Ekki lengur „stúlka“ eða „drengur“

Börn verða fram­vegis nýskráð í þjóð­skrá ein­göngu með kenni­nafn þar til nafn­gjöf hefur farið fram.

Þjóðskrá mun ekki lengur nýskrá börn í þjóð­skrá með eig­in­nafnið stúlka eða drengur og verða börn því fram­vegis nýskráð í þjóð­skrá ein­göngu með kenni­nafn, þ.e. föður- eða móð­ur­nafn eða ætt­ar­nafn, þar til nafn­gjöf hefur farið fram. Breyt­ingin hefur þegar tekið gildi.

Þetta kemur fram á vef­síðu Þjóð­skrár Íslands.

Ekki eru lengur gefin út vega­bréf með slíkum eig­innöfnum, stúlka eða drengur, og er þessi breyt­ing því til sam­ræm­ingar þar á, að því er fram kemur hjá Þjóðskrá.

Frumvörp um kynrænt sjálfræði samþykkt á Alþingi í fyrra

[links]Alþingi sam­þykkti í lok árs í fyrra frum­varp sem tryggir fólki rétt til að breyta skrán­ingu kyns og sam­hliða því þá nafni mið­ist við 15 ára aldur en það var 18 ár. Þá var einnig gert ráð fyrir að börn yngri en 15 ára gætu breytt opin­berri skrán­ingu kyns síns með full­tingi for­sjárað­ila sinna.

Enn fremur var sam­þykkt frum­varp á sama tíma þar sem lagt var til að meg­in­reglan yrði sú að var­an­legar breyt­ingar á kynein­kennum barns yngri en 16 ára, sem fæð­ist með ódæmi­gerð kynein­kenni, skyldu ein­ungis gerðar í sam­ræmi við vilja barns­ins. Væri barnið ófært sökum ungs ald­urs að veita slíkt sam­þykki eða af öðrum orsökum ófært um að láta vilja sinn í ljós, skyldi heim­ilt að breyta kynein­kennum var­an­lega ef heilsu­fars­legar ástæður krefj­ast þess. En þá þyrfti ítar­legt mat á nauð­syn breyt­ing­anna og afleið­ingum þeirra að liggja fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár