Bjarni Ben: Hjúkrunarfræðingum boðin 20% hækkun en vilja 40 til 50%

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að hjúkr­un­ar­fræð­ingar krefj­ist 40 til 50 pró­senta launa­hækk­anna en ríkið hafi boðið þeim um það bil 20 pró­senta hækkun á næstu árum. Þetta kom fram í svari Bjarna við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Árna Páls Árna­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um kjara­deil­urnar á þingi í dag.

„Það eru kröf­urnar sem menn standa frammi fyrir, að ofan á þær almennu launa­hækk­anir [...] verði bætt fyrir gliðnun upp á 14 til 25 pró­sent á næstu þremur árum,“ sagði Bjarni, og bætti því við að því væri krafan nærri því að vera 40 til 50 pró­senta hækkun.

„Í þessu til­tekna máli, ef menn vilja vita það, þá hefur ríkið boðið um það bil 20 pró­senta hækkun á næstu árum til hjúkr­un­ar­fræð­inga. Ég get full­yrt það að laun hjúkr­un­ar­fræð­inga á Norð­ur­lönd­unum eru ekki að fara að hækka um þær fjár­hæðir en það er langt í land með að jafna kjörin en það ger­ist ekki í einum samn­ingi.“ Hann sagði hægt að bjóða veru­legar kjara­bætur og meiri stöð­ug­leika, „en það er ekki hægt að fall­ast á allar kröfur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár