Tveir ráðherrar Framsóknarflokksins í fallhættu

Síðasta þing­sæta­spáin áður en kosn­inga­úr­slit liggja fyrir metur lík­urnar á því að vin­strik­var­tett­inn geti náð meiri­hluta á Alþingi eftir kosn­ingar 59 pró­sent.

Kjörstaðir loka klukkan 22 í kvöld. Mynd: Birgir Þór
Kjör­staðir loka klukkan 22 í kvöld. Mynd: Birgir Þór

Lilja Alfreðs­dóttir og Karl Garð­ars­son eru þeir odd­vitar í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum sem eiga minnsta mögu­leika á að ná kjöri, sam­kvæmt síð­ustu þing­sæta­spánni fyrir kosn­ingar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er víð­ast vin­sæl­asti flokk­ur­inn, nema í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður þar sem Píratar munu lík­leg­ast eiga fyrsta þing­mann. Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi eru 58 pró­sent líkur á að Eygló Harð­ar­dóttir nái kjöri.

Líkurnar á því að vin­strik­var­tett­inn geti myndað meiri­hluta á Alþingi eftir kosn­ingar eru nú metnar 59 pró­sent í þing­sæta­spá Kjarnans. Píratar, Vinstri græn, Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin hafa þegar rætt saman um hugs­an­legt sam­starf að loknum kosn­ingum en það gæti þó staðið tæpt ef marka má kosn­inga­spá.

Kosið er til Alþingis í dag. Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar mælir Sjálf­stæð­is­flokk­inn stærsta fram­boðið með 24,9 pró­sent fylgi. Píratar mæl­ast með 19,4 pró­sent og Vinstri græn með 16,5 pró­sent. Fylgi Bjartar fram­tíðar og Sam­fylk­ing­ar­innar hefur hins vegar mælst mun minna og var 6,9 pró­sent og 6,5 pró­sent í síð­ustu kosn­inga­spánni sem gerð verður áður en kosn­inga­úr­slitin sjálf liggja fyrir í fyrra­málið. Síðasta kosn­inga­spáin fyrir kosn­ingar var greind hér á Kjarn­anum í morgun.

Þing­sæta­spáin var upp­færð í dag, laug­ar­dag­inn 29. októ­ber. Hún byggir á tveimur nýj­ustu könn­unum á fylgi flokka eftir kjör­dæmum sem birtar hafa verið með full­nægj­andi hætti. Það er Þjóð­ar­púls Gallup 24.–28. októ­ber (vægi 53%) og Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 20.–27. októ­ber (vægi 47%).

Þing­sæta­spáin er reikni­líkan sem fram­kvæmir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ þar sem nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi kann­ana eru hafðar til grund­vallar. Líkanið hönn­uðu stærð­fræð­ing­arnir Baldur Héð­ins­son og Stefán Ingi Valdi­mars­son með það að mark­miði að reikna líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum. Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spána, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta. Nánar má lesa um fram­kvæmd þing­sæta­spár­innar hér.

Líkur á sam­an­lögðum þing­manna­fjölda
ÞingmennBDBCDDVCDVDPPVAPVAPSVACPSVACPV
>=400.000.000.000.070.000.000.000.000.380.05
>=390.000.000.000.120.000.000.000.010.520.10
>=380.000.010.000.210.010.000.000.030.660.18
>=370.000.020.000.320.020.000.000.060.770.28
>=360.000.040.010.450.050.000.010.120.860.41
>=350.000.080.020.580.090.000.020.200.920.54
>=340.000.140.040.710.150.000.040.320.960.67
>=330.000.230.080.820.250.000.070.450.980.79
>=320.000.350.150.890.370.010.140.590.990.87
>=310.010.480.250.950.510.010.230.711.000.93
>=300.020.620.370.970.650.030.340.811.000.96
>=290.050.740.520.990.780.070.480.891.000.98
>=280.090.840.661.000.870.130.620.941.000.99
>=270.170.910.781.000.930.220.740.971.001.00
>=260.270.960.881.000.970.340.840.991.001.00
>=250.410.980.941.000.990.490.910.991.001.00

Uppfært 29. októ­ber kl. 14:15. Líkur á að sam­an­lagður þing­manna­fjöldi fram­boðs­lista nái meiri­hluta á þingi. Til að fá eins manns meiril­huta á Alþingi þarf sam­an­lagður fjöldi að vera 32 þing­menn. Rauða strikið í töfl­unni hér að neðan er sláin sem þarf að kom­ast yfir.

Stjórn­ar­flokk­arnir tveir – Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur – munu ekki geta myndað meiri­hluta sam­kvæmt þing­sæta­spánni. Líkurnar á því að þessir tveir flokkar fái 32 þing­menn eða fleiri eru engar. Ef Viðreisn verður „þriðja hjólið“ með stjórn­ar­flokk­unum eru 35 pró­sent líkur á því að hægt verði að mynda meiri­hluta.

Þá hefur meiri­hluti Við­reisnar, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna verið nefndur sem mögu­leiki. Í 100.000 hermunum sýnd­ar­kosn­ing­anna sem búa að baki þing­sæta­spánni náðu þessir flokkar að sam­tals meira en 32 þing­mönnum inn í 89 pró­sent til­fella.

Líkurnar á því að vin­strik­var­tett­inn geti myndað meiri­hluta með 32 þing­mönnum hafa minnkað úr 61 pró­senti í fyrstu þing­sæta­spánni í 59 pró­sent í þing­sæta­spánni sem gerð var í dag. Sé Viðreisn hins vegar skipt út fyrir Sam­fylk­ing­una verða lík­urnar á því að þessir fjórir flokkar nái sam­an­lagt 32 mönnum á þing 87 pró­sent.

Vegna þess hversu víða stuðn­ingur kjós­enda dreif­ist virð­ist það vera mjög ólík­legt að hægt verði að mynda meiri­hluta tveggja flokka. Þing­sæta­spáin metur lík­urnar á að Píratar og Sjálf­stæð­is­flokkur fái sam­an­lagt meira en 32 þing­menn kjörna 37 pró­sent. Í 15 pró­sent til­vika í sýnd­ar­kosn­ing­unum 100.000 voru Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn með sam­an­lagðan meiri­hluta. Píratar og Vinstri græn mæl­ast með eitt pró­sent líkur á að ná sam­an­lögðum meiri­hluta á þingi.

15 prósent líkur á að Samfylkingin hverfi af þingi

Í 15 pró­sent til­vika sýnd­ar­kosn­ing­anna fékk Sam­fylk­ingin engan mann kjör­inn. Það er raunar þriðja lík­leg­asta nið­ur­staðan á þing­manna­fjölda Sam­fylk­ing­ar­innar eftir kosn­ing­arnar. Þing­sæta­spáin úthlutar þing­sætum eftir öllum kúnst­ar­innar reglum. Lík­leg­asta nið­ur­staðan er að þing­flokk­inn eigi eftir að skipa fjórir full­trúar. Ef rýnt er í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu upp­röð­unar full­trúa úr kjör­dæmum þá eru það aðeins odd­vitar flokks­ins sem munu kom­ast að.

Dreifing þing­sæta
ÞingmennABCDPSVFT
00.090.000.010.000.000.150.000.820.99
10.080.000.010.000.000.040.000.040.00
20.000.010.000.000.000.000.000.000.00
30.120.040.020.000.000.130.000.090.00
40.290.110.090.000.000.290.000.040.00
50.250.160.160.000.000.230.000.000.00
60.120.190.210.000.000.120.010.000.00
70.040.180.210.000.000.030.030.000.00
80.010.140.150.000.010.010.060.000.00
90.000.090.080.000.020.000.110.000.00
100.000.050.040.000.060.000.160.000.00
110.000.020.010.000.110.000.190.000.00
120.000.010.000.010.160.000.170.000.00
130.000.000.000.020.190.000.130.000.00
140.000.000.000.060.170.000.080.000.00
150.000.000.000.100.130.000.040.000.00
160.000.000.000.150.080.000.020.000.00
170.000.000.000.180.040.000.010.000.00
180.000.000.000.170.020.000.000.000.00
190.000.000.000.130.010.000.000.000.00
200.000.000.000.090.000.000.000.000.00
210.000.000.000.050.000.000.000.000.00
220.000.000.000.020.000.000.000.000.00
230.000.000.000.010.000.000.000.000.00
240.000.000.000.000.000.000.000.000.00

Uppfært 29. októ­ber kl. 14:15. Í töfl­unni má sjá dreif­ingu á fjölda til­vika þar sem flokkur fékk ákveð­inn fjölda þing­manna kjör­inn í 100.000 sýnd­ar­kosn­ingum.

Flokkur fólks­ins og Dögun eru tekin með nú. Líkurnar á því að Flokkur fólks­ins fái þrjá menn kjörna eru níu pró­sent. Í töfl­unni hér að ofan hafa allar tölur verið námund­aðar að heilli tölu. Lík­leg­asta nið­ur­staðan er eftir sem áður að þessir flokkar fái engan mann kjör­inn. Flokkur fólks­ins á mesta mögu­leika í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Þar eru lík­urnar á að Inga Sæland nái kjöri 14 pró­sent. Magnús Þór Haf­steins­son er odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Þing­sæta­spáin metur lík­urnar á því að hann nái kjöri 13 pró­sent.

Líkurnar á því að Dögun fái mann kjör­inn er í öllum til­vikum minna en eitt pró­sent.

Hér að neðan er lík­leg­asta nið­ur­staða þing­sæta­út­hlut­un­ar­innar, miðað við úrslit sýnd­ar­kosn­ing­anna 100.000 sem búa að baki þing­sæta­spánni. Hér eru fjöldi þing­manna flokk­anna taldir. Auk þeirra eru nokkrir full­trúar sem eiga einnig mögu­leika á kjöri.

Norðvesturkjördæmi

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=0, B=1, C=0, D=2, P=1, S=0 og V=2.
  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: C1, S1, B2, V3, A1, D3 eða P2.
  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er P1 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

Norðausturkjördæmi

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=0, B=2, C=0, D=2, P=2, S=0 og V=2.
  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: S1, A1, D3, C1, B3, V3 eða P3
  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er P2 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

Suðurkjördæmi

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=0, B=1, C=0, D=4, P=2, S=0 og V=1.
  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: C1, A1, S1, B2, P3, D5 eða V2.
  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er D4 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

Suðvesturkjördæmi

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=1, B=1, C=2, D=4, P=2, S=0 og V=1.
  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: P3, V2, S1, A2, C3, D5, B2 eða F1.
  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er B1 lík­leg­astur til að ná ekki inn.

Reykjavíkurkjördæmi suður

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=0, B=0, C=1, D=3, P=2, S=1 og V=2.
  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: A1, P3, V3, C2, B1, F1 eða D4.
  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er S1 og D3 álíkla lík­legir til að ná ekki inn.

Reykjavíkurkjördæmi norður

  • Lík­leg­asta nið­ur­staða: A=1, B=0, C=1, D=2, P=2, S=1 og V=2.
  • Auk þeirra munu tveir af eft­ir­far­andi ná kjöri: P3, D3, V3, B1, C2, P4 eða F1.
  • Af þeim sem eru inni í lík­leg­ustu nið­ur­stöðu er A1 og S1 álíkla lík­legir til að ná ekki inn.

Þingsætaspáin

Þing­sæta­spáin er ítar­legri grein­ing á gögnum kosn­inga­spár­innar sem mælir lík­indi þess að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ingum. Nið­ur­stöð­urnar byggja á fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi fram­boða í öllum sex kjör­dæmum lands­ins hverju sinni og eru nið­ur­stöð­urnar birtar hér að vefnum.

Fyrir kjördæmin

Líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri byggja á reikni­lík­ani stærð­fræð­ing­anna Baldurs Héð­ins­sonar og Stefáns Inga Valdi­mars­sonar. Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Reikni­líkanið hermir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ og úthlutar kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Tökum ímyndað fram­boð X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem dæmi: Fram­boðið mælist með 20 pró­sent fylgi. Í flestum „sýnd­ar­kosn­ing­unum“ fær X-list­inn 2 þing­menn en þó kemur fyrir að fylgið í kjör­dæm­inu dreif­ist þannig að nið­ur­staðan er aðeins einn þing­maður. Sömu­leiðis kemur fyrir að X-list­inn fær þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og í örfáum til­vikum eru fjórir þing­menn í höfn.

Ef skoðað er í hversu mörgum „sýnd­ar­kosn­ingum“ hver fram­bjóð­andi komst inn sem hlut­fall af heild­ar­fjölda fást lík­urnar á að sá fram­bjóð­andi nái kjöri. Sem dæmi, hafi fram­bjóð­and­inn í 2. sæti X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingum“ þá reikn­ast lík­urnar á því að hann nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum 90 pró­sent.

Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spánna, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta.

Fyrir landið í heild

Þegar nið­ur­stöður í öllum kjör­dæmum liggja fyrir er hægt taka nið­ur­stöð­urnar saman fyrir landið í heild og reikna út líkur á því hversu marga þing­menn hver flokkur fær á lands­vísu. X-list­inn gæti, svo dæm­inu hér að ofan sé haldið áfram, fengið:

  • 8 þing­menn í 4% til­fella
  • 9 þing­menn í 25% til­fella
  • 10 þing­menn í 42% til­fella
  • 11 þing­menn í 25% til­fella
  • 12 þing­menn í 4% til­fella

Þetta veitir tæki­færi til þess að máta flokka saman reyna að mynda meiri­hluta þing­manna og skoða líkur á því hvaða flokkar muni ná meiri­hluta á þingi að afstöðnum kosn­ingum. Ef X-list­inn er einn af þeim flokkum sem myndar meiri­hluta að loknum kosn­ingum er þing­manna­fram­lag hans til meiri­hlut­ans aldrei færri en 8 þing­menn, í 96% til­fella a.m.k. 9 þing­menn, í 71% til­fella a.m.k. 10 þing­menn o.s.frv. Lands­líkur X-list­ans eru því settar fram á form­inu:

  • = > 8 þing­menn í 100% til­fella
  • = > 9 þing­menn í 96% til­fella
  • = > 10 þing­menn í 71% til­fella
  • = > 11 þing­menn í 29% til­fella
  • = > 12 þing­menn í 4% til­fella
  • = > 13 þing­menn í 0% til­fella
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár