Obama blandar sér í deilurnar í Suður-Kínahafi

Banda­ríkja­for­seti hefur kallað eftir því að Kín­verjar hætti að hrella smærri ríki sem gera til­kall til haf­svæðs­ins á Suður-Kínahafi.

Obama flutti ræðu í Manila í gærkvöldi þar sem hann sagði Kínverja einfaldlega verða að hætta að hnykla vöðvana.
Obama flutti ræðu í Manila í gær­kvöldi þar sem hann sagði Kínverja ein­fald­lega verða að hætta að hnykla vöðvana. Mynd: EPA

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, sagði í ræðu í Manila á Fil­ipps­eyjum að Kín­verjar yrðu að hætta end­ur­heimt lands í Suður-Kínahafi. Banda­ríkin stæðu þétt með Fil­ipps­ey­ingum þegar kæmi að vörnum og öryggi lands­ins. Fil­ipps­eyjar gera til­kall til yfir­ráða á svæð­inu þar sem Kín­verjar hafa byggt mann­gerðar eyjur og siglt her­skipum sínum.

Reuters greindi frá þessu í morgun. Obama flutti ræðu eftir fund sinn með Benigno Aquino, for­sæt­is­ráð­herra Fil­ipps­eyja. Nú stendur yfir ráð­stefna Asíu- og Kyrra­hafs­ríkja í Manila. Obama ítrek­aði að hann hlakk­aði til þegar öll ríkin sem gera til­kall til haf­svæð­is­ins leysi þessa deilu sín á milli.

Upp­bygg­ing lands í Suður-Kínahafi hefur verið bit­bein ríkja í Suð­austur Asíu um nokk­urt skeið. Kína hefur komið her­gögnum fyrir á þessum mann­gerðu eyjum sínum og hrekur á brott hvern þann sem reynir að kom­ast nálægt. Banda­ríski her­inn flaug nýverið yfir eyj­arnar og mynd­aði.

Kín­verjar hafa áður sagt að nú sé upp­bygg­ingu eyj­anna lokið. Kjarninn fjall­aði um þá yfir­lýs­ingu Kínverja í sumar þegar utan­rík­is­ráð­herra Kína, Wang Yi, tal­aði á fundi ríkj­anna í Suð­austur Asíu (ASEAN) í ágúst. Þá hafa Japanir veitt meira fé til varn­ar­mála til að mæta Kína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár