Mynd: Bára Huld Beck

Lífsháski við Alþingi

Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og Bára Huld Beck blaða­maður Kjarnans slóg­ust í för með flótta­mönnum í mót­mælum sem krefj­ast sann­gjarnar máls­með­ferðar og þess að Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin verði lögð niður.

Úti var frost­stilla þegar mót­mæla­ganga flótta­fólks lagði af stað frá Hall­gríms­kirkju niður Skóla­vörðu­stíg­inn. Nokkrir ferða­menn stöldr­uðu við og mund­uðu mynda­vélar sínar en fáir Íslend­ingar virt­ust vera á ferli, ein­hverjir kaup­menn kíktu þó út í gætt­ina við að heyra mót­mæla­köll og trumbu­slátt. Annars virt­ist gangan ekki vekja mikla for­vitni hjá land­anum, nema jú, kona með barna­vagn staldr­aði við og virti hana fyrir sér.

Í göng­unni voru umtals­vert fleiri karlar en konur, þær mátti jafn­vel telja á fingrum ann­arrar handar.

Við gengum áleiðis með mót­mæl­endum sem var aug­sýni­lega mikið niðri fyrir þrátt fyrir fálátar und­ir­tektir og raunar furðu litla athygli miðað við hvernig gangan stakk í stúf við reyk­víska borg­ar­mynd­ina á mið­viku­dags­eft­ir­mið­degi í febr­úar.

Neðst í Banka­stræti stað­næmd­umst við á ljósum ásamt erlendum karl­manni sem við gátum okkur til að væri ein­hver staðar frá Bret­landseyjum, kelt­nesk hint í hreim hans; með horn­spang­ar­gler­augu og kask­eiti í síðum frakka með stóran, rauðan trefil.

Maðurinn rak augu í skilti eins mót­mæl­and­ans með áletr­un­inni Niður með landa­mæri – vék sér að sam­ferða­manni okkar og spurði: What does landa­mæri mean?

Sam­ferð­maður okkar svar­aði: It means borders. The sign says: No borders.

Þá sagði mað­ur­inn: That's a beauti­ful dream. Hann tók sér kúnstpásu og muldr­aði síðan: They're always build­ing walls. But no wall stands for­ever.

Gangan stað­næmd­ist á Aust­ur­velli; á að giska sjö­tíu manns, and­spænis lög­reglu­mönnum sem stóðu vörð fyrir framan Alþingi – tóma bygg­ing­una því þing­menn eru nú í kjör­dæma­vik­unni á fart­inni út um land allt. Mót­mæl­endur hróp­uðu: Stop deportations! No borders! No nations!

Mótmælendur
Mót­mæl­endur

Við horfðum á hóp­inn sem, eins og áður sagði, sam­an­stóð að mestu leyti af ungum karl­mönnum. Bláköld stað­reynd að ein­hleypir karl­menn í leit að alþjóð­legri vernd eiga ekki mik­inn séns, ekki einu sinni ungir strákar. Samúð almenn­ings nær sjaldn­ast til þeirra þegar hann tekur stök mál í hendur sínar og reynir að knýja þau áfram til end­ur­skoð­unar.

Nöturleg stað­reynd – líf þeirra.

Í ræðu­höld­unum var ekki seinna vænna að taka ein­hverja menn­ina tali. Við hittum vin okkar, Ali Rasouli, sem við höfum áður tekið við­tal við og býr nú til fram­búðar í Kópavogi ásamt eig­in­konu og syni. Hann sagði mik­il­vægt að Íslend­ingar sýndu flótta­fólk­inu stuðn­ing og kynnti okkur fyrir tveimur vinum sínum frá Afganistan, þeim Mohammad Mohammadi og Ali Yaghobi.

Mótmælendur á Austurvelli
Mót­mæl­endur á Aust­ur­velli

Ungir félagar frá Afganistan

Mohammad Mohammadi hefur verið á Íslandi í næstum því sex mán­uði. Hann hefur fengið eitt nei­kvætt svar frá Útlend­inga­stofnun vegna Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Hann kom frá Svíþjóð en þar dvaldi hann í þrjú ár. Þar fékk hann í þrí­gang nei­kvæð svör. „Ég fæ alltaf nei­kvæð svör, í hvert ein­asta skiptið,“ sagði hann.

Mohammad er upp­runinn frá Afganistan en hann yfir­gaf heima­landið þegar hann ein­ungis var átta ára gam­all, fyrir tíu árum síðan. Á þessu tíma­bili hefur hann verið í Tyrk­landi, Þýska­landi, Íran og núna síð­ast í Svíþjóð.

„Allt mitt líf hefur verið svona,“ bætti Mohammad við en for­eldrar hans búa í Íran og kvaðst hann ekki geta búið þar vegna þess að ungir menn með þennan upp­runa – eins og hann sjálfur – væru ofsóttir þar í landi. Þar væri engin fram­tíð fyrir hann og lífið óbæri­legt. Hann gæti heldur ekki snúið til baka til Afganistan þar sem hann er Hazari en þjóð­flokk­ur­inn er ofsóttur í Afganistan.

Ég fæ alltaf nei­kvæð svör, í hvert ein­asta skiptið.
Ali Yaghobi og Mohammad Mohammadi
Ali Yaghobi og Mohammad Mohammadi

Hann sagð­ist hafa verið einn á flótta frá því hann var átta ára gam­all og þegar við spurðum hann út í fram­tíð­ina hafði hann fá svör. „Ég hef engin plön, það er síð­asti séns­inn minn að vera hér,“ útskýrði hann.

Vinur Mohammad, Ali Yaghobi, kom einnig frá Svíþjóð sam­ferða honum. Hann hafði svip­aða sögu að segja, fjöl­skylda hans dvelst nú í Íran. Ali hefur ekki enn fengið svar frá Útlend­inga­stofnun og hann hefur ekki hug­mynd um hvernig mál hans muni fara.

Þeir búa báðir á Ásbrú – ásamt öðrum karl­mönnum – en þeir lýstu aðstæðum þar frekar bágum. Þeim líður eins og föngum þar, langt frá öllum öðrum og án þess að hafa eitt­hvað fyrir stafni á dag­inn. Það eina sem þeir gera er að vakna, borða, bíða og leggj­ast aftur í rekkju. Svona líða dag­arnir, vik­urnar og mán­uð­irnir. „Örygg­is­verð­irnir líta á okkur sem fanga,“ sagði Mohammad en báðum finnst þeir vera ein­angr­aðir og án upp­lýs­inga.

Mohammad telur hættu­legt fyrir þá að fara til Afganist­ans vegna upp­runa þeirra. „Það yrði ráð­ist á okkur á hverjum degi. Það er vel hægt að sjá á frétta­flutn­ingi frá Afganistan að ráð­ist er á Hazara dag hvern. Við munum aldrei eiga aft­ur­kvæmt, sér­stak­lega vegna þess að við höfum dvalið í Evrópu og telj­umst þá vera síðri múslimar. Okkur yrði aldrei tekið vel þar.“

Pólitískur aktívisti frá Suður Kamerún

Annar flótta­maður varð á vegi okkar en hann kallar sig Check Elvis og er frá Suður Kamerún í Afríku. Hann hefur verið á flótta síðan í nóv­em­ber 2016. Hann ark­aði á Aust­ur­völl til að mót­mæla brott­vís­unum og Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni. Hann álítur að kerfið sé ekki mann­eskju­legt og að flótta­fólk hafi ekki rými til að útskýra nægi­lega vel þær ástæður sem liggja að baki því að það flúði til Íslands.

Hann benti á að gall­inn við Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina væri sá að strembið sé að koma til Íslands án þess að koma við í öðru landi í Evrópu, þannig að auð­velt væri fyrir stjórn­völd að neita flótta­mönnum og senda þá í síð­asta landið sem þeir dvöldu í. Hann sagði að gríð­ar­lega mörgum væri einmitt neitað vegna þessa.

Check Elvis
Check Elvis

Elvis hefur enn ekki fengið svar og er ekki bjart­sýnn. Hann hefur dvalið á Íslandi í um fjóra mán­uði núna en hann kom hingað til lands frá Ítalíu.

Hann kvaðst vera póli­tískur aktí­visti, því hefði honum ekki verið stætt á að vera í heima­land­inu og væri í mik­illi hættu ef hann snéri aftur. Margir af félögum hans hefðu verið drepnir eða hand­sam­aðir og fang­els­aðir. Mikil ólga væri í land­inu um þessar mundir. Hann sagð­ist hafa sofið á göt­unni á Ítalíu og því ekki getað dvalið þar. Ekkert bíði hans þar ef hann verði sendur aftur.

„Þegar ég er einn í her­berg­inu mínu á fæ ég hrylli­legar myndir upp í hug­ann af morðum sem ég hef orðið vitni að. Ég upp­lifi að rétt­læt­inu hafi ekki verið full­nægt fyrir mig. Það eru þjóð­ar­morð í gangi í heima­landi mínu,“ sagði hann.

Fjöl­skylda hans dvelur nú í skógi en hún hefur flúið her­inn og stjórn­völd í Suður Kamerún. Hann hefur engar leiðir til að hafa sam­band við þau og veit ekki nákvæm­lega hvar þau eru stödd núna. „Ég vona auð­vitað að þau séu örugg og að það verði í lagi með þau.“

Lögreglumenn gæta Alþingishússins
Lög­reglu­menn gæta Alþing­is­húss­ins

Þetta er pólitísk ákvörðun

Þegar Check Elvis kvaddi okkur og hélt áfram út í óviss­una voru allir horfnir. Við röltum út Aust­ur­völl­inn en stað­næmd­umst þegar við rák­umst á Helgu Völu Helga­dóttur, þing­konu og mann­rétt­inda­lög­fræð­ing.

Hvaða ferð er á þér? spurðum við.

Hún svar­aði eitt­hvað á þá leið að hún hefði verið við­stödd mót­mælin til að sýna stuðn­ing sinn.

Viltu segja okkur eitt­hvað um það? spurði önnur okkar.

Já, já, sam­þykkti Helga Vala. „Mér finnst að við höfum ekki hugað nægi­lega vel að mann­úð­ar­þætt­inum þegar kemur að mót­töku umsækj­enda um vernd. Á sama tíma og við flytjum inn bílfarma af fólki til að vinna hér, vegna þess að við erum ekki nógu mörg, þá neitum við þeim um að vinna sem bíða hér mán­uðum og árum saman eftir úrlausn sinna mála. Við neitum þeim að sjá fyrir sér,“ sagði hún og benti á að svo­leiðis hefði þetta ekki alltaf verið á Íslandi. „Það er póli­tísk ákvörðun að gera þetta þannig.“

Hér áður fyrr gat fólk sótt um að fá útgefið bráða­birgða­dval­ar­leyfi og -kenni­tölu. „Þá fór fólk af öllum stuðn­ingi – sem og hús­næð­is­stuðn­ingi. En þetta er bannað í dag,“ sagði hún. Henni finnst þetta fyr­ir­komu­lag kjána­legt. „Mér finnst við fara illa með fólk. Sumir skilja enga mannúð, skilja bara pen­inga. Þá vil ég segja við það fólk: Þarna erum við að fara illa með pen­inga. Vegna þess að við erum að banna fólki að vinna sem getur bjargað sér – og vill leggja til sam­fé­lags­ins. Við erum að koma í veg fyrir það.“

Mér finnst við fara illa með fólk. Sumir skilja enga mannúð, skilja bara pen­inga. Þá vil ég segja við það fólk: Þarna erum við að fara illa með pen­inga.
„We love the people of Iceland“
„We love the people of Iceland“

Við kvöddum því næst Helgu Völu og gengum sem leið lá fram­hjá Kaffi París. Þá sáum við að mað­ur­inn með rauða trefl­inn og skiln­ing­inn á því að allir múrar hverfi á end­anum var sestur þar við glugg­ann and­spænis Sjón, rit­höf­undi og for­manni Íslands­deildar PEN-sam­tak­anna.

Þeir slauf­uð­ust saman á svo und­ar­lega skáld­legan hátt að okkur dauð­lang­aði að vita deili á mann­inum. Svo Sjón – ef þú lest þessa grein – viltu þá segja okkur hver mað­ur­inn er?

Hvert er allt þetta fólk sem rekur upp á strendur Íslands og hverju skyldi það búa yfir?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár