Gísli Freyr Valdórsson nýr ritstjóri Þjóðmála

Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur er orð­inn rit­stjóri Þjóðmála. Fyrsta tölu­blaðið undir hans rit­stjórn er komið út.

Gísli Freyr Valdórsson, nýr ritstjóri Þjóðmála.
Gísli Freyr Val­dórs­son, nýr rit­stjóri Þjóðmála. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Gísli Freyr Val­dórs­son er tekin við rit­stjórn Þjóðmála, tíma­rits um stjórn­mál og menn­ingu sem kemur út árs­fjórð­ungs­lega. Hann greinir frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook að fyrsta tölu­blaðið undir hans rit­stjórn sé komið út og verði á næst­unni dreift til áskrif­enda. „Það er alltaf pláss fyrir smá póli­tík í líf­inu,“ segir Gísli Freyr í færsl­unni.

Þjóð­málum var síð­ast stýrt af Óla Birni Kárasyni. Óli Björn var hins vegar kosin á þing í kosn­ing­unum í októ­ber 2016 fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og lét í kjöl­farið af störfum. Hann tók við starf­inu í októ­ber 2015 af Jakobi F. Ásgeirs­syni, sem hafði þá setið í rit­stjóra­stólnum í ára­tug. Í Þjóð­málum er fjallað um stjórn­mál og flestir greina­höf­undar eða reglu­legir skríbentar eru með sterk tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Í skrifum blaðs­ins má greina þá strauma sem eru hverju sinni á hægri­væng og í íhalds­kreðsum stjórn­mál­anna.

[adspot]

Gísli Freyr var lengi vel áber­andi í íslenskum stjórn­málum auk þess sem hann starf­aði lengi sem blaða­maður á Við­skipta­blað­inu. Hann gengdi starfi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur eftir að hún tók við starfi inn­an­rík­is­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar 2013. Hann lék stórt hlut­verk í leka­mál­inu svo­kall­aða. Í ágúst 2014 var hann ákærður fyrir að leka trún­að­ar­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­anda úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til fjöl­miðla í nóv­em­ber 2013. Hann var í kjöl­farið leystur frá störfum á meðan að málið væri til með­ferðar fyrir dóm­stólum. Gísli Freyr neit­aði stað­fast­lega sök á þeim tíma.

Degi áður en málið var tekið fyrir í hér­aðs­dómi – 13. nóv­em­ber 2014 – ját­aði Gísli Freyr brot sitt fyrir Hönnu Birnu og hlaut síðan átta mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir brot sitt þann 14. nóv­em­ber sama ár. Hann undi dómnum og áfrýj­aði honum ekki til Hæsta­réttar. Málið leiddi á end­anum til þess að Hanna Birna sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra rúmri viku síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár