Sólveig Anna: Nú gefst tækifæri til að leiðrétta „mistökin“

Formaður Eflingar leggur til að allir þeir millj­arðar sem greiddir hafa verið í arð til eig­enda fyr­ir­tækja á síð­ustu árum verði gerðir upp­tækir af rík­inu og not­aðir til að fjár­magna íslenskt sam­fé­lag.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, fjallar um ástandið sem ríkir um þessar mundir í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

Hún segir að vinn­andi fólk hafi skapað ómældan auð fyrir íslenskt sam­fé­lag. Bæði efna­hags­legan auð og sam­fé­lags­legan auð. Þetta viti Íslend­ingar. „Vinnandi fólk heldur uppi grunn­kerf­unum á land­inu. Þetta vitum við öll. Verka og lág­launa­fólk hefur síð­asta ára­tug þrælað sér út. Til að kom­ast undan hrun­inu sem hafði hræði­leg áhrif á líf okkar þurftum við að vinna og vinna og vinna; í enda­lausum yfir­vinnum og auka­vinnu,“ skrifar hún.

„Lág­launa­konur eru búnar að þræla sér út; í umönn­un­ar­störfum inn í fjársveltu kerfi. Þær hafa eytt síð­asta ára­tug í að hlaupa hraðar og hraðar, til að halda öllu gang­andi. Rútu­bíl­stjórar hafa unnið 24/7 árum saman, í ferða­manna-brans­anum, til að kom­ast upp í eitt­hvað sem hægt væri að kalla sæmi­leg laun. Þeir hafa borið þann fórn­ar­kostnað sem því fylgir að vera alltaf í vinn­unni. Fólkið sem vinnur við að þrífa og ræsta á hót­el­unum hefur breytt sjálfu sér í vélar, unnið hraðar og meira en nokkur mann­eskja ætti að vinna, til að kom­ast yfir þau verk­efni sem á þau hafa verið lögð inn á vinnu­stöð­unum. Þetta fólk hefur stundað „back-break­ing“ vinnu fyrir lág­marks­laun.“ Sólveig Anna segir að svona mætti lengi telja.

Þá gagn­rýnir hún harð­lega við­brögð Við­skipta­ráðs við ástand­inu. „Nú ber­ast okkur fregnir af því að útsend­arar rík­asta fólks Íslands, Við­skipta­ráð, krefj­ist þess að svokölluð hag­ræð­ing­ar­krafa verði gerð á opin­berar stofn­anir, sam­stundis, í upp­hafi krís­unnar. Að tæki­færið verði notað þegar far­sótt gengur yfir heims­byggð­ina og nið­ur­skurð­ar­hníf­ur­inn brýndur og brúk­aður. Vegna þess að það sé „sann­gjarnt“.“

Telur hugmyndafræðina bull

Sólveigu Önnu er ekki um Við­skipta­ráð gefið. „Allt sem þetta fólk hefur lagt til síð­ustu ár og ára­tugi er bull. Hug­mynda­fræðin er bull. Hún er sam­fé­lags­legt eitur. Hug­mynda­fræðin sem Við­skipta­ráð aðhyllist býr til ástand þar sem sumt fólk þarf að hlaupa enda­laust til að hafa í sig og á meðan annað fólk færir sjálfu sér millj­arða á ári hverju. Millj­arða sem verða til vegna vinnu þeirra sem eiga að kom­ast af á litlu sem engu. Millj­arða sem verða til vegna vinnu þeirra sem geta aldrei lagt fyrir, aldrei tryggt afkomu sína, aldrei lagst til svefns án þess að áhyggj­urnar taki sitt pláss í rúm­inu. Millj­arða sem verða til vegna grimmi­legs arð­ráns.“

Fyrst Við­skipta­ráð hafi stigið fram, sem og ýmsir fleiri á borð við Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sem vilja sleppa við veiði­gjaldið í eitt ár, og „notað orðið „sann­girni“ um firr­ingu og þvaður“, þá leggur hún til að í nafni sann­girn­innar verði allir þeir millj­arðar sem greiddir hafi verið í arð til eig­enda atvinnu­tækj­anna á síð­ustu árum, þeir millj­arðar sem fámennur hópur hafi talið sig mega taka til sín, gerðir upp­tækir af rík­inu og not­aðir til að fjár­magna kerfin og sam­fé­lagið á Íslandi, félags­lega end­ur­fram­leiðslu og mann­sæm­andi lífs­skil­yrði.

„Allir þessir millj­arðar áttu auð­vitað alltaf að fara í að gera það en runnu í vas­ann á fólk­inu sem öllu hefur fengið að ráða í sam­fé­lag­inu. Nú gefst tæki­færi til að leið­rétta „mis­tökin“. Við hljótum að vilja grípa það tæki­færi frekar en að leyfa auð­stétt­inni að láta sína hug­mynda­fræði­legu óra ræt­ast, á kostnað okkar allra.

Það skal eng­inn láta sér detta það í hug að vinn­andi fólk ætli að láta eitt­hvað sví­virði­legt rugl fjár­magns­eig­enda yfir sig ganga, í nafni sam­stöð­unnar. Það kemur ekki til greina og mun aldrei gera það.

Bara svo að það sé sagt,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár