Obama: Bandaríkin leysa ekki stærstu vandamál heimsins á eigin spýtur

Fyrr­verandi forseti Banda­ríkjanna gagnrýnir Donald Trump fyrir stefnu hans í alþjóða­málum og heilbrigðis­málum heima fyrir.

Barack Obama, fyrr­verandi forseti Banda­ríkjanna, hefur ekki látið mikið fyrir sér fara síðan hann lét af embætti 20. janúar síðastliðinn. Hann kom hins vegar fram í pallborði á vegum Bill og Melindu Gates-samtak­anna í gær þar sem hann gagnrýndi stjórnar­hætti Donalds Trump, núverandi forseta.

Eftir að hafa flutt erindi svaraði hann spurningum. Þar var Obama spurður út í ávarp Trumps fyrir allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna á þriðjudag. Obama sagði Banda­ríkin ekki geta leyst stærstu vandamál heimsins – eins og til dæmis lofts­lagsmál eða flóttamanna­vandann – á eigin spýtur.

Obama nefndi Trump aldrei með nafni en sagði skýrt að hann væri óssamála þeirri stefnu sem Trump hefur sett. Frá þessu er meðal annars greint á vef Reuters.

„Þetta er pirrandi,“ sagði Obama um að Trump og repúblikanar hyggjast afnema heilbrigðis­löggjöfina sem samþykkt var í tíð Obama í Hvíta húsinu. „Þetta er sérstak­lega pirrandi að þurfa að bregðast við á nokkurra mánaða fresti og koma í veg fyrir að stjórn­mála­mennirnir okkar skaði bandaríska borgara raun­verulega.“

Forsetinn fyrr­verandi sagðist telja mikilvægt að fólk hefði jákvæðni að vopni. „Viðbragðið verður að snúast um höfnun á bölsýni og svartsýni, og þrýsta smitandi og miskunarlausri bjartsýni að fólki,“ sagði hann. Bjartsýnin má þó ekki vera blind að mati Obama. „Hún má ekki vera þannig að litið sé fram hjá stærð og vigt vanda­málanna. Bjartsýnistrú sem barist hefur verið fyrir er innbyggð í sögur af raun­verulegum framförum í mannkyns­sögunni.“

Óvæntur Obama

Barack Obama vakti athygli nýverið þegar hann lét óvænt sjá sig í kennslu­stund í mennta­skóla í Washington DC. Nemendunum var eðlilega brugðið, enda höfðu þau ekki fengið neinar fregnir af því að Obama væri á ferðinni í skólanum þeirra. Myndband frá heimsókn forsetans fyrr­verandi má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár