Þórunn Egilsdóttir fer ekki fram á ný

Þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og odd­viti hans í Norð­aust­ur­kjör­dæmi mun ekki bjóða sig fram í næstu alþing­is­kosn­ingum. Þórunn ætlar að ein­beita sér að því að takast á við bar­áttu við krabba­mein með bjart­sýn­ina að vopni.

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Þórunn Egils­dóttir, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þórunn Egils­dóttir, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og þing­flokks­for­maður, mun ekki gefa kost á sér í næstu alþing­is­kosn­ingum. Frá þessu greinir hún í færslu á Facebook í dag. 

Þórunn sagði frá því á sama vett­vangi í kringum jóla­há­tíð­ina að hún hefði að nýju greinst með krabba­mein, en fyrst greind­ist Þórunn með brjóstakrabba­mein í upp­hafi árs 2019 og hélt það henni frá störfum síð­asta vetur og fram til vors 2020.

Í lok árs­ins 2020 kom svo bakslag, Þórunn fór að finna fyrir óþæg­indum og í ljós kom að ekki var allt með felldu.

„Meinið hefur tekið sig upp að nýju en brýnt er að vera bjart­sýn. Maður verður alltaf að horfa fram á við. Og maður má aldrei missa von­ina. Aldrei. Framboð til Alþingis verður hins vegar að bíða betri tíma. Ég mun því ekki gefa kost á mér til að leiða lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ingum,“ ritar Þórunn, sem hefur setið á þingi frá því árið 2013.

Hún hafði áður boðað að hún myndi gefa kost á sér til þess að leiða lista Fram­sóknar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi á ný í kosn­ing­unum sem eiga að fara fram í sept­em­ber og seg­ist hafa verið full bjart­sýni og trúað því að meinið væri farið.

Þórunn segir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi komið miklu til leiðar með sam­vinnu og áræðni. „Sam­vinnu­hug­sjónin, félags­leg gildi og mik­il­vægi land­bún­aðar og byggðar í land­inu öllu eiga fullt erindi í stjórn­málin, nú sem aldrei fyrr. Þar er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í lyk­il­hlut­verki,“ skrifar Þórunn og segir félags­hyggju- og sam­vinnu­fólk eiga gott fólk með mikla reynslu sem sé til­búið í verk­efnið.

„Ég vona og veit að okkur ber gæfa til að starfa saman enda er það lyk­ill­inn að árangri,“ skrifar Þórunn.

Þórarinn Ingi Pét­urs­son vara­þing­maður hefur tekið sæti Þórunnar á þingi, en hann gegndi einnig þing­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í fjar­veru Þórunnar síð­asta vetur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár