Rússar „opni dyrnar“

Inn­flutn­ings­bann til Rúss­lands hefur haft mikil áhrif á íslensk fyr­ir­tæki. AGS leggur til að Rússar efli alþjóð­leg við­skipti, til að örva hag­vöxt.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands.
Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands. Mynd: EPA

Rúss­lands­mark­aður hefur verið Íslandi mik­il­vægur á und­an­förnum árum, og hafa við­skipti með mak­ríl og loðnu einkum verið mikil til Rúss­lands. Frá því inn­flutn­ings­bann Rússa tók gildi 6. ágúst 2015, hafa dyrnar verið lok­aðar inn á mark­að­inn.

Miklar breyt­ingar hafa enn fremur orðið á stöðu efna­hags­mála í Rúss­landi sam­hliða við­skipta­þving­unum vest­ur­landa, með Evr­ópu­sam­bandið og Banda­ríkin í broddi fylk­ingar. Ísland hefur tekið þátt í þessum aðgerðum með póli­tískum sam­herjum á alþjóða­vett­vangi, og segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, að ekki komi til greina að breyta afstöðu Íslands, en vel sé fylgst með því hvernig megi vernda íslenska hags­muni og finna leiðir til að styrkja sam­bandið við hinn mik­il­væga rúss­neska markað.

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, segir í grein á vef SFS að Íslend­ingum sé ekki skylt að taka þátt í við­skipta­þving­unum, og að það þurfi að vega þá miklu hags­muni sem séu fyrir hendi. „Við­skipta­bannið hefur komið hlut­falls­lega harðar niður á íslenskum hags­munum en hags­munum ann­arra ríkja. Þar er hlutur sjáv­ar­út­vegs­ins langstærstur. Þátttaka Íslands í við­skipta­þving­unum gegn Rúss­landi kom til vegna þrýst­ings frá Banda­ríkj­unum og Evr­ópu­sam­band­inu, að sögn fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, Gunnars Braga Sveins­sonar. Íslend­ingum er því í raun ekki skylt að taka þátt í þeim,“ segir í grein Heiðrúnar.

Hags­mun­irnir eru ekki aðeins bundnir við sjáv­ar­út­veg, þó hann vegi þungt, heldur hefur land­bún­að­ur­inn einnig verið að vinna í því að opna fyrir útflutn­ing á lamba­kjöti og öðrum land­bún­að­ar­af­urðum til Rúss­lands. Þar eru dyrnar einnig lok­aðar.

Á árs­grund­velli eru hags­munir á bil­inu 10 til 20 millj­arðar fyrir íslenska þjóð­ar­búið. Á tölum Hagstofu Íslands sést glögg­lega að Rússa­bannið hefur haft mikil áhrif á við­skipti með mak­ríl. Árið 2014 var heild­ar­út­flutn­ingur mak­ríls 23,6 millj­arðar króna, en í fyrra nam hann 9,8 millj­örðum. Reikna má með jafn­vel enn meiri sam­drætti á þessu ári.

En hvernig eru efna­hags­horf­urnar í Rúss­landi þessi miss­erin? Þegar öllu er á botn­inn hvolft þá skiptir máli hvernig kaup­getan er í Rúss­landi, þegar fram í sækir.

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) hefur fylgst náið með gangi mála í Rúss­landi og sendi frá sér grein­ingu á stöðu mála þar í júlí, og lagði meðal ann­ars til að rúss­nesk yfir­völd myndu styrkja við­skipta­sam­bandið við önnur ríki og ýta undir frek­ari við­skipti.

Sér­stak­lega er fjallað um fimm atriði, sem þurfi að laga í Rúss­landi til að ýta undir vöxt og styrk­ingu hag­kerf­is­ins. Und­an­farin ár hafa verið Rúss­landi erfið, svo ekki sé fastar að orði kveðið, þar sem lækkun á olíu­verði og við­skipta­þving­anir hafa gert Rússum erfitt fyrir. Vladímir Pútín, Rúss­lands­for­seti, hefur þó talað um að Rússar „geti bjargað sér“ og hefur inn­lend fram­leiðsla verið stór­efld á hinum ýmsa varn­ingi.

Í Rúss­landi búa 144 millj­ónir, og mark­að­ur­inn því stór.

[adspot]

Atriðin fimm sem AGS nefnir sér­stak­lega að þurfi að huga að eru eft­ir­far­andi.

1. Breyt­ingar á við­skiptaum­hverf­inu. Tekið er fram í grein­ingu AGS að Rússar þurfi að styrkja reglu­verk til að efla fjár­fest­ingu, og á það meðal ann­ars við um atriði sem snúa að eigna­rétti og leyf­is­veit­ingum á hinum ýmsu mörk­uðum. Það myndi liðka fyrir fjár­fest­ingu og örva hag­vöxt.

2. Upp­bygg­ing inn­viða. Rússland er það land í heim­inum þar sem mesta land­svæðið er undir. Það er stærsta land heims, en vegir og inn­viðir eru víða í hræði­legu ásig­komu­lagi. Rússar þurfa að efla inn­viði til að bæta sam­keppn­is­hæfni og ýta undir meiri vöxt og gæði í fram­leiðslu og þjón­ustu, segir AGS.

3. Of mikið flækju­stig. AGS telur að Rússar hafi mikil tæki­færi í því, að auð­velda fyr­ir­tækjum að koma vörum inn á Rúss­lands­markað. Hvergi er vikið að þeim bönnum sem í gildi eru, en talað almennt fyrir því að inn­gang á Rúss­lands­markað sé of flókin. Sér­stak­lega er þetta talið vera til­fellið með hinar ýmsu hrá­vörur.

4. Efla alþjóð­leg við­skipti. Í gildi eru inn­flutn­ings­bönn á hinar ýmsu þjóðir, en AGS telur að Rússar verði að huga að því að efla við­skipti við aðrar þjóðir. Opna dyrnar, ekki halda þeim lok­uðum. Nauð­syn­legt sé fyrir Rússa að huga að öðrum mörk­uðum en þeim sem eru í næsta nágrenni, og efla alþjóð­lega sam­keppni inn­an­lands. Með því gætu rúss­nesk fyr­ir­tæki myndað tengsl við nýja mark­aði og bæði keypt og selt vörur á betri og raun­hæf­ari verðum.

5. Efla nýsköpun. Ef það er eitt­hvað sem Rússar eru ekki nægi­lega góðir í, þá er það nýsköpun. Þeir hafa ekki verið þekktir fyrir mikla frum­kvöðla­starf­semi í efna­hags­líf­inu, og AGS telur að þar þurfi Rússar að bæta sig mikið. Bent er á að lyk­ill­inn að árangri hjá fyr­ir­tækjum sé að auka notkun nýrrar tækni til að efla fram­leiðni og auka gæði. Rússar séu komnir of stutt í þessu, og stjórn­völd þurfi að huga að stuðn­ings­að­gerðum til að meiri árangur náist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár