Hefur ekki íhugað stöðu sína vegna ummæla um Vigdísi og fann mikinn stuðning

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins seg­ist ekki ætla að ræða ummæli sem hann lét falla um fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna frekar og segir að það mál sé að baki hvað hann varði. Hann hefur verið kærður fyrir brot á siða­reglum Alþingis vegna þeirra.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, segir að hann hafi ekki íhugað stöðu sína vegna rasískra ummæla sem hann lét falla um Vigdísi Häsler, fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna, á Bún­að­ar­þingi fyrir rúmum mán­uði. Sigurður Ingi segir að hann hafi fundið mik­inn stuðn­ing á meðan á mál­inu stóð, að það sé að baki og að hann ætli ekki að ræða það meir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali við Sigurð Inga í nýjasta þætti Dagmála á mbl.is sem birtur var í dag.

Í við­tal­inu segir hann að ummælin hafi fallið í gleð­skap og hvað þar gerð­ist hafi hann og Vigdís rætt saman um. „Ég hef beðist bæði opin­ber­lega afsök­unar sem og við Vigdísi. Við erum sam­mála um að þetta mál sé að baki og við ætlum ekki að ræða það frekar og ég mun ekki gera það.“ Þegar Sigurður Ingi var spurður út í fjöl­miðlaum­fjöllun um orðin sem hann lét falla svar­aði hann: „Það er allt annað að taka umræðu um hluti sem að skipta máli í sam­fé­lag­inu heldur en um ein­hvern slíkan ein­stakan við­burð og reyna að gera meira úr honum en var. Ég hef lagt áherslu á það og þetta mál er að baki hvað mig varðar.“

„Þeir smætta verk ein­stak­l­inga og gjörðir niður í lit eða kyn“

Umrætt atvik átti sér stað síð­asta dag mars­mán­aðar. Aðdrag­andi þess var sá að Vigdís og starfs­menn Bænda­sam­tak­anna vildu fá or­ystu­fólk úr Fram­sókn­ar­flokknum til að taka mynd með sér þar sem hún „plank­aði“ á meðan að það hélt á henni. Samkvæmt umfjöllun fjöl­miðla, sem byggja á sam­tölum við fólk sem var við­statt, á Sig­urður Ingi að vísað til Vig­dísar sem „hinnar svört­u“. Sigurður Ingi hefur aldrei stað­festa sjálfur hvað hann sagði nákvæm­lega.

Umfjöllun um upp­á­kom­una birt­ist fyrst í Orð­inu á göt­unni á Eyj­unni, slúð­ur­vett­vangi sem heyrir undir DV þar sem skrifað er nafn­laust, á sunnu­dag klukkan 15:30. Klukku­tíma og þremur mín­útum síðar birt­ist frétt á vef DV þar sem Ing­veldur Sæmunds­dótt­ir, póli­tískur aðstoð­ar­maður Sig­urðar Inga til margra ára, þvertók fyrir að yfir­maður hennar hefði við­haft rasísk ummæli. „Þetta er algjört bull,“ sagði Ing­veld­ur. Hún hefði verið edrú og staðið við hlið Sig­urðar Inga þegar til stóð að taka umrædda mynd með Vig­dísi. Ing­veldur sagði að Sig­urði Inga hefði ekki lit­ist vel á hug­mynd­ina og sagt að hann vildi ekki halda á Sjálf­stæð­is­manni.

Þessi við­brögð reynd­ust ekki eld­ast vel þegar Vig­dís gaf sjálf út yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hefðu verið látin falla og að hún hefði heyrt þau, sem og fleira starfs­­­­fólk Bænda­­­­sam­tak­anna. Hún sagði að hún hefði aldrei talið að hún þyrfti að setj­­­­­ast niður og skrifa yfir­­­lýs­ingu af þessu tagi. „Að­­stoð­­ar­­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­­ari mynda­­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­­dómar eru gríð­­ar­­legt sam­­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­l­inga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

[adspot]Í kjöl­farið baðst Sigurður Ingi afsök­unar á „óvið­ur­kvæmi­legum orðum“ í garð Vigdísar í stöðu­upp­færslu á Facebook. Nokkrum dögum síðar hitt­ust þau á fundi þar sem hún með­tók afsök­un­ar­beiðni hans. Vigdís hefur nú eytt stöðu­upp­færsl­unni þar sem hún fjall­aði um „afar sær­andi ummæli“ Sigurðar Inga.

„Það hefur tekið þungt á mig, mína fjöl­skyldu og mína vini“

Sigurði Inga tókst að forð­ast það að svara fyrir málið að mestu næstu vik­urnar með því að forð­ast að veita við­töl við fjöl­miðla. Í síð­ustu viku var þó komið að inn­við­a­ráð­herra að mæta í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir á Alþingi og þar spurði Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, Sigurð Inga út í ummælin.

[links]Sig­urður Ingi svar­aði að það væri þung­bært og þung­bær­ara en hann bjóst við, eftir að hafa verið svona lengi í stjórn­mál­um, að upp­lifa það dag eftir dag í þing­inu í til­tek­inn tíma af til­teknum stjórn­mála­mönnum og af ein­stökum fjöl­miðlum að vera bor­inn þungum sökum „um eitt­hvað allt ann­að“.

„Ég hef velt því fyrir mér hvort það sé eitt­hvað í mínu fari per­sónu­lega eða eitt­hvað sem stjórn­mála­mað­ur­inn Sig­urður Ingi hefur staðið fyrir sem bendir til að þetta sé svona. Eða er það bara vegna þess að það eru sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar eftir hálfan mánuð og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er far­inn að taka fylgi af öðrum flokk­um? Er það virki­lega svo? Ég á ekki auð­velt með að grín­ast með þetta mál. Það hefur tekið þungt á mig, mína fjöl­skyldu og mína vini. Ég hef beðist afsök­un­ar. Sú afsök­un­ar­beiðni hefur verið með­tek­in. Við vorum sam­mála um að ræða það ekki frekar og ég mun virða þá ósk.“

Þann 11. apríl var greint frá því að for­sætis­nefnd Alþingis hefði borist kæra gagn­vart Sigurði Inga fyrir brot á siða­reglum Alþingis vegna ummæl­anna um Vigdísi. Ekki liggur fyrir hvern lagði fram kæruna.

Kjarninn spurði Sigurð Inga út í þessa siða­nefnd­ar­kæru þegar hann gaf færi á sam­tali fyrr í þess­ari viku en hann neit­aði að ræða málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár