Sprengjusveit skoðar grunsamlegan pakka á sænsku dagblaði

Dag­blaðið Nerikes Allehanda í Örebro í Svíþjóð fékk sent grun­sam­legt bréf í pósti í dag, en það var stílað á Lars Vilks, skop­mynda­teiknar­ann sem talið er að hryðju­verka­árásin á menn­ing­ar­hús í Kaup­manna­höfn um helg­ina hafi beinst að. Búið er að rýma hluta af hús­næði dag­blaðs­ins þar sem bréfið er geymt, og þess er nú beðið að sprengju­sér­sveit frá Stokk­hólmi komi til Örebro.

Samkvæmt umslag­inu var bréfið sent frá Hannover í Þýska­landi. Inni í umslag­inu virð­ist vera ein­hver harður hlutur. Upp­haf­legt mat lög­regl­unnar í Örebro var að lík­lega væri ekk­ert hættu­legt á ferð, þar sem búið væri að flytja það langa leið og lík­lega hefðu margir hand­leikið það á leið­inni. Þó var ákveðið seinna að kalla til sprengju­sveit frá Stokk­hólmi sem er von á innan klukku­stundar.

Hafin er saka­mála­rann­sókn og sam­kvæmt lög­regl­unni í Örebro er búið að hafa sam­band við lög­regl­una í Þýska­landi til að grennsl­ast fyrir um send­and­ann, og þá er búið að hafa sam­band við lög­reglu­um­dæmið sem hefur örygg­is­mál Vilks með höndum, en hann er far­inn í felur eftir árás­irnar í Kaup­manna­höfn um helg­ina.

Greint er frá mál­inu og fram­vindu þess á heima­síðu Nerikes Allehanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár