Hvítabjörnum fer að fækka hratt eftir tuttugu ár

Samkvæmt nýrri rann­sókn er talið mögu­legt að hvíta­birni verði vart að finna um næstu alda­mót eða eftir um átta­tíu ár. Hungur vegna bráðnun íss­ins mun verða til þess að birn­irnir hætta að fjölga sér.

Verða ísbirnir í dýragörðum fleiri en villtir í nánustu framtíð?
Verða ísbirnir í dýra­görðum fleiri en villtir í nán­ustu fram­tíð? Mynd: EPA

Bráðnun íss­ins á norð­ur­slóðum gæti orðið til þess að hvíta­björnum fækki hratt vegna hung­urs upp úr árinu 2040. Vís­inda­menn hafa nú, í fyrsta skipti, spáð fyrir um hvenær hvíta­birnir verða nán­ast horfnir. Ef fram heldur sem horfir gæti það orðið raunin um árið 2100 eða eftir um átta­tíu ár.

Í nýrri rann­sókn sem birt er í vís­inda­tíma­rit­inu Nature Climate Change kemur fram að með auk­inni bráðnun íss­ins verði það hvíta­björnum stöðugt erf­ið­ara að leita sér að æti. Þegar hungrið er komið inn í mynd­ina er lík­legt að hægja muni á tímgun dýr­anna og þeim fer að fækka af þeim sökum. Að mati vís­inda­mann­anna mun þessi staða verða komin upp hjá mörgum ísbjörnum eftir um tvo ára­tugi. Þá munu stofnar bjarn­anna á ákveðnum svæðum deyja út.

Í rann­sókn­inni, sem leidd var af kanadískum vís­inda­manni við háskóla í Toronto, var kannað hvaða áhrif tvær sviðs­myndir hefðu á afkomu hvíta­bjarna. Í annarri var reiknað með sömu losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eins og hefur átt sér stað síð­ustu ár. Við þær aðstæður telja þeir lík­legt að um næstu alda­mót verði hvíta­birni aðeins að finna á nyrstu eyju kanadíska heim­skauta­kla­s­ans, Eyju Elísa­betar drottn­ingar. Í hinni sviðs­mynd­inni var gert ráð fyrir að dregið yrði lít­il­lega úr los­un­inni en við þær aðstæður er engu að síður lík­legt að því er fram kemur í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar, að meiri­hluti hvíta­bjarna á norð­ur­skaut­inu verði hættur að fjölga sér árið 2080.

Talið er að innan við 26 þús­und hvíta­birnir séu í heim­inum í dag og dreifast þeir um nokkur svæði, m.a. Sval­barða, Hudson-flóa við Kanada og haf­svæðið á milli Alaska og Síberíu. Ísbirnir veiða úti á ísnum og þegar hann hörfar gerir hvíta­björn­inn það einnig.

Í frétt Guardian er haft eftir aðal­höf­undi rann­sókn­ar­innar, líf­fræð­ingnum Péter Molnár, að lengi hafi verið vitað að hvíta­björnum staf­aði ógn af bráðnun íss­ins á norð­ur­slóðum. Hins vegar hafi verið óvíst um hvenær vænta mætti hraðrar fækk­unar dýr­anna af þessum sökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár