Móðir, faðir og barn komin í skjól

Auður Jóns­dóttir og Bára Huld Beck hittu á ný við­mæl­end­urna, Zöhru Rasouli, Ali og Milad, sem þær töl­uðu við um síð­ustu jól en nú horfir heldur betur til betri vegar.

Við heim­sóttum fjöl­skyld­una Zöhru Rasouli, Ali og Milad litla rétt fyrir jólin í fyrra. Þá bjuggu þau í lít­illi íbúð við hraun­flæmið í Hafn­ar­firði. Aðkoman minnti okkur á upp­lýstan hell­is­skúta, við keyrðum þangað í svarta myrkri og snjó og villt­umst í hverfi fullu af atvinnu­hús­næði. Loks sáum við blokk og á neðstu hæð mátti sjá inn í ljósið í litlu íbúð­inni. Við gengum beint inn í þrönga stofu þar sem þau höfðu, rétt eins og nú, borið hnetur og te á borð fyrir gesti sína. Þau voru hrædd, óviss um fram­tíð sína og umfram allt fram­tíð sonar síns, Milad.

Zöhru fannst hún bera ábyrgð á stöðu feðganna þar sem hún þurfti að flýja undan þving­uðu hjóna­bandi, því að þurfa að gift­ast eldri manni upp í skuld for­eldra sinna. Þá höfðu þau verið á flótta í nokkur ár síðan Ali var sautján ára og Zahra nítján; ýmist í rútu, bíl eða lest í gegnum Íran, Tyrkland, Grikk­land, Makedóníu, Serbíu, Ung­verja­land, Aust­ur­ríki, Þýska­land, Danmörku og Svíþjóð.

Loks komust þau til Noregs þar sem mál þeirra var tekið til efn­is­með­ferðar. Þau fengu synjun en það er algengt í Noregi að Afgönum sé synjað um hæli. Raunar er synj­un­ar­hlut­fall Afgana svo hátt þar að í skýrslu Amnesty International hefur það verið harð­lega gagn­rýnt.

Fjöl­skyldan fór þá frá Noregi til Dan­merkur með báti og þaðan til Þýska­lands en flaug síðan til Íslands frá Hamborg. Þegar við hittum hjónin í fyrra voru þau búin að dvelja í sex mán­uði á Íslandi og von­uð­ust til þess að fá að búa hér áfram, örvænt­ing­ar­full í leit sinni að sama­stað fyrir fjöl­skyld­una.

Atburðarásin hófst með símhringingu

Nú er ólíkt létt­ara yfir þeim, aug­sýni­lega fargi af þeim létt. Þau hlutu alþjóð­lega vernd þann 8. októ­ber síð­ast­lið­inn. Viku síðar fengu þau nýja íbúð í hlý­legu bak­húsi í Kópavogi í gegnum mæðginin Áslaugu Berg­steins­dóttur tón­list­ar­kenn­ara og son hennar, Sig­ur­stein Másson, heim­ild­ar­gerð­ar­mann og fyrrum frétta­mann. Mæðginin búa í meg­in­hús­inu, Sig­ur­steinn á efri hæð­inni og Áslaug á þeirri neðri. Áslaug er hjá þeim þegar okkur ber að garði og aug­sýni­lega hefur mynd­ast djúpur vin­skapur á milli hennar og þeirra. Hún rifjar upp atburði árs­ins, síðan við hittum þau síð­ast, og segir okkur sög­una af því hvernig leiðir þeirra lágu saman.

Þau hitt­ust fyrir til­viljun í nóv­em­ber 2017 en atburða­rásin hófst með sím­hring­ingu til Sig­ur­steins þar sem leitað var eftir sal fyrir bar­daga­í­þróttir sem Nasr Mohammed Rahim ætl­aði að kenna hópi manna, þrjá­tíu eða fjöru­tíu tals­ins; margir Kúrdar og ein­hverjir frá Afganistan.

Feðgarnir Ali og Milad.
Feðgarnir Ali og Milad.

„Fallegt sam­fé­lag,“ segir Áslaug, ögn meyr þegar hún rifjar upp að sumir hafi komið með veit­ingar en þarna hafi verið æfingar öll þriðju­dags­kvöld – hjá bar­daga­fé­lagi Sig­ur­steins, eins og hún kallar það.

Eitt kvöld í nóvember

Nasr, eig­in­kona hans, Sobo Answ­ar Has­an, og börn þeirra, Leo og Leona, eru þekkt fjöl­skylda á Íslandi. Töluvert var fjallað um þegar þau voru flutt með flugi til Frank­furt snemma þann 30 nóv­em­ber árið 2017; Sobo þá ófrísk að dótt­ur­inni og Leo aðeins tveggja ára. Í flug­inu voru þau aðskilin, móð­irin fékk ekki að sitja nálægt feðg­unum og hún grét þangað til far­þeg­arnir álykt­uðu að hún hefði verið sprautuð niður. Um tíma dvöldu þau í Þýska­landi og lýstu aðstæð­unum eins og flótta­manna­búðum, múruð inni af stein­vegg. Síðar fengu þau íbúð en voru end­an­lega rekin frá Þýska­landi í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þá flúði fjöl­skyldan til Frakk­lands og var í felum í skógi þar í landi til að byrja með.

„Í októ­ber skrifar Toshiki Toma (prestur inn­flytj­enda á Íslandi og ljóð­skáld) á Facebook að fjöl­skyldan hefði fengið skjól hjá manni,“ segir Áslaug þar sem við súpum á tei og brosum að fjör­inu í Milad litla. „Sá var blörr­aður á mynd,“ heldur hún áfram en minnir að skjóls­húsið hafi verið nálægt Nice. Sobo hafi eign­ast stúlku í mars, en með­gangan hafi verið hálfnuð þegar íslensk yfir­völd ráku hana héðan.

Áður en allt þetta gerð­ist var Nasr að kenna bar­daga­í­þróttir í Kópavogi. Hann var þakk­látur Sig­ur­steini fyrir að hafa gert sér kleift að stunda þessa vinnu í nokkra mán­uði og vildi þakka honum fyrir.

Eitt kvöldið, í nóv­em­ber í fyrra, kom því hóp­ur­inn heim til Sig­ur­steins að snæða súpu og Ali Akhbar hafði komið með konu sína, Zöhru, og litla dreng­inn. Áslaug hafði búið súp­una til en svo þegar þau eru að fara er bankað upp á í íbúð Áslaugar og þau segja að unga konan, Zahra, vilji þakka fyrir súp­una. Áslaug brosir við minn­ing­una þegar hún segir: „Enginn hefur áður nálg­ast mig, sagt hæ og takk fyrir súp­una, hún var svo góð. Og síðan faðmað mig! Síðan sneri Zahra sér við, hún var gengin nokkur skref frá mér þegar hún stað­næmd­ist, sneri við og steig í fangið á mér. Hún kúrði þar. Síðan spyr hún: See you?

Já, sagði ég.

Síðan höfum við verið saman. Það var bara til­viljun að þessi unga stúlka kom í fangið á mér. Af því að mað­ur­inn hennar hafði verið að slást við son minn í Kung Fu! En ég hafði tekið eftir því uppi hjá syni mínum, þegar ég kom með pott­inn, hvað henni leið illa. Ég var bara að kasta kveðju á hóp­inn.“

Spurn­ingin vaknar hvort hún hafi starfað sem sjálf­boða­liði fyrir Rauða kross­inn.

„Nei,“ segir hún og hlær. „Ég er bara tón­list­ar­kenn­ari, kerl­ing í Kópavogi. Ég hafði ekki kynnst öðrum í þess­ari stöðu – en hef kynnst nokkrum í gegnum þau. Við erum með banka­rán hvílandi á hús­inu og þurftum því að leigja út Airbnb. En ákváðum að taka íbúð­ina úr leigu, svo viku eftir jáið gátu þau Ali, Zahra og Milad flutt inn.“

Það var bara til­viljun að þessi unga stúlka kom í fangið á mér. Af því að mað­ur­inn hennar hafði verið að slást við son minn í Kung Fu!
Áslaug og Zahra í góðu tómi.
Áslaug og Zahra í góðu tómi.

Þau grétu öll þrjú

Áður en það gerð­ist reyndi þó enn frekar á fjöl­skyld­una. Þann 26. febr­úar síð­ast­lið­inn fengu þau end­an­lega höfnun hjá Útlend­inga­stofnun. Það var áfall. Sig­ur­steinn fylgdi þeim í Rauða kross­inn og var það sér­kenni­leg stund; eng­inn leið að vita hvort Zahra myndi lifa það af að vera send til baka.

„Kvöldið sem þau fengu end­an­lega höfnun dofn­aði Zahra öll upp,“ segir Áslaug. „Hún missti mátt­inn í hönd­unum; hún átti enga orku aflögu, var vansvefta og alveg búin á því. Hún sá fyrir sér að deyja, sagði eina ráðið að gera það núna því þá ættu feðgarnir von. Hún væri vanda­málið, þeir betur komnir án sín. Viku síðar fékk hún rosa­legan krampa. Hún var að deyja.“

Hjá Rauða kross­inum fékk Sig­ur­steinn grein­ar­gerð frá Noregi. Í ljós kom að aldrei hafði verið talað við þau á Íslandi, þau höfðu ekki fengið við­tal, eng­inn hafði spurt: Af hverju eruð þið hér?

Rauði kross­inn sendi kæru og farið var fram á að málið fengi efn­is­lega með­ferð. Málið fór til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Áslaug rifjar þetta upp: „Í kringum þetta ríkti mik­ill taugatitr­ingur. En 26. mars fengu þau að vita að málið fengi efn­is­lega skoðun. Þau komu öll grát­andi út frá kæru­nefnd útlend­inga­mála. Milad grét því for­eldr­arnir grétu. Þau voru svo glöð að fá tæki­færi. Vissu ekki hvernig þetta myndu enda en vissu að þau myndu fá eitt sam­tal. Tækifæri.“

En síðan hófst biðin. Hvenær yrði talað við þau? Þau fengu að vita að það yrði eftir ein­hverja mán­uði. Í lok sept­em­ber voru þau svo boðuð á fund og áttu að fá svar innan tveggja vikna, í mesta lagi þrjár. Þann 8. októ­ber barst loks já. Og fjöl­skyldan fékk að vita að þau gætu sótt um rík­is­borg­ara­rétt eftir fimm ár.

„Það vill svo skemmti­lega til að það er sér­stakur rétt­inda­dagur barna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum,“ segir Áslaug og horfir með vænt­um­þykju á Milad litla. „Þeir kunnu að velja dag­inn!“

Þau voru svo glöð að fá tæki­færi. Vissu ekki hvernig þetta myndu enda en vissu að þau myndu fá eitt sam­tal. Tækifæri.
Milad litli.
Milad litli.

Geta nú hugsað um framtíðina

En nú líður fjöl­skyld­unni vel, segja þau, sam­mála um að margar til­finn­ingar tak­ist á í sér. Það er allt öðru­vísi að hitta þau í dag en fyrir ári þegar kvíða­blandin óvissa mark­aði þau öll. Nú geta þau loks­ins gert plön fyrir fram­tíð­ina og upp­lifa mik­inn létti.

„Nú getum við hugsað um fram­tíð­ina og nú ætlum við að læra íslensku. Áður var það öðru­vísi en það var svo erfitt að sjá fyrir sér hvað myndi ger­ast,“ segir Zahra. Mest hlakka þau til að fara í nám og læra það sem þau hafa áhuga á.

Þau ætla bæði í íslensku­nám en Zahra stefnir á að læra lyfja­tækni og hún mun byrja í námi á næsta ári. Ali hyggur á iðn­nám í Tækni­skól­anum.

„Hann er svo hand­lag­inn, getur allt með hönd­unum,“ segir Áslaug og bætir því við að hann eigi fram­tíð­ina fyrir sér í því. Hún klykkir síðan út með að Ali sé líka mjög góður í fót­bolta.

Ali brosir við þessi orð og kveðst langa að æfa fót­bolta. „Við förum nokkrir, um tólf tals­ins, frá Afganistan og spilum saman. Ég að leita að liði til að spila með. Zahra fer ekki á leiki, fílar ekki fót­bolta. En Milad dýrkar fót­bolta!“

Nú leitar Ali sér að vinnu en hann gæti vel hugsað sér að vinna á leik­skóla. Það myndi henta honum að vinna í leik­skóla hálfan dag­inn; skól­inn er til tólf svo hann gæti þá unnið frá eitt til fimm.

„Ég hef heyrt að það sé gott að læra málið við vinnu á leik­skóla,“ segir hann og það er drengi­lega bjart yfir honum þegar hann brosir. „Þar er gott að spjalla við börnin og fólkið. Mér finnst skemmti­legt and­rúms­loftið í leik­skól­unum.“ Milad elskar leik­skól­ann sinn – sem er rétt hjá – segja þau. Hann lærir fljótt og er far­inn að læra íslensku, auk þess sem hann talar pers­nesku og skilur smá ensku. Full­orðna fólkið sér mik­inn mun á honum eftir að þau fluttu í nýja húsið. Hann hætti að vakna grát­andi á nótt­unni og nú veit hann fátt skemmti­legra að vera í fót­bolta úti í garði.

Milad skemmtir sér endrum og sinnum við píanó-spil hjá Áslaugu. „Hann spilar … “ segir hún og þagnar stund­ar­korn. „Hann var eins og hálfs árs þegar við kynn­umst og þið vitið hvernig börn eru nálægt píanói, þau hamra á lykla­borðið. En ekki þessi! Hann rennir flötum fingrum eftir nótna­borðið. Og spilar bara lítið og ljúft. Eins og lág­stemmd dinn­ermúsík.“

Þeim þykir öllum gott að búa í Kópavogi, þar hafa þau eign­ast góða vini, segja hjónin. Og þau eiga mæðginin að. „Við verðum alltaf vinir,“ segir Áslaug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár