Rökstuddur grunur um að flytja ætti Heinaste frá Namibíu

Heinaste, verk­smiðju­tog­ari Samherja í Namibíu, var kyrr­settur á ný í gær­morgun á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi. Einungis er heim­ilt að beita slíkri kyrr­setn­ingu ef rök­studdur grunur er um að til standi að fjar­lægja umrædda eign.

Namibíska lög­reglan (NAMPOL) hefur kyrr­sett Heinaste á ný, líkt og Kjarninn greindi frá í gær. Togarinn er nú við bryggju í Walvis Bay og undir yfir­ráðum namibískra yfir­valda.

Lögin sem kyrr­setn­ingin byggir á eru upp­runa­lega frá árinu 2004 en voru upp­færð árið 2008. Bálk­ur­inn heitir „lög til að hindra skipu­lega glæp­a­starf­semi“.

[links]Kyrr­setn­ing Heinaste er fram­kvæmd með vísun í 28. grein lag­anna, sem segir að lög­reglan megi kyrr­setja eignir, sem tengj­ast spill­ingar­rann­sóknum, ef hún telur að rök­studdur grunur sé um að verið sé að skjóta þeirri eign undan. Sú kyrr­setn­ing er þó tíma­bundin og ákvæðið sem nýtt er nokk­urs konar neyð­ar­heim­ild. Nú er unnið að því að fá var­an­legri kyrr­setn­ingu á skipið sam­þykkta af dóm­stólum í Namibíu.

Namibískir fjöl­miðlar eru á einu máli í umfjöllun sinni um ástæður þess að ráð­ist var í kyrr­setn­ingu á grunni laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi. Yfirvöld þar í landi töldu ein­boðið að Heinaste yrði fluttur úr lög­sögu lands­ins við fyrsta tæki­færi eftir að fyrri kyrr­setn­ingu, sem var vegna ólög­legra veiða, var aflétt fyrr í vik­unni.

Það var ekki ástæðu­laus grun­semd. Hinum tveimur skip­unum sem Samherji hefur notað við veiðar innan lög­sögu Namibíu, Saga og Geysir, var siglt burt sitt hvoru megin við síð­ustu helgi og eru nú í alþjóð­legri land­helgi. Engin fyr­ir­vari var á þeirri brott­för og á þriðja hund­ruð skip­verjar á þeim sátu eftir í algjörri óvissu með fram­tíð sína.

Hægt er að sjá umfjöllun NBC í Namibíu hér að neðan.

Greiddu sektina í reiðufé

Sam­herji hefur verið að draga starf­semi sína í Namibíu saman hratt eftir umfjöllun Kveiks, Stund­­­ar­inn­­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mút­­u­greiðsl­­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­­þús­undum gagna og upp­­­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­­manns Sam­herja í Namib­­­íu, var gerð opin­ber í nóv­em­ber.

[adspot]Stuttu eftir umfjöll­un­ina var Heinaste hins vegar kyrr­sett fyrir að stunda ólög­legar veiðar og skip­stjóri þess, Arn­grímur Brynj­ólfs­son, hand­tek­inn og vega­bréf hans tekið af honum. Arn­grímur ját­aði brot sín fyrir namibískum dóm­stólum í lið­inni viku og var gert að greiða sekt upp á um níu millj­ónir króna. Samherji greiddi þá sekt fyrir hann, og fór greiðslan fram í reiðufé eftir að dóm­stólar fóru sér­stak­lega fram á það. Því þurfti full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins að fara í banka og taka upp­hæð­ina út í stað þess að hún yrði milli­færð. Það tafði afhend­inu á vega­bréfi Arngríms aðeins, en hann fékk það það loks aftur og er nú kom­inn til Íslands.

Vilja gera skipið upptækt

Kyrr­setn­ingu Heinaste var aflétt eftir mála­lokin en ljóst var að yfir­völd í Namibíu höfðu áfram áhyggjur af því að skipið yrði fjar­lægt úr lög­sögu lands­ins við fyrsta tæki­færi.

Namibískir fjöl­miðlar hafa greint frá því und­an­farna daga að spill­ing­­ar­lög­reglan í Namibíu hafi ráð­lagt þar­­lendum stjórn­­völdum að leyfa skipum Sam­herja ekki að fara frá land­inu nema að hún verði látin vita. Þrátt fyrir það hafa tvö af þremur skipum Sam­herja í land­inu, Geysir og Saga, farið þaðan á und­an­­förnum dög­­um.

Samherji sendi frá sér til­kynn­ingu á fimmtu­dag þar sem fram kom að unnið væri að því að gera Heinaste út í Namibíu og að tíma­bundið yrði það fólgið í því að leigja skipið namibískum aðilum og tryggja sem flestum úr áhöfn skips­ins áfram­hald­andi vinnu. Ljóst má vera að yfir­völd í Namibíu hafi ekki lagt mik­inn trúnað á þann vilja, þar sem að ráð­ist var í að tryggja, til bráða­birgða, nýja kyrr­setn­ingu á skip­inu á meðan að unnið væri að form­legri grein­ar­gerð sem á að leggja fyrir dóm­stóla. Vilji yfir­valda í Namibíu stendur til að reyna að gera Heinaste upp­tækt, og nota til að veiða hrossa­makríl­kvóta sem rík­is­út­gerðin Fishcor á en hefur ekki skip til að veiða. Fishcor átti ekki fyrir launum starfs­manna í des­em­ber og jan­úar en fyr­ir­tækið var lyk­il­leik­andi í Sam­herj­a­mál­inu þar sem það seldi kvóta á und­ir­verði til íslenska sjáv­ar­út­vegs­ris­ans.

Ákærðir fyrir spillingu

Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­­ar­út­­­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­­íu, James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Fishcor, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­­íu, og þrír aðrir menn voru hand­teknir í Namibíu í fyrra fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­­ónir namibískra doll­­­­­­ara, jafn­­­­­­virði 860 millj­­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­­sóttan kvóta í land­in­u.

Auk Shang­hala, Esau og James Hatuikulipi er um að ræða Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­­son­ur Esau og frændi James, Ricardo Gustavo, sam­­­­­­starfs­­­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­­skyld­u­­­­­­bönd­um, ákærð­­­­­ir.

Menn­irnir hafa verið ákærðir fyrir spill­ingu og pen­inga­þvætti.

Mál Sam­herja er hins vegar enn til rann­­­sóknar í Namib­­­íu og ekki úti­lokað að fleiri verði hand­teknir í tengslum við það. Það er einnig til rann­sóknar á Íslandi, hjá bæði hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra, og í Nor­egi, vegna við­skipta Samherja við norska rík­is­bank­ann DNB. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­­­mála­rann­­­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár