan hátt og mögu­legt er.“

Gert er ráð fyrir því að 50 millj­ónir punda sparist með því að fækka stjórn­endum og sam­eina deildir. Sums staðar í stofn­un­inni eru tíu lög af stjórn­endum, en eftir breyt­ingar verða aldrei fleiri en sjö lög stjórn­enda. Þetta verður til þess að sér­stak­lega hátt­settir stjórn­endur munu koma til með að missa vinn­una.

Þá verða gerðar breyt­ingar á stoð­deildum eins og mark­aðs- og sam­skipta­deildum, fjár­mála­deildum, mannauðs­deildum, tölvu- og lög­fræði­deildum. Einfalda á þessar deildir og það verður til upp­sagna líka.

Hall sagð­ist gera sér grein fyrir því að þetta yrði mjög erfitt, og að margir myndu nú ótt­ast um stöðu sína. „Þetta eru miklar breyt­ingar og þær munu eiga sér stað nokkuð hratt. En - ég vil að þið vitið það öll að við munum gera þetta almenni­lega og á sann­g­arnan hátt.“

Afnota­gjöld hafa ekki verið hækkuð und­an­farið og kostn­aður BBC hefur auk­ist. Stjórn­völd í Bret­landi hafa uppi áform um að hætta að sekta fólk fyrir að borga ekki afnota­gjöld en nota samt þjón­ust­una. Talið er að það gæti rýrt tekjur stofn­un­ar­innar um 200 millj­ónir punda til við­bótar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár