Einkareknir skólar fá eignir ríkisins í sína umsjá sér að kostnaðarlausu

Eignir skóla í opin­berri eigu hafa ítrekað verið færðar í rekstur einka­að­ila án þess að nokkuð fáist fyrir þær.

Ríkið á ennþá eignirnar
Ríkið á ennþá eign­irnar Kristján Þór Júl­í­us­son mennta­mála­ráð­herra segir ríkið ennþá eig­anda þess­ara eigna þrátt fyrir að aðilar í einka­rekstri hafi nú umsjón með þeim. Mynd: Pressphotos

Íslenska ríkið fékk ekki krónu fyrir Vélskóla Íslands, Stýri­manna­skól­ann og Iðn­skól­ann í Reykja­vík þegar skól­arnir voru lagðir niður og eignir þeirra færðar í hendur Mennta­fé­lags­ins/Fjöl­tækni­skól­ans og Tækni­skól­ans. Þetta kemur fram í svörum Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, við skrif­legum fyr­ir­spurnum Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­manns Vinstri grænna. Svandís spurði Kristján Þór meðal ann­ars hvert hefði verið virði þeirra eigna sem runnu yfir til einka­að­ila með þessum hætti. Þá spurði hún hvað umræddir aðilar, svo sem Tækni­skól­inn, hefðu greitt íslenska rík­inu fyrir skól­ana.

Í svörum mennta­mála­ráð­herra kemur fram að ekk­ert hafi verið greitt skól­ana eða eignir þeirra þar sem þær væru tækni­lega séð ennþá í eigu rík­is­ins. Mennta­fé­lag­inu/Fjöl­tækni­skól­anum og síðar Tækni­skól­anum hafi ein­fald­lega verið falin rekstur þeirra eigna sem þeir fengu við sam­ein­ingu við umrædda skóla. Ráðherra segir jafn­framt að engar greiðslur hafi átt sér stað fyrir skól­ana eða þær eignir sem þeim fylgdu. Ríkið sé ennþá eig­andi allra þess­ara eigna þrátt fyrir að aðilar í einka­rekstri hafi nú umsjón með þeim og afnot af þeim. Stundin greindi nýlega frá því að Iðn­skól­inn í Reykja­vík hefði runnið með þessum sama hætti inn í Tækni­skól­ann án þess þó að ríkið hefði fengið nokkuð greitt fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár