Samherji telur að kyrrsetning Heinaste standist ekki namibísk lög

„Við teljum að end­ur­nýjuð kyrr­setn­ing skips­ins stand­ist ekki namibísk lög og við munum grípa til ráð­staf­ana til að hnekkja henni fyrir namibískum dóm­stólum ef nauð­syn krefur,“ segir Björgólfur Jóhanns­son starf­andi for­stjóri Samherja.

Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, starf­andi for­stjóri Samherja. Mynd: Úr safni

Björgólfur Jóhanns­son, starf­andi for­stjóri Samherja, segir að fyr­ir­tækið telji að end­ur­nýjuð kyrr­setn­ing verk­smiðju­tog­ar­ans Heinaste stand­ist ekki namibísk lög. Það muni grípa til ráð­staf­ana til að hnekkja henni fyrir namibískum dóm­stólum ef nauð­syn krefur. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Samherja í dag.

Fram kom í fréttum í síð­ustu viku að Heinaste hefði verið kyrr­settur á ný á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi. Einungis er heim­ilt að beita slíkri kyrr­setn­ingu ef rök­studdur grunur er um að til standi að fjar­lægja umrædda eign.

Eitt skip eftir í Namibíu

Í til­kynn­ingu Samherja segir að af þeim þremur skipum sem stundar hafa veiðar í namibískri lög­sögu und­an­farið ár, Geysir, Heinaste og Saga, sé aðeins eitt eftir í Namibíu og sé þar um að ræða verk­smiðju­togar­ann Heinaste. Mark­miðið hafi verið að hafa skipið áfram í Namibíu í því skyni að selja það eða leigja áfram til namibískra aðila sem stunda útgerð í land­inu svo verja mætti störf þeirra sjó­manna sem hafa verið í áhöfn skips­ins.

[adspot]

[links]„Aðeins aðilar sem hafa verið sak­felldir geta þurft að þola hald­lagn­ingu á eignum sínum sam­kvæmt namibískum lögum. Eigandi Heinaste hefur ekki verið ákærður eða sak­felldur fyrir refsi­verða hátt­semi. Samherji hafði áður lýst yfir ánægju með að mál vegna Heinaste og skip­stjóra þess hefði verið leitt til lykta fyrir dómi í Walvis Bay hinn 5. febr­úar síð­ast­lið­inn. Skip­stjór­inn ját­aði sök í þremur ákæru­liðum um að hafa stundað veiðar á svæði þar sem sjáv­ar­dýpt var minni en 200 metrar sem gengur í ber­högg við þau skil­yrði sem gilda um rétt­hafa úthlut­aðs kvóta sem Heinaste var að veiða í umrætt sinn.

Skip­stjór­inn var sektaður en dóm­stóll­inn hafn­aði kröfu namibíska rík­is­ins um hald­lagn­ingu skips­ins því ekki þótti sannað að eig­andi þess, Heinaste Invest­ments (Pty) Ltd., sem Samherji á ráð­andi hlut í, hefði ekki gripið til allra við­eig­andi úræða til að koma í veg fyrir að skipið væri notað á ólög­mætan hátt. Af þess­ari ástæðu var það nið­ur­staða dóm­stóls­ins að afhenda bæri eig­anda Heinaste þau skips­gögn sem höfðu verið hald­lögð,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Namibíska lögreglan vísvitandi hunsað dómsúrskurðinn

Björgólfur segir enn fremur að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafi áhyggjur af því að namibíska lög­reglan hafi vís­vit­andi hunsað dóms­úr­skurð­inn og neitað að skila papp­írum skips­ins til eig­anda þess eins og dóm­stóll­inn hafi fyr­ir­skipað að ætti að gera. Þetta muni seinka áformum um end­ur­ráðn­ingu áhafnar skips­ins til hags­bóta fyrir namibískt sam­fé­lag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár