„Eitthvað skrýtið í gangi“

Þing­maður Pírata segir eitt­hvað skrýtið í gangi þegar lög­reglan kaupir hríð­skota­byssur í tengslum við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins til að eiga var­an­lega. Lög­reglan sé að „víg­bú­ast í hænu­skrefum“. „Og til hvers? Fyrir hverja – í alvöru? “

„Þá er eitthvað skrýtið í gangi“
„Þá er eitt­hvað skrýtið í gangi“ Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir eitt­hvað skýrtið vera í gangi þegar kostn­aður við lög­gæslu á leið­toga­fundi Evr­ópu­ráðs­ins hafi meira en tvö­fald­ast en til stóð um ára­mótin. „Það er líka eitt­hvað skrýtið í gangi þegar lög­reglan er að festa kaup á hríð­skota­byssum, ekki bara út af þessum við­burði heldur til að eiga síðan var­an­lega eftir þennan við­burð.“ Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, furðar sig á kostn­aði og víg­bún­aði lög­reglu fyrir leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins sem hefst í Hörpu í dag.  

„Nú er verið að halda þennan bless­aða fund hérna í Hörpu, allt gott og blessað með það. Okkur var sagt fyrir ára­mót að það myndu verða 500 millj­ónir króna auka­lega í kostnað út af við­bún­aði lög­reglu, en sá kostn­aður virð­ist vera kom­inn í ein­hverjar miklu meiri hæðir núna án þess að ein­hver hafi í raun­inni sam­þykkt það þegar allt kemur til alls,“ sagði Björn Leví undir liðnum störf Alþingis í upp­hafi þing­fundar í dag. 

Leið­toga­fundur Evr­ópu­ráðs­ins hefst form­lega síð­degis og um 40 leið­togar Evr­ópu­ríkja eru ýmist komnir eða vænt­an­legir í Hörpu. Þetta er í fjórða sinn í 74 ára sögu Evr­ópu­ráðs­ins sem leið­togar ríkj­anna koma saman á fundi. Fund­ur­inn er sá umfangs­mesti sem hald­inn hefur verið hér á landi og lög­gæslan á leið­toga­fund­inum er af þeirri stærð­argráðu sem hefur ekki sést áður á Íslandi. 

Áætlaður kostn­aður hins opin­bera vegna fund­ar­ins er um tveir millj­arðar króna og stærstur hluti hans, um 1,2 til 1,4 millj­arðar, fer í lög­gæslu. Nær allt til­tækt lög­reglu­lið mun sinna lög­gæslu á meðan fund­inum stendur. 

„Þegar þing­inu er sagt: Þetta mun kosta 500 millj­ónir auka­lega, en kostn­að­ur­inn er síðan miklu meiri, þá er eitt­hvað skrýtið í gangi,“ sagði Björn Leví. 

Lögreglan að vígbúast í hænuskrefum

En það er ekki það eina sem þing­mann­inum finnst skrýtið við fyr­ir­komu­lag leið­toga­fund­ar­ins. „Það er líka eitt­hvað skrýtið í gangi þegar lög­reglan er að festa kaup á hríð­skota­byssum, ekki bara út af þessum við­burði heldur til að eiga síðan var­an­lega eftir þennan við­burð. Það hefur ein­hvern veg­inn gerst smám saman, í hænu­skrefum, að lög­reglan er búin að víg­bú­ast. Og til hvers? Fyrir hverja — í alvöru?“ spurði Björn Leví. 

Hann sagði skipu­lagða glæp­a­starf­semi hafa verið nefnda sem svarið við víg­bún­aði lög­reglu, en gaf lítið fyrir þá skýr­ingu. „Gegn hverjum bein­ist þung­inn í skipu­lagðri glæp­a­starf­semi? Ekki gegn almennum borg­urum, alls ekki. Hann bein­ist kannski á milli glæpa­hópa eða eitt­hvað því um líkt. Almennir borg­arar þurfa ekk­ert að ótt­ast hana.“ 

Björn Leví sagði skipu­lagða glæp­a­starf­semi ekki vilja vera í „ein­hverju stríði við lög­regl­una“. „Lög­reglan á ekk­ert að vopn­ast gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, þess þarf ekki. Það er fullt af öðrum leiðum til að takast á við þann vanda sem við erum að glíma við heldur en að vopn­væð­ast; vopn­væð­ast með byssum, með orð­ræðu og með hræðslu­á­róðri. Við verðum að gera betur en þetta.“ 

Að mati Björns Levís má það ekki  ger­ast að Ísland þok­ist smám saman í átt að víg­búnu sam­fé­lagi „sem þjónar í raun bara fólki sem fær ein­hverja örygg­is­til­finn­ingu við að sjá vopn­aða lög­reglu og finnst hún vera að starfa fyrir sig“.   

„En það eru rosa­lega margir í þeim sporum að finn­ast lög­reglan ekki starfa fyrir sig og slíkum víg­bún­aði lög­reglu fylgir ekki örygg­is­til­finn­ing fyrir það fólk,“ sagði Björn Leví á Alþingi í dag.  

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár