Skiptinemi auðgar og léttir heimilislífið

Hjónin Björk Vil­helms­dóttir og Sveinn Rúnar Hauksson tóku að sér ung­verskan skiptinema í fyrra­sumar og var það í annað sinn sem þau buðu erlendum skiptinema inn á heim­ili sitt. „Ég mæli með þessu,“ segir Björk en hún leggur áherslu á hve gaman það sé að kynn­ast erlendu fólki sem og menn­ingu heima­lands þess.

Gátu valið
Gátu valið Björk og eig­in­maður hennar gátu valið úr hópi skiptinema unga konu sem hafði lokið háskóla­námi og vildi sinna geð­heil­brigð­is­málum á Íslandi, sem kemur einnig inn á þeirra áhuga­svið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sveinn Rúnar Hauksson var skiptinemi í Banda­ríkj­unum 1964–1965 á vegum KAUS sem er for­veri alþjóð­legu ung­menna­skipt­anna AUS sem eru starf­andi á Íslandi. AUS eru sjálf­boða­liða- og fræðslu­sam­tök og er mark­miðið að stuðla að friði og skiln­ingi milli ein­stak­linga og þjóða og vinna gegn hvers kyns for­dómum. Félagið vinnur að þessu mark­miði m.a. með því að senda ung­menni utan í sjálf­boða­liða­starf og taka á móti ung­mennum í sama til­gangi til Íslands.

Tvær dætur Sveins Rúnars fóru síðar sem skiptinemar á vegum AUS til Bólivíu og Kólumbíu og segir Björk að þeim hjónum hafi fund­ist að þeim bæri í raun sið­ferði­leg skylda til að taka við skiptinema. „Það var þó ekki nei­kvæð skylda að neinu leyti.“

Fengu að velja

Ítalskur skiptinemi um tví­tugt bjó með fjöl­skyld­unni á árunum 1997–1998. Ungversk, 27 ára gömul kona, Orsylia, flutti síðan til þeirra í ágúst í fyrra en í vor flutti hún í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár