Trump hótaði Norður-Kóreu tortímingu í fyrstu SÞ-ræðu sinni

Donald Trump ávarpaði allsherjar­þing Sameinuðu þjóðanna í fyrsta sinn í dag. Norður-Kórea var honum efst í huga.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í fyrsta sinn í dag.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, ávarp­aði alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna í fyrsta sinn í dag. Mynd: EPA

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, hótaði Norður-Kóreu „algerri tortímingu“ ef stjórn­völd í Pjongjang ógna Banda­ríkjunum. Trump flutti sína fyrstu ræðu fyrir allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag.

Trump kallaði Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, meðal annars „Rocket man“ og sagði hann vera í sjálfsmorðs­leiðangri með kjarnorkubröllti sínu.

Bandaríski forsetinn lagði áherslu á að Sameinuðu þjóðirnar myndu auka alþjóð­legan þrýsting á Norður-Kóreu vegna þróunar kjarna­vopna þar í landi. Trump sagði þetta vera helsta vandamál heimsins í dag.

„Alræðis­stjórnir styðja ekki aðeins hryðju­verkamenn heldur ógna þær öðrum þjóðum með mesta skaðræðis­vopni sem mannkynið þekkir,“ sagði Trump. Frétta­stofa Reuters greinir frá þessu.

Hinn óútreiknanlegi forseti las erindi sitt vandlega upp af handriti. Hann sagði Bandaríkjaher bráðum verða eins sterkur og hann hefur nokkru sinni verið.

„Ég mun verja Bandaríska hagsmuni umfram allt,“ sagði Trump í ræðu sinni þegar hann fjallaði um hvernig hann hyggist beita sér á alþjóða­vettvangi. „Þegar við uppfyllum skyldu okkar gagnvart öðrum þjóðum þá er það okkur ljóst að það er allra hagur að í fram­tíðinni geti allar þjóðir verið sjálf­stæðar, velmegandi og öruggar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár