Gove bregður fæti fyrir Boris

Boris Johnson og Michael Gove. Óvænt er staðan sú að Johnson fer ekki fram en Gove á góðan séns á að verða forsætisráðherra.
Boris Johnson og Michael Gove. Óvænt er staðan sú að Johnson fer ekki fram en Gove á góðan séns á að verða for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: EPA

Fimm ein­stak­lingar sækj­ast eftir for­mennsku í Íhalds­flokknum og for­sæt­is­ráð­herra­stólnum, sem losnar í byrjun sept­em­ber eftir að David Cameron til­kynnti um afsögn sína eftir ósigur í Brexit-kosn­ing­unum fyrir viku.

Boris Johnson, þing­maður og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í London, til­kynnti hins vegar fyrir hádegið að hann myndi ekki sækj­ast eftir for­mennsku í breska Íhalds­flokknum, og þar með ekki for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Ákvörðun Johnson kemur veru­lega á óvart, enda var hann tal­inn einn lík­leg­asti fram­bjóð­and­inn til þess að freista þess að taka við af David Cameron, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Theresa May inn­an­rík­is­ráð­herra til­kynnti um fram­boð sitt í morgun en einnig hafa Andrea Leadsom orku­mála­ráð­herra, Liam Fox, þing­maður og fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra, og Stephen Crabb, ráð­herra atvinnu- og líf­eyr­is­mála, hafa þegar til­kynnt um fram­boð, en fram­boðs­frest­ur­inn rann út í dag.

Það var hins vegar fram­boð Michael Gove dóms­mála­ráð­herra sem er sagt hafa haft mikil áhrif á ákvörðun Johnson um að fara ekki fram, en Gove kom mörgum á óvart með því að til­kynna um fram­boð í morgun. Búist hafði verið við því að hann myndi styðja Johnson til for­ystu í flokknum, og yrði sjálfur fjár­mála­ráð­herra eða utan­rík­is­ráð­herra, og myndi sem slíkur leiða við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið um útgöngu Breta þaðan.

„Ég hef ítrekað sagt að ég vilji ekki verða for­sæt­is­ráð­herra. Það hefur alltaf verið mín skoðun,“ sagði Gove meðal ann­ars. Hins vegar hefðu atburðir síð­ustu daga haf mikil áhrif á hann. „Ég virði og dáist að öllum fram­bjóð­endum sem sækj­ast eftir for­ystu. Sér­stak­lega vildi ég hjálpa til við að byggja upp lið að baki Boris Johnson svo að stjórn­mála­maður sem barð­ist fyrir útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu gæti leitt okkur til betri fram­tíðar.“

Hann sagð­ist þó með sem­ingi hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Boris geti ekki verið sá leið­togi sem til þarf. Þess vegna hafi hann ákveðið að bjóða sig fram.

Eiginkonan lýsti yfir efasemdum um Boris

Eig­in­kona Gove, Sarah Vine, lýsti yfir efa­semdum um Boris Johnson og vin­sældir hans meðal flokks­manna Íhalds­flokks­ins og fjöl­miðla­eig­end­anna Rupert Murdoch og Paul Dacre í tölvu­pósti frá því á þriðju­dag. Póstinn ætl­aði hún að senda manni sinum og tveimur ráð­gjöfum hans, en hann fór óvart víðar og var komið til Guardian og fleiri fjöl­miðla. Þar stóð meðal ann­ars líka að það væri mik­il­vægt að Gove lýsti ekki yfir óskor­uðum stuðn­ingi við Boris Johnson nema gegn því að fá mjög skýrt lof­orð um stöðu sína. „Ekki gefa neitt eftir. Vertu þrjós­kasta útgáfan af þér. Gangi þér vel,“ segir svo í póst­inum.

Krísa í Íhaldsflokknum

Ákvörðun Gove í morgun sýnir að skuggi hefur fallið á vin­áttu og sam­starf Gove og Johnson, sem höfðu barist saman fyrir útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu. Ásakanir ganga á báða bóga úr her­búðum þeirra í breskum fjöl­miðlum. Á fyrsta degi virð­ast breskir fjöl­miðlar ætla að helsta bar­áttan verði á milli Theresu May og Michael Gove.

Íhalds­menn ætla að kjósa sér nýjan leið­toga í byrjun sept­em­ber, og flokk­ur­inn virð­ist vera í krísu, rétt eins og Verka­manna­flokk­ur­inn, þar sem allt er í kalda­kolum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár