Samið um orku til kísilvers Thorsil í Helguvík

Thorsil hefur tryggt sér orku fyrir kís­il­ver í Helguvík. Samn­ing­ur­inn þarfn­ast sam­þykkis ESA áður en hann tekur gildi, en áætlað er að verið opni árið 2018.

Búrfellsvirkjun
Búr­fells­virkjun Mynd: Landsvirkjun

Lands­virkjun og Thorsil hafa skrifað undir samn­ing um afhend­ingu á raf­magni til kís­il­vers Thorsil í Helguvík. Lands­virkjun mun sjá Thorsil fyrir 55 mega­vöttum af afli, eða sem sam­svarar 460 gíga­vatt­stundum af orku á ári. Afhend­ing orkunnar hefst árið 2018 þegar áætlað er að kís­il­verið taki til starfa, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun.

Samn­ing­ur­inn er háður skil­yrðum, meðal ann­ars verður Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, að sam­þykkja hann til þess að hann taki gildi.

Í októ­ber í fyrra var greint frá því að fyr­ir­tækin hefðu kom­ist að sam­komu­lagi um drög að raf­magns­samn­ingi, en þá var gert ráð fyrir því að Lands­virkjun myndi afhenda allt að 67 mega­vött í áföngum. HS Orka hefur einnig und­ir­ritað orku­sölu­samn­ing við Thorsil um afhend­ingu á allt að 32 mega­vöttum, en Thorsil hefur sagt að fyr­ir­tækið þurfi 87 mega­vött til að fram­leiðla 54 þús­und tonn af kís­il­málmi á ári.

Umdeild bygging kísilvers

Reykja­nes­bær glímir við mik­inn skulda­vanda. Sveit­ar­fé­lagið er það skuld­settasta á land­inu. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014. Skuld­irnar eru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­leiðis í and­stöðu við lög.

Skulda­vand­inn er að stóru leyti til­kom­inn vegna fjár­fest­inga í hafn­ar­fram­kvæmdum við Helgu­vík, Reykja­nes­höfn, sem sveit­ar­fé­lagið er í ábyrgð fyr­ir. Fjár­fest­ing­arnar hafa tengst áætl­aðri upp­bygg­ingu ýmissar stór­iðju í Helguvík.

Thorsil er stærsti við­skipta­vinur Reykja­nes­hafnar, en höfnin hefur ítrekað gefið Thorsil greiðslu­frest á gatna­gerð­ar­gjöldum vegna lóð­ar­innar undir kís­il­verk­smiðj­una. Gjöldin átti að greiða 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en frestur fékkst til 15. des­em­ber, svo til 15. mars og nú til 15. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár