Fleiri Mexíkóar fara frá Bandaríkjunum en koma til þeirra

Landamærin milli Bandaríkjanna og Mexíkó eru þegar hulin vegg að hluta.
Landa­mærin milli Banda­ríkj­anna og Mexíkó eru þegar hulin vegg að hluta. Mynd: EPA

Fleiri mexíkóskir inn­flytj­endur hafa yfir­gefið Banda­ríkin á und­an­förnum árum en hafa sest þar að. Þetta sýnir rann­sókn Pew rann­sókn­ar­stöðv­ar­innar í Banda­ríkj­unum frá því fyrir jól, en nið­ur­stöð­urnar eru þvert á það sem ætla mætti af umræð­unni í kringum for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum. Ólög­legum inn­flytj­endum frá Mexíkó fer jafn­framt fækk­andi.

Donald Trump nýtur mik­illa vin­sælda í fram­boði sínu til að verða for­seta­fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins. Meðal þess sem hann hefur gert að aðal­at­riði í sinni kosn­inga­bar­áttu eru inn­flytj­enda­mál. Hann hefur lofað því að hann muni sem for­seti láta byggja vegg á landa­mær­unum við Mexíkó, og að Mexíkó muni borga fyrir slíka fram­kvæmd, til þess að stöðva flæði inn­flytj­enda þaðan. Hann hefur sagt að stjórn­völd í Mexíkó sendi vís­vit­andi nauð­gara, eit­ur­lyfja­smygl­ara og almenna glæpa­menn yfir landa­mærin til Banda­ríkj­anna, það sé uppi­staðan í hópi mexíkóskra inn­flytj­enda í land­inu. Hann hefur lagt til að millj­ónir ólög­legra inn­flytj­enda verði fluttir úr landi, en stærsti ein­staki hóp­ur­inn meðal ólög­legra inn­flytj­enda í Banda­ríkj­unum er einmitt inn­flytj­endur frá Mexíkó.

Í síð­ustu viku var svo fyrsta sjón­varps­aug­lýs­ingin hans sett í birt­ingu í Banda­ríkj­unum. Þar eru inn­flytj­enda­málin sann­ar­lega í for­grunni, eins og sjá má hér að neðan.

Fleiri fara en koma

Mexíkóar eru stærsti inn­flytj­enda­hóp­ur­inn í Banda­ríkj­unum, hvort sem litið er til ólög­legra inn­flytj­enda eða skráðra. 28% allra inn­flytj­enda í Banda­ríkj­unum árið 2013 voru fæddir í Mexíkó sam­kvæmt opin­berum tölum og sam­kvæmt þeim tölu­legu gögnum sem til eru er tæp­lega helm­ingur ólög­legra inn­flytj­enda í land­inu frá Mexíkó, eða 5,6 millj­ónir manna.

Frá því að krepp­unni lauk um mitt ár 2009 hafa fleiri inn­flytj­endur frá Mexíkó farið aftur til síns heima en hafa komið til Banda­ríkj­anna. Ein milljón Mexíkóa, þar á meðal börn sem fædd­ust í Banda­ríkj­unum, fór frá Banda­ríkj­unum og til Mexíkó á árunum 2009 til 2014, sam­kvæmt mexíkóskum gögnum. Á sama tíma­bili komu 870 þús­und mexíkóskir rík­is­borg­arar til Banda­ríkj­anna frá Mexíkó.

Ýmsar til­gátur eru uppi um ástæð­urnar fyrir því. Banda­ríska hag­kerfið hefur ekki náð sér eins hratt á strik eftir krepp­una og það gæti hafa stuðlað að því að færri sjái sér hag í því að flytj­ast til Banda­ríkj­anna. Jafn­framt getur það hafa haft þau áhrif að mexíkóskir inn­flytj­endur hafi misst vinn­una og farið aftur heim. Þá hefur inn­flytj­enda­lögum verið fylgt harðar eftir, sér­stak­lega á landa­mær­unum við Mexíkó, og það hefur und­an­farin tíu ár skilað sér í því að fleirum er vísað úr landi. Engu að síður fór stærsti hluti þeirra sem héldu aftur til Mexíkó síð­ustu fimm ár af sjálfs­dáðum, sam­kvæmt mexíkóskum rann­sóknum, og algeng­asta ástæðan var sögð fjöl­skyldu­sam­ein­ing. 

Ólöglegum innflytjendum fækkar

Ein ástæða er svo sú að ólög­legum inn­flytj­endum frá Mexíkó hefur fækkað veru­lega á und­an­förnum árum, sam­kvæmt rann­sóknum. Und­an­farin fimm ár hefur fjöldi ólög­legra inn­flytj­enda verið stöð­ugur, en fram til árs­ins 2007 jókst fjöld­inn veru­lega og náði hápunkti í 12,2 millj­ónum manna. Í krepp­unni fækk­aði ólög­legum inn­flytj­endum um milljón og síðan þá hefur fjöld­inn verið nokkuð stöð­ugur. Mestu mun­aði um fækkun mexíkóskra inn­flytj­enda.

Hefur hann aldrei komið að landamærunum?

Hug­myndin um að byggja vegg á landa­mær­unum við Mexíkó hefur verið mikið rædd frá því að Trump setti hana fyrst fram. En í ríkj­unum sem eiga landa­mæri að Mexíkó spyrja margir sig þeirrar spurn­ingar hvort Trump, og aðrir sem hafa hoppað á vagn­inn hans, hafi nokkurn tím­ann komið þangað. Það er nefni­lega nú þegar veggur á landa­mær­unum, sem þekur um þriðj­ung landamær­anna. Það er sá hluti þeirra sem er auð­velt að kom­ast að gang­andi eða á bíl.

Hluti landamær­anna er hins vegar þannig að það væri mjög erfitt að byggja vegg. Þar eru meðal ann­ars svæði sem eru á yfir­ráði frum­byggja, nátt­úru­vernd­ar­svæði, mjög ógreið­fær svæði og svo eru ein­fald­lega svæði sem eru bara ekki í eigu rík­is­ins. Það er ekki hægt að byggja girð­ingar á öllum landa­mær­unum og þar fyrir utan bendir ekk­ert til þess að vegg­ur­inn sem þegar er til staðar hafi haft nokkur áhrif á flæði inn­flytj­enda, að minnsta kosti að mati ýmissa sér­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár