Enn djúpur ágreiningur um eyjaklasa í Suður-Kínahafi þrátt fyrir útspil Kínverja

Kína segj­ast hafa dregið sig í hlé í Suður-Kínahafi þar sem Kín­verjar hafa staðið í upp­bygg­ingu á umdeildum eyja­klasa. Utan­rík­is­ráð­herra Kína, Wang Yi, til­kynnti þetta á fundi ríkj­anna í Suð­austur Asíu (ASEAN) í Kúala Lúmpúr í gær. Í dag hófust svo sátta­við­ræður um svæðið en þær strönd­uðu á orða­lagi og skil­grein­ingu svæð­is­ins.

Löndin sem gera til­kall til Spratly-eyja­kla­s­ans eru Kína, Tævan, Víetnam, Fil­ips­eyjar, Brúnei og Malasía. Kína sagði í júní að þeir myndu bráð­lega hætta fram­kvæmdum við mann­gerðar eyjar á grynn­ingum í eyja­kla­s­anum og hvetja löndin sem deila til að hraða samn­inga­við­ræðum um svæðið.

Spratly-eyja­klas­inn er umdeildur því þarna býr eng­inn þjóð­flokkur inn­fæddra sem gerir til­kall til eyj­anna. Hins vegar er talið að þarna leyn­ist miklar olíu- og gaslindir og væn fiski­mið sem gætu reynst verð­mæt.

Spratly sam­anstendur af smáum eyjum, skerjum, kór­al­rifjum og hættu­legum grynn­ingum fyrir skip. Á um það bil 45 eyjum hafa verið byggð hern­arð­armann­virki land­anna sem deila. Um svæðið fara margar mik­il­vægar flutn­inga­leiðir milli þess­ara landa sem deila.

Charles Jose, utan­rík­is­ráð­herra Fil­ips­eyja, segir hins vegar Kínverja vilja snúa þessum tíma­mótum upp í frið­ar­um­leit­anir því nú væri fyrsta fasa fram­kvæmd­anna þeirra lokið. „Á sama tíma er Kína að taka næsta skref sem er upp­bygg­ing mann­virkja á þessum mann­gerðu eyjum. Fil­ips­eyjar telja þessar aðgerðir Kínverja valda ójafn­vægi.“

Á fundi ASEAN-ríkj­anna hefur fátt annað kom­ist að en umræður um skil­grein­ingu lög­sögu land­anna umhverfis eyja­kla­s­ann. Fund­ur­inn hefur taf­ist tölu­vert vegna þessa en honum átti að ljúka í gær. Tafirnar eru sagðar til merkis um djúpan ágrein­ing sem enn ríkir um þetta svæði, þrátt fyrir útspil Kínverja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár