Mæðgur fóru báðar í brjóstnám

Hin 25 ára gamla Hrafnhildur Ingólfs­dóttir gekkst undir tvöfalt brjóstnám í fyrra eftir að hún greindist með stökk­breytingu í BRCA1-geninu. Guðrún Katrín Ragn­hildar­dóttir, móðir hennar, hefur einnig látið fjarlægja brjóst sín – en hún fékk brjósta­krabba­mein 28 ára gömul.

Nánar
Nánar Auk þess að hafa báðar farið í brjóst­nám hafa mæðgurnar báðar lagt fyrir sig hjúkr­un­ar­fræði og starfa á sömu deild Land­spít­al­ans. Mynd: Golli

Það var sjokk. Ég held að maður geti aldrei ímyndað sér nákvæmlega hvernig það er, en það var algjört sjokk. Það var skrítin tilfinning því að ég var alveg ánægð – það var léttir að þetta var búið. En á sama tíma var þetta raun­veruleikinn. En ég hafði það alltaf bak við eyrað að þetta verður ekki svona að eilífu.“

Svona lýsir Hrafnhildur Ingólfs­dóttir, 25 ára gamall hjúkrunar­fræði­nemi, viðbrögðum sínum við því að sjá sig í fyrsta skipti í spegli eftir að hún hafði undir­gengist tvöfalt brjóstnám. Hún ákvað að fara í aðgerðina í vor eftir að hafa greinst með stökk­breytingu í BRCA1-geni.

Krabbamein í beinan kvenlegg

Hrafnhildur var í tíma í skurð­hjúkrun snemma árs í fyrra þegar hún heyrði minnst á brakka­genið. Þó að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem hún heyrði um það þá var þetta í fyrsta sinn sem hún leiddi að því hugann hvort hún væri mögulega með stökk­breytt gen. 

Bæði móðir og móðuramma Hrafnhildar höfðu fengið brjósta­krabba­mein tiltölu­lega ungar og því voru einhverjar líkur á að hún gæti sjálf verið með þessa stökk­breytingu. En 55 til 65 prósent líkur eru á að kona sem hefur hana fái brjósta­krabba­mein fyrir sjötugt.

Ragnhildur Björns­dóttir, amma Hrafnhildar, var fimmtug þegar hún tapaði baráttu sinni við brjósta­krabba­mein vorið 1998. Það var á svipuðum tíma og Guðrún Katrín Ragn­hildar­dóttir komst að því að hún ætti von á Hrafnhildi. Aðeins tveimur árum eftir andlát móður sinnar greindist Guðrún sjálf með brjósta­krabba­mein.

Hrafnhildur ákvað, eftir að hafa hugsað málið, að hafa samband við brjósta­miðstöð Land­spítalans þar sem hún fékk erfða­ráðgjöf. Niður­staða rannsókna var að hún, líkt og móðir hennar, væri ein af fáum Íslendingum sem væru með stökk­breytingu í BRCA1-geninu.

„Þetta var nátt­úrlega mjög mikið áfall, þegar ég fékk þessar fréttir, en samt einhvern veginn fannst mér ég vera með eitthvað í höndunum. Ég gat gert eitthvað í þessu,“ segir Hrafnhildur.

 90 prósent líkur á brjóstakrabbameini

Í ljósi mikillar sögu brjósta­krabba­meina í fjöl­skyldunni voru líkurnar á því að Hrafnhildur myndi þróa með sér brjósta­krabba­mein á lífs­leiðinni taldar vera um 90 prósent.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár